Moody's hækkar lánshæfiseinkunn ríkissjóðs

Alþjóð­lega lánshæfis­mats­fyrirtækið Moody's hefur hækkað lánshæfis­einkunn ríkis­sjóðs úr Baa3 í Baa2. Í frétta­tilkynningu frá Moody's kemur fram að ákvörðun um hækkun lánshæfismatsi byggist á þremur lykil­þáttum, að því er segir á vef Seðla­banka Íslands.


  1. Vandlega undir­búnar aðgerðir hafa verið kynntar til að losa fjármagns­höft sem gera ráð fyrir að draga úr viðkvæmri erlendri stöðu þjóðar­búsins samhliða því að standa vörð um efnahags­legan og fjármála­legan stöðug­leika.

  2. Væntingar um bætta skulda­stöðu Ríkis­sjóðs Íslands á næstu þremur til fjórum árum vegna öflugs hagvaxtar, frekara aðhalds í ríkis­fjármálum og fyrir­fram­greiðslu skulda ríkis­sjóðs.

  3. Bætt umgjörð þjóðhags- og eindar­varúðar­reglna sem miða að því að varðveita fjármála­stöðugleika til framtíðar.


Moody's hefur einnig hækkað lands­ein­kunn­ina fyrir erlendar skuldir til langs tíma og skamms tíma og inn­stæður í Baa2/P-2 úr Baa3/P-3 og lands­ein­kunn­ina fyrir skuldir og inn­stæður í inn­lendri mynt í Baa1 úr Baa2.

Moody's gerir ráð fyrir að ríkis­sjóður muni fá á bilinu 400 til 500 milljarða króna út úr áætluninni um losun fjármagns­hafta, og að skulda­staða ríkis­sjóðs muni lagast verulega verða á bilinu 20 til 25 prósent af lands­framleiðslu þegar fram í sækir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár