Kristrún: „Þvílík hræsni“

Þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar gagn­rýnir að vaxta­bótum sem nýtt­ust tekju­lágu fólki og ungu fólki hafi verið skipt út fyrir 30 millj­arða króna skatt­afslátt til ein­stak­linga í efri hluta tekju­stig­ans.

Kristrún Frostadóttir þingmaður Samfylkingarinnar.
Kristrún Frosta­dóttir þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Mynd: Bára Huld Beck

Kristrún Frosta­dóttir þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar segir að sam­fé­lag jafnra tæki­færa sé að „renna okkur úr greipum“ vegna þess stjórn­ar­fars sem sé við lýði hér á landi.

Þetta kom fram í ræðu hennar undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag.

Vísaði hún í nýtt mán­að­ar­yf­ir­lit Alþýðu­sam­bands Íslands (ASÍ) sem birt var í dag og Kjarninn fjall­aði um en í því er umfangs­mikil umfjöllun um hús­næð­is­stuðn­ing rík­is­sjóðs sem byggir á sér­keyrslum sem fengnar eru úr skatta­gögn­um.

Húsnæðisstuðningur runnið frá tekjulægstu hópunum yfir til þriggja tekjuhæstu tíundanna

Kristrún sagði að töl­urnar sýndu hvernig hús­næð­is­stuðn­ingur hefði á und­an­förnum ára­tug runnið frá tekju­lægstu hóp­unum yfir til þriggja tekju­hæstu tíund­anna.

„Nið­ur­stöð­urnar eru slá­andi. Rík­is­stjórnin hefur mark­visst fært fjár­muni úr vaxta­bóta­kerf­inu yfir í úrræði sem gerir fólki kleift að nýta sér­eign­ar­sparnað sinn skatt­frjálst til að greiða inn á hús­næð­is­lán. Þetta hljómar mjög sak­laust en þetta er veru­leg stefnu­breyt­ing í okkar vel­ferð­ar­sam­fé­lagi því að langstærsti hluti þessa skatt­afsláttar, rúm­lega 30 millj­arðar króna frá árinu 2015, nýt­ist tekju­hæstu 30 pró­sent lands­manna. Helm­ingur af úrræð­inu rennur til tekju­hæstu 10 pró­sent í land­inu.

Hversu oft höfum við hlustað á ræður stjórn­ar­liða um mik­il­vægi þess að for­gangs­raða fjár­munum? Þvílík hræsni. Vaxta­bótum sem nýtt­ust tekju­lágu fólki og ungu fólki var skipt út fyrir 30 millj­arða króna skatt­afslátt til ein­stak­linga í efri hluta tekju­stig­ans, 30 millj­arðar sem aðal­lega fara til fólks yfir fer­tugu þrátt fyrir að hús­næð­is­vand­inn sé meðal ungs fólks og tekju­lágs fólks,“ sagði Kristrún.

Benti hún á að rík­is­stjórnin þyrfti ekki að bera ábyrgð á þessum 30 millj­örðum því þetta væru fram­tíð­ar­skatt­tekjur.

„Á hverjum mun þetta 30 millj­arða króna tekju­tap í fram­tíð­inni bitna? Jú, unga fólk­inu sem hæst­virtur fjár­mála­ráð­herra er alltaf að tala um að treysti á svo­kallað útgjalda­að­hald rík­is­sjóðs vegna fram­tíð­ar­skulda, sama unga fólk­inu og þurfti að skuld­setja sig marg­falt fyrir fyrstu eign vegna mark­vissrar stefnu rík­is­stjórn­ar­innar und­an­far­inn ára­tug, að beina fjár­magni frá þeim sem virki­lega þurfa í almenn úrræði á hús­næð­is­mark­aði sem pumpa upp hús­næð­is­verð. Samfélag jafnra tæki­færa er að renna okkur úr greipum vegna þessa stjórn­ar­fars,“ sagði hún að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár