Trump lofar að sekta Mexíkó fyrir innflytjendur og rústa Íslamska ríkinu

Milljarðamæringurinn og forseta­fram­bjóðandinn Donald Trump er hvergi nærri hættur í stórum full­yrðingum og yfir­drifnu tali, þrátt fyrir að undan­farnar vikur hafi hann verið mjög mikið gagn­rýndur, sérstak­lega fyrir það hvernig hann talar um innflytjendur í Banda­ríkjunum.

Trump hélt ræðu fyrir stuðnings­menn sína í Phoenix í gærkvöldi þar sem hann talaði í yfir klukku­stund, meðal annars um það hvað hann sjálfur væri klár. „Þögli meirihlutinn er kominn aftur og við ætlum að endur­heimta þetta land. Við ætlum að gera Banda­ríkin frábær á ný,“ sagði hann í tengslum við innflytjendamál. Hann sagðist lofa því að sekta Mexíkó um hundrað þúsund dollara fyrir hvern einstakling sem kæmi ólöglega til Banda­ríkjanna. Það yrði að stöðva ólöglega innflytjendur og hann væri fram­bjóðandinn sem myndi gera það. Hann sagðist líka geta „rústað“ Íslamska ríkinu með auknum herafla.

Hópur fólks sem hlustaði á ræðu­höldin voru mótmælendur sem settu upp borða sem á stóð „hættu hatrinu“ þegar Trump talaði um innflytjendur. Stuðnings­menn hans umkringdu mótmælendurnar og öryggis­verðir þurftu að grípa inn í. Trump sjálfur brást við mótmælunum með því að spyrja hvort mexíkósk yfirvöld hefðu sent mótmælendurna. „Ég held það. Engar áhyggjur, við tökum landið okkar til baka,“ sagði hann svo við stuðnings­menn sína.

Trump hefur undan­farnar vikur tjáð sig mikið um innflytjendamál, meðal annars hefur hann sagt að ólöglegir innflytjendur séu nauðgarar, og ummæli hans hafa vakið mikla reiði. Fjölmörg fyrirtæki hafa hætt viðskiptum við hann. Hann svaraði þessari gagnrýni í ræðu sinni í gær og kallaði fyrirtæki og einstaklinga öllum illum nöfnum fyrir gagn­rýnina.

„Fjöl­miðlar eru lygarar. Þetta er hræðilegt fólk. Hræðilegt,“ sagði hann líka. „Ekki allir, en margir.“

Andstæðingar hans í Repúblikana­flokknum fengu líka sinn skammt af gagnrýni, ekki síst Jeb Bush, sem Trump sagði hræðilegan og undraðist að þeir væru jafnir í skoðana­könnunum.

Allt útlit er fyrir að Trump verði meðal þeirra fram­bjóðenda flokksins sem taka þátt í fyrstu kapp­ræðunum fyrir forval Repúblikana, en þær fara fram fyrstu vikuna í ágúst. Valið verður að miklu leyti byggt á niður­stöðum skoðana­kannana, en Trump hefur verið að bæta við sig fylgi undan­farið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár