Danska lögreglan keypti njósnaforrit af Hacking Team fyrir tugi milljóna

Samkvæmt tölvu­póstum ítalska tækni­fyrir­tækisins Hacking Team, sem uppljóstrunar­síðan Wikileaks birti nýverið á vefsíðu sinni, keypti danska lögreglan umdeilt njósna­forrit af fyrir­tækinu. Danska tækni­fréttasíðan Version2 greinir frá málinu.

Eins og fjöl­miðlar hafa greint frá, eru töluvpóstar milli íslenskra lögreglu­manna og Hacking Tema á meðal ríflega milljón tölvu­pósta tækni­fyrir­tækisins sem Wikileaks hefur nú birt. Þar forvitnast lögreglu­mennirnir um sérstakt njósna­forrit sem gerir þriðja aðila kleift að fylgjast með nánast hverju sem er sem viðkomandi gerir á snjall­símann sinn.

Hacking Team hefur verið harðlega gagnrýnt fyrir að búa til njósna­forrit sem gerir aðilum kleyft að brjóta á friðhelgi einka­lífsins. Fyrir­tækið hefur selt forritið til lögreglu­yfirvalda sem og fyrir­tækja.

Samkvæmt umfjöllun Version2 greiddu dönsk lögreglu­yfirvöld Hackint Team 4,2 milljónir danskra króna, eða sem samsvarar hátt í 84 milljónir íslenskra króna, fyrir njósna­forrit sem getur fylgst með snjall­síma- og tölvu­notkun. Talsmaður hjá dönsku lögreglunni hefur staðfest þetta í samtali við Version2.

Njósna­forrit Hacking Team gefur aðgang að tölvu­póstum, myndum og öðrum skrám í viðkomandi snjall­síma eða tölvu, og getur sótt myndbands­upptökur og kveikt á hljóð­nemum án vitundar eigandans.

Samkvæmt gögnum Wikileaks eru lönd eins og Banda­ríkin, Danmörk, Kasakstan, Súdan, Bahrein og Sádi-Arabía á meðal viðskipta­vina Hacking Team. Danska lögreglan hefur verið harðlega gagnrýnd fyrir að hafa verslað jafn umdeildan búnað af ítalska tækni­fyrirtækinu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár