Vill listaverkið Svörtu keiluna fjarri Alþingishúsinu

Þing­maður Mið­flokks­ins segir að það sé eitt­hvað „sér­stak­lega ónota­legt“ við það að minn­is­varði um borg­ara­lega óhlýðni sé beint fyrir framan lög­gjaf­ar­sam­kundu þjóð­ar­innar.

Bergþór Ólason þingmaður Miðflokksins.
Bergþór Ólason þing­maður Mið­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Bergþór Ólason þing­maður Mið­flokks­ins skorar á Birgi Ármanns­son for­seta Alþingis til að hlut­ast til um það að „grjót­hnull­ung­ur­inn“ – lista­verkið Svarta keilan – sem er fyrir utan Alþing­is­húsið verði fjar­lægður.

Frá þessu greindi hann í ræðu á Alþingi í dag en hann hefur áður viðrað þessa skoðun sína á þingi.

Þing­mað­ur­inn rifj­aði upp að í jan­úar árið 2012 hefði verið komið fyrir risa­stórum „grjót­hnull­ungi“ fyrir utan Alþing­is­húsið sem kall­aður var Svarta keilan og átti að vera minn­is­varði um borg­ara­lega óhlýðni eftir lista­mann­inn Santiago Sierra.

Listamaðurinn vildi minna á mikilvægi borgaralegra réttinda í lýðræðissamfélagi

Verkið var fyrst stað­sett á Aust­ur­velli en fljót­lega fært á horn Kirkju­strætis og Thor­vald­sens­strætis. Á vef Lista­safns Reykja­víkur segir að verkið sam­an­standi af 180 sm háum steini sem hefur verið klof­inn í tvennt með svartri keilu sem situr eftir í sprung­unni.

„Keilan vísar til svartra keilu­laga hatta sem spænski rann­sókn­ar­rétt­ur­inn lét sak­fellda menn bera í háð­ung­ar­skyni á 12. öld. Með verk­inu vill lista­mað­ur­inn minna á mik­il­vægi borg­ara­legra rétt­inda í lýð­ræð­is­sam­fé­lagi og þann rétt þegn­anna að neita því að hlýðn­ast órétt­látum lögum og kröfum yfir­valda.

Á minn­is­varð­anum er plata sem á er letruð á íslensku og ensku setn­ing úr Yfir­lýs­ingu um rétt­indi manna og borg­ara sem birt­ist sem for­máli að stjórn­ar­skránni sem franska þingið sam­þykkti árið 1793: „Þegar rík­is­stjórn brýtur á rétti þegn­anna, þá er upp­reisn helgasti réttur og ófrá­víkj­an­leg­asta skylda þegn­anna sem og hvers hluta þjóð­ar­innar.“ Verkið var fyrst sett upp á Aust­ur­velli í jan­úar 2012 í tengslum við yfir­lits­sýn­ingu á heim­ild­ar­kvik­myndum og mynd­böndum Santi­agos Sierra í Hafn­ar­húsi,“ segir á vef Lista­safns­ins.

Að sýn­ing­unni lok­inni bauð lista­mað­ur­inn Reykja­vík­ur­borg minn­is­varð­ann að gjöf og það þáði borg­ar­stjórn.

„Stað­setn­ing verks­ins við alþing­is­húsið og Aust­ur­völl er vel við hæfi því að alþing­is­húsið er helsta tákn lýð­ræðis á Íslandi og Aust­ur­völlur er stað­ur­inn þar sem almennir borg­arar koma saman til að mót­mæla þegar þeim þykir rík­is­valdið beita þá órétti. Verkið teng­ist umhverf­inu einnig í efn­isvali því að steinn­inn er grá­grýti eins og alþing­is­húsið sjálft og stöp­ull­inn undir styttu Jóns Sig­urðs­sonar,“ segir enn fremur á vef Lista­safns­ins.

Vonast til þess að þingmenn komi að „grjóthreinsuðum Austurvelli“ í haust

Bergþór sagði í ræðu sinni að for­sætis­nefnd hefði alla tíð verið skyn­sam­lega þenkj­andi í þessu máli án þess að ná fram því mark­miði að hreinsa Aust­ur­völl af „þess­ari óværu“.

Hann hvatti for­seta Alþingis að horfa til þess að nýta sum­arið til að taka til framan við Alþing­is­húsið, að eiga sam­tal, ann­að­hvort sjálfur eða fá emb­ætt­is­mönnum það verk­efni, við Reykja­vík­ur­borg þar sem fund­inn yrði flötur á því að fjar­lægja „þetta svo­kall­aða lista­verk“ sem væri „hrein­asta hörm­ung“ í augum býsna margra.

„Það er eitt­hvað sér­stak­lega ónota­legt við það að minn­is­varði um borg­ara­lega óhlýðni sé beint fyrir framan lög­gjaf­ar­sam­kundu þjóð­ar­innar.“

Hann sagð­ist að end­ingu von­ast til þess að þing­menn kæmu að „grjót­hreins­uðum Aust­ur­velli“ í haust.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár