Megum ekki loka augunum fyrir því að hérna býr fjöldi manns við fátækt

Formaður Sam­fylk­ing­ar­innar segir að því miður sé það þannig að jólin séu áhyggju­efni fyrir allt of marga á Íslandi. Þótt það sé erfið til­hugsun þá megi ekki loka aug­unum fyrir því að hér búi fjöldi manns við fátækt, fleiri þús­und börn þar á meðal.

Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar.
Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Mynd: Bára Huld Beck

„Fal­leg­ustu minn­ing­arnar snú­ast gjarnan um fjöl­skyldu og vini og það sem raun­veru­legu máli skiptir í stóra sam­heng­inu vill nú stundum gleym­ast. Því miður er það nefni­lega þannig að jólin eru áhyggju­efni fyrir allt of marga á Íslandi. Þótt það sé erfið til­hugsun þá getum við ekki og megum ekki loka aug­unum fyrir því að hérna býr fjöldi manns við fátækt, fleiri þús­und börn þar á meðal. Þetta fólk getur ekki nýtt sér nauð­syn­lega lækn­is­þjón­ustu, ekki sent börnin sín í tóm­stundir, það þarf jafn­vel að neita sér um að kaupa mat og gjafir og það þarf að borga leigu.“

Þetta sagði Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í gær.

Hann bætti við að fátækt væri sem betur fer ekki óum­flýj­an­legur veru­leiki og stjórn­völd gætu haft úrslita­á­hrif á hvernig til tæk­ist og hvernig undið væri ofan af þessu. „Við skulum þess vegna í aðdrag­anda jól­anna ekki gleyma þeim sem eiga um sárt að binda, ekki gleyma þeim gildum sem skapa rétt­látt sam­fé­lag og leggja okkar af mörkum til að upp­ræta þetta.“

Reynt á hugrekki okkar allra

Líneik Anna Sæv­ars­dóttir, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, ræddi hug­takið hug­rekki í ræðu sinni undir sama lið í gær. „Frá því að COVID-far­ald­ur­inn skall á í mars hefur reynt á hug­rekki okkar allra, vilja til að mæta ógn­inni sem steðjar að sam­fé­lag­inu öllu. Það krefst áræðis að hugsa í lausnum og ráð­ast í for­dæma­lausar og kostn­að­ar­samar aðgerðir, en einmitt þá er hug­rekkið mik­il­vægt. Það smitar út frá sér og sam­einar fólk.“

Þarna vitn­aði hún til skrifa for­ystu Fram­sókn­ar­flokks­ins, „enda er ég svo inni­lega sam­mála því að leið­ar­ljós okkar á þessum tímum þarf að vera hug­rekki, seigla og úthald. Á Íslandi ákváðu stjórn­völd strax í mars að veita miklum fjár­munum til grunn­stoða, til að fjár­festa í innviðum og tryggja afkomu fólks. Um 10 pró­sent af lands­fram­leiðslu hefur verið varið til þessa. Staða rík­is­sjóðs í upp­hafi far­ald­urs­ins er for­senda við­bragð­anna. Skuldir voru aðeins um 20 pró­sent af lands­fram­leiðslu meðan skuldir Banda­ríkj­anna voru um 100 pró­sent.

Íslenska hag­kerfið hefur síðan alla burði til að ná aftur fyrri stöðu. Markmið stjórn­valda hafa að mestu leyti náðst. Heil­brigðis- og mennta­kerfið hefur stað­ist próf­raun­ina og verstu hag­spár ekki gengið eftir. En nú þarf áfram­hald­andi hug­rekki, seiglu og úthald til að klára veg­ferð­ina og kom­ast örugg í höfn,“ sagði hún.

Ekki sammála að Alþingi hefði sýnt nægilegt hugrekki

Þá sagði Líneik Anna að Alþingi hefði spilað lyk­il­hlut­verk í því að skila aðgerð­unum áfram og vildi hún hrósa sér­stak­lega þeim þing­mönnum sem mest hefði mætt á í þeirri vinnu.

„Það eru einkum þing­menn í fjár­laga­nefnd, efna­hags- og við­skipta­nefnd og vel­ferð­ar­nefnd sem fjallað hafa um fjölda COVID-mála, þó að engin nefnd hafi verið und­an­skilin í vinn­unni. Að öllum öðrum ólöst­uðum tel ég fjár­laga­nefnd, undir for­ystu hátt­virts þing­manns Willums Þórs Þórs­sonar, hafa unnið þrek­virki á árinu en segja má að nefndin hafi verið sleitu­laust að störfum frá því kreppan skall á okkur í mars. Áfram veg­inn,“ sagði hún.

Logi vék að ræðu Líneikur Önnu í máli sínu og sagði að þegar kæmi að þessu til­tekna máli er varðar fátækt þá hefði Alþingi því miður ekki sýnt nægi­legt hug­rekki. „En það skulum við svo sann­ar­lega að gera.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár