Íslenska fyrirtækið Oculis fær yfir tveggja milljarða fjármögnun

Þrír erlendir sjóðir á sviði heilbrigðis­fjár­festinga hafa lagt félaginu til nýtt hlutafé og verður starfsemin framvegis í Sviss.

Augn­lyfja­þróunar­fyrirtækið Oculis ehf. hefur samið við þrjá leiðandi alþjóð­lega vaxtar­sjóði á heilbrigðis­sviði, Bay City Capital, Novartis Venture Fund og Pivotal bioVenture Partners, um 2,1 milljarðs (CHF 20 milljóna) hlutafjár­aukningu, samhliða því sem nýjar höfuð­stöðvar fyrir félagið verða settar upp í Lausanne í Sviss.

Frá þessu er greint í tilkynningu frá félaginu.

Oculis ehf. á rætur að rekja til Háskóla Íslands og Land­spítala, en félagið var stofnað af Dr. Einari Stef­ánssyni, prófessor í augn­lækningum og Dr. Þorsteini Loftssyni, prófessor í lyfja­fræði. Styrkir Tækni­þróunar­sjóðs og Rannsóknar­sjóðs hafa skipt lykilmáli í uppbyggingu félagsins, m.a. öndvegis­styrkur Tækni­þróunar­sjóðs sem félaginu var veittur í ársbyrjun 2017. Þá lauk Oculis ehf. við fjár­mögnun í júní 2016 sem leidd var af Brunni vaxtar­sjóði og Silfur­bergi ehf., en þessir fjár­festar tóku einnig þátt í núverandi hlutafjár­aukningu.

Starfsemi Oculis byggir á einkaleyfa­varinni tækni, sem gerir mögulegt að meðhöndla sjúkdóma í aftur­hluta augans með augn­dropum. Sjúkdómar í aftur­hluta augans eru í dag meðhöndlaðir með augnástungum og tækni Oculis felur því í sér byltingu fyrir þær tugmilljónir sjúklinga sem þjást af slíkum sjúkdómum. Hlutafjár­aukningunni er ætlað að fjármagna áfram­haldandi klínískar rann­sóknir á OC-118, því lyfi sem lengst er komið í þróun hjá félaginu, auk annarra þróunar­verkefna.

Nýtt félag, Oculis SA, hefur verið stofnað um höfuð­stöðvar félagsins í Sviss og mun það eignast allt hlutafé í Oculis ehf. Rann­sóknar- og þróunar­starfsemi Oculis verður eftir sem áður á Íslandi og verður sú starfsemi efld, m.a. með nýrri rannsóknar­aðstöðu og fjölgun starfs­manna.

Dr. Riad Sherif, sem áður gengdi stöðum yfirmanns hjá alþjóð­lega augn­lækninga­fyrirtækinu Alcon og lyfjarisanum Novartis, mun taka við starfi forstjóra Oculis SA.

Páll Ragnar Jóhannesson mun taka við starfi fjármála­stjóra félagsins ásamt því að gegna stöðu framkvæmda­stjóra Oculis á Íslandi.

Dr. Sabri Markabi, fyrrum yfirmaður rann­sóknar- og þróunar hjá Alcon, mun taka við stöðu þróunar­stjóra. Þá munu stofn­endur Oculis, Dr. Einar Stef­ánsson og Dr. Þorsteinn Loftsson, áfram leiða rann­sóknir og nýsköpun hjá Oculis SA.

Florent Gros, fulltrúi Novartis Venture Fund verður stjórnar­formaður Oculis SA, en auk hans er stjórn félagsins skipuð Árna Blöndal, Stefáni Jökli Sveins­syni, Lionel Carnot, Rob Hopfner, Dr. Þorsteini Loftssyni og Dr. Riad Sherif.

Páll Ragnar segir í tilkynningu að hlutafjár­aukningin sé mikill og stór áfangi fyrir félagið. „Með þessum sterku sjóðum sem koma að félaginu, reynslu þeirra og tengingum, ásamt því að fá Dr. Riad Sherif og Dr. Sabri Markabi til liðs við okkur, erum við að koma Oculis í fremstu röð augn­lyfja­þróunar í heiminum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár