Forsætisráðherra: „Alþingi hefur viljað styrkja réttarstöðu fjölmiðla“

Þing­maður Pírata segir þögn for­sæt­is­ráð­herra í máli fjög­urra blaða­manna sem eru með stöðu sak­born­ings eft­ir­tekt­ar­verða þar sem um grund­vall­ar­mann­rétt­indi sé að ræða. For­sæt­is­ráð­herra segir Alþingi alltaf hafa viljað styrkja rétt­ar­stöðu fjöl­miðla.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.
Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

„Alþingi hefur viljað styrkja rétt­ar­stöðu fjöl­miðla.“ Þetta full­yrti Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra á Alþingi í morgun.

Tilefnið var rann­sókn lög­regl­unnar á Norð­ur­landi eystra sem snýst um umfjöllun Kjarnans og Stund­ar­innar um hina svoköll­uðu „Skæru­liða­deild Sam­herj­a“.

Arndís Anna Krist­ín­ar­dóttir Gunn­ars­dóttir, þing­maður Pírata, spurði for­sæt­is­ráð­herra út í þögn hennar í mál­inu, þar sem fjórir blaða­menn hafa verið með stöðu sak­born­ings frá því febr­úar vegna rann­sóknar lög­reglu á meintu broti á frið­helgi einka­lífs­ins. Annar ráð­herra rík­is­stjórn­ar­innar, Bjarni Bene­dikts­son, hefur í tvígang skrifað færslu á Facebook vegna máls­ins þar sem hann sagði meðal ann­ars umfjöllun um rann­sókn á störfum blaða­manna vera á for­sendum þeirra sjálfra og spurði einnig hvort það mætti „gera þá kröfu að allir séu jafnir fyrir fjöl­miðl­unum líka?“

Þórður Snær Júl­í­us­­son rit­­stjóri Kjarn­ans og Arnar Þór Ing­­ólfs­­son, blaða­­maður mið­ils­ins, hafa frá því í febr­úar verið með stöðu sak­­born­ings við rann­­sókn lög­­regl­unnar á Norð­­ur­landi, á meintu broti á frið­­helgi einka­lífs­ins. Aðal­­­steinn Kjart­ans­­son, blaða­­maður á Stund­inni, og Þóra Arn­órs­dótt­ir, rit­stjóri Kveiks, eru söm­u­­leiðis með stöðu sak­­born­ings í mál­inu. Aðal­steinn, Þórður Snær og Arnar Þór skrif­uðu umfjall­anir um „skæru­liða­deild Sam­herja“ í maí í fyrra en Kveikur tók málið ekki til umfjöll­un­ar.

Yfir­heyrslur yfir blaða­mönn­unum fjórum fóru fram í sumar. Aðal­steinn og Þórður birtu í gær, hvor á sínum miðli, grein­ar­gerð um málið eins og það horfir við þeim eftir að hafa fengið afhent rann­sókn­ar­gögn máls­ins.

Eftirtektarverð þögn sem yfirmaður málaflokks mannréttinda

Arndís Anna beindi fyr­ir­spurn sinni að for­sæt­is­ráð­herra í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma á Alþingi í morgun og benti á að við end­ur­nýjun rík­is­stjórn­ar­sam­starfs­ins í lok síð­asta árs gerð­ist for­sæt­is­ráð­herra jafn­framt yfir­maður mála­flokks mann­rétt­inda og mann­rétt­inda­samn­inga.

„Þess vegna hefur þögn hæst­virts for­sæt­is­ráð­herra í þessu máli verið eft­ir­tekt­ar­verð. Hér eru undir grund­vall­ar­mann­rétt­indi. Tján­ing­ar­frelsi blaða­manna, lífæð lýð­ræð­is­ins. Lög­reglan mis­notar vald sitt til að þagga niður í blaða­mönnum fyrir að flytja fréttir. Hæst­virtur fjár­mála­ráð­herra mætti á sviðið til að segja fjöl­miðla­mönnum að hunskast bara í yfir­heyrslur og hætta að vera svona góð með sig,“ sagði Arndís Anna og spurði for­sæt­is­ráð­herra hvort hún hefði engar áhyggjur af þess­ari atburða­rás. „Telur hún ekk­ert athuga­vert við vinnu­brögð lög­regl­unnar eða er hún sam­mála afstöðu hæst­virts fjár­mála­ráð­herra? “

For­sæt­is­ráð­herra sagð­ist ekki hafa þagað um þessi mál. „Ég hef sömu­leiðis látið verkin tala þegar skoðað er til dæmis þau laga­á­kvæði sem vitnað er til í þess­ari umræðu um vernd heim­ilda­manna,“ sagði Katrín og minnt­ist á ákvæði sem komu inn í lög að hennar frum­kvæði árið 2011 inn í lög um fjöl­miðla „þar sem rétt­ar­staða blaða­manna var bætt veru­lega.“

For­sæt­is­ráð­herra sagði þing­mann­inn því ekki þurfa að velkj­ast í vafa um afstöðu hennar til máls­ins. „Alþingi hefur viljað styrkja rétt­ar­stöðu fjöl­miðla.“

Katrín sagði einnig að lög­reglan verði að vera með­vituð um það að allar rann­sókn­ar­að­gerðir sem bein­ast gegn fjöl­miðlum geta haft fæl­ing­ar­á­hrif gagn­vart þeim fjöl­miðlum. „Því ber lög­regl­unni að fara sér­stak­lega var­lega þegar um er að ræða frjálsa fjöl­miðla sem eru að fjalla um við­kvæm mál í sam­fé­lag­inu í sínum rann­sóknum.“

Tveir þeirra blaða­­manna sem eru með stöðu sak­­born­ings í rann­­sókn lög­­regl­unnar á Norð­­ur­landi eystra starfa á Kjarn­an­­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár