„Samstarfið hefti mig í að vinna af fullum krafti“

Andrés Ingi Jónsson útskýrir ákvörðun sína að hætta í þing­flokki Vinstri grænna.

Andrés Ingi Jónsson
Andrés Ingi Jónsson Mynd: Birgir Þór Harðarson

„Síð­ast­liðin tvö ár hef ég upp­lifað að sam­starfið hefti mig í að vinna af fullum krafti fyrir þeim hug­sjónum sem ég var kos­inn fyrir. Nú er svo komið að ég tel full­reynt að ég geti sinnt þing­störfum eftir sam­visku minni og sann­fær­ingu við núver­andi aðstæður.“

Þetta ritar Andrés Ingi Jónsson, þing­maður utan flokka, á Facebook-síðu sinni en fram kom í fréttum í dag að hann hefði sagt sig úr þing­flokki Vinstri grænna.

Hann segir enn fremur í færslu sinni á Facebook að um þessar mundir séu tvö ár síðan flokks­ráð Vinstri grænna sam­þykkti að mynda rík­is­stjórn með Sjálf­stæð­is­flokki og Framsókn. „Sú ákvörðun var nógu umdeild til að fjöldi félaga sagði skilið við hreyf­ing­una. Þrátt fyrir að ég hafi ekki stutt rík­is­stjórn­ina á flokks­ráðs­fundi ákvað ég að starfa áfram innan þing­flokks VG – ekki síst til að styðja hina ágætu ráð­herra Vinstri grænna til góðra verka.“

„Eins og við var að búast hefur verið nokkur áskorun að takast á við sam­skipti og sam­starf í þing­flokknum eftir þann ágrein­ing sem stjórn­ar­sam­starfið skap­aði. Þó tel ég að við höfum öll lagt okkur fram um að vinna sem best saman.

Það hafa á þessu tíma safn­ast upp dæmi sem mér þykja til marks um það sem ég ótt­að­ist í upp­hafi: að Vinstri græn ættu sífellt erf­iðar með að veita sam­starfs­flokk­unum mót­spyrnu og stjórn­ar­sam­starfið færð­ist enn fjær því sem flokk­ur­inn ætti að standa fyrir. Vissu­lega höfum við náð árangri en oft hafa mála­miðl­anir fallið fjarri okkar hug­sjónum, eins og birt­ist til að mynda í stjórn­ar­frum­varpi um útlend­inga á liðnu vori. Aðkallandi aðgerðir til að sporna við ham­fara­hlýnun hafa ekki gengið jafn langt og ég tel nauð­syn­legt og sjálf­sagt í rík­is­stjórn undir for­ystu grænnar hreyf­ingar,“ skrifar hann.

Í lok færsl­unnar þakkar hann félögum sínum í þing­flokki Vinstri grænna sam­fylgd­ina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár