Píratar næst stærsti stjórnmálaflokkurinn, Framsókn missir fylgi

Píratar eru næst stærsti stjórn­mála­flokkur lands­ins sam­kvæmt nýrri könnun Frétta­blaðs­ins. Alls myndu þeir fá 21,9 pró­sent atkvæða ef kosið yrði nú og þing­mönnum flokks­ins fjölga úr þremur í fjórtán. Í blað­inu er haft eftir Helga Hrafni Gunn­ars­syni, þing­manni Pírata, að hann gleðj­ist yfir nið­ur­stöð­unum en að hann taki töl­unum með fyr­ir­vara. „Í fyrsta lagi er ekki sjálf­gefið að þetta komi upp úr kjör­kössum og ekk­ert sjálf­gefið að þetta hald­ist. Það er mik­il­vægt að við ofmetn­umst ekk­ert af þessu.“

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er sem fyrr stærsti flokkur lands­ins og mælist með 28 pró­sent fylgi. Hinn stjórn­ar­flokk­ur­inn, Fram­sókn­ar­flokkur, heldur hins vegar áfram að daga og mælist nú með 10,1 pró­sent fylgi. Hann fékk 24,4 pró­sent atkvæða í síð­ustu alþing­is­kosn­ingum.

Lítill byr virð­ist vera í seglum ann­arra stjórn­ar­and­stöðu­flokka en Pírata. Sam­fylk­ingin mælist með 16,1 pró­sent fylgi, Vinstri græn með 10,4 pró­sent fylgi og Björt fram­tíð er sam­kvæmt skoð­ana­könn­un­inni minnsti stjórn­mála­flokkur lands­ins með full­trúa á þingi með 9,2 pró­sent fylgi. Þeir sem myndu vilja kjósa annað eru 4,3 pró­sent.


Í könn­un­inni var hringt í 1.024 manns þar til 800 svör feng­ust, sam­kvæmt lag­skiptu úrtaki dag­ana 10. og 11. mars. Svar­hlut­falið var því 78,1 pró­sent. Þátt­tak­endur voru valdir með slembi­úr­taki úr Þjóðskrá. Svar­endur skipt­ust jafnt eftir kyni, og hlut­falls­lega eftir búsetu og aldri. Spurt var: Hvaða lista myndir þú kjósa ef gengið yrði til þing­kosn­inga í dag? Ef ekki fékkst svar var spurt: Hvaða flokk er lík­leg­ast að þú myndir kjósa? Ef ekki fékkst svar var spurt: Er lík­legra að þú myndir kjósa Sjálf­stæð­is­flokk­inn, eða ein­hvern annan flokk? Alls tóku 60,8 pró­sent þeirra sem náð­ist í afstöðu til spurn­ing­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár