Eiginkona ráðherra í Ísrael með kynþáttaníð um Obama á Twitter

Judy Mozes, eiginkona Silvan Shalom, vara­forsætis­ráðherra og innan­ríkis­ráðherra Ísrael, fór með kynþáttaníð um Barack Obama Bandaríkja­forseta á Twitter í dag. Mozes, sem er þekktur sjónvarps­þátta­stjórnandi í heima­landinu, eyddi síðar færslunni á samfélags­miðlinum og baðst afsökunar á ummælum sínum. Frétta­miðillinn Business Insider greinir frá málinu.

Twitter færslan umdeilda. Mozes er með nærri 75.000 fylgjendur á samfélags­miðlinum.

Twitter færslan umdeilda. Mozes er með
Twitter færslan umdeilda. Mozes er með

Mozes birti illa ígrundaðan brandara á Twitter, sem féll í grýttan jarðveg. Stuttu síðar eyddi hún færslunni.

Mozes sá fljótt að sér, og baðst ítrekað afsökunar.

Mozes sá fljótt að sér, og baðst ítrekað afsökunar.
Mozes sá fljótt að sér, og baðst ítrekað afsök­unar.

Yair Rosenberg, rithöfundur og máls­metandi greinandi á málefni Ísraels, sagði í kjölfar rasíska brand­arans að þetta væri ekki í fyrsta skiptið þar sem Mozes gerist sek um dómgreindar­skort. Hún sé þekkt fyrir skrýtin upphlaup um hin ýmsu málefni. Þá hafi athuga­semdir hennar skaðað stjórnmála­feril eigin­manns hennar.

Brand­arinn kemur líka fram á óheppilegum tíma þar sem samskipti Banda­ríkjanna og Ísrael undan­farið hafa vart verið stirðari í árabil.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár