Ákvörðun um að svipta Kleifabergið veiðileyfi vegna brottkasts felld úr gildi

Atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neytið hefur fellt úr gildi ákvörðun Fiski­stofu að svipta skipið Kleifa­berg RE-70 um leyfi til veiða í atvinnu­skyni í 12 vikur vegna meints brott­kasts afla.

Kleifaberg RE.
Kleifa­berg RE. Mynd: Anna K. Kristjánsdóttir

Atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neytið hefur fellt úr gildi ákvörðun Fiski­stofu frá því í jan­úar síð­ast­liðnum um að svipta skipið Kleifa­berg RE-70 um leyfi til veiða í atvinnu­skyni.

Fiski­­stofa hafði svipt tog­ar­ann, sem er gerður út af Útgerð­­ar­­fé­lag­i Reykja­vík­ur, leyfi til fisk­veiða í atvinn­u­­skyni í tólf vikur vegna brott­kasts. Svipt­ingin tekur gildi frá og með 4. febr­­ú­­ar.

Ákvörð­unin var dag­­sett 2. jan­ú­­ar. Frétta­­skýr­inga­þátt­­ur­inn Kveikur fjall­aði ítar­­lega um brott­kastið í þætti sem var sýndur í nóv­­em­ber 2017. ­Út­gerð­ar­fé­lag Reykja­víkur gaf sam­stundis út að það ætl­aði að kæra svipt­ing­una til­ at­vinnu- og nýsköð­un­ar­ráðu­neyt­is­ins en félagið segir að leyf­is­svipt­ingin sé í raun „dauða­dóm­ur“ yfir Kleifa­berg­i. 

Nú hefur ráðu­neytið kom­ist að nið­ur­stöðu sinni og fellt ákvörðun Fiski­stofu úr gildi. Í frétta­til­kynn­ingu frá atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu segir að Fiski­stofa hafi byggt ákvörðun sína á grund­velli þess sem sást á fimm inn­sendum mynd­skeiðum. „Fjögur mynd­skeið­anna voru frá árinu 2008 og 2010 og eitt frá árinu 2016. Í ljósi þess hve langur tími leið frá meintum brotum, 8 – 10 ár, þar til kær­anda var til­kynnt um að málið væri til með­ferðar hjá Fiski­stofu taldi ráðu­neytið að það væri í and­stöðu við með­al­hófs­reglu stjórn­sýslu­laga að beita við­ur­lögum vegna meintra brota. Ráðu­neytið felldi því ákvörðun Fiski­stofu úr gildi að því leyti sem hún laut að meintum brotum frá árinu 2008 og 2010.“

Varðandi mynd­skeið frá árinu 2016, hafn­aði ráðu­neytið túlkun Fiski­stofu á gild­andi lögum um að það telj­ist vera brott­kast þrátt fyrir að um sé að ræða eign­ar­spjöll af hálfu áhafn­ar­með­lims. „Ráðu­neytið úrskurðar að Fiski­stofu hafi borið að rann­saka betur hvort um eign­ar­spjöll hafi verið að ræða fremur en brott­kast. Ráðu­neytið taldi því að rann­sókna­regla 10. gr. stjórn­sýslu­laga hefði verið brotin og vís­aði þessum hluta máls­ins aftur til með­ferðar hjá Fiski­stofu.“

yrr­ver­andi skip­verji kom mynd­skeið­unum til Fiski­stofu

Það var fyrr­ver­andi skip­verji á Kleifa­bergi sem afhenti mynd­skeið til Fiski­stofu í des­em­ber 2017 sem hann sagð­ist hafa tekið um borð í Kleif­ar­berg og sýndi hvernig fiski sem komið hafði um borð í skipið með veið­ar­færum var kastað aftur í sjó­inn. Líkt og áður sagði var um að ræða mynd­skeið frá árunum 2008, 2010 og 2016.

Frétta­skýr­inga­þátt­ur­inn Kveikur fjall­aði um þessi mynd­skeið í þætti sem sýndur var í nóv­em­ber 2017. Í úrskurði Fiski­stofu frá því í jan­úar var vikið sér­stak­lega að þessum þætti Kveiks og tekið fram að á fundi með lög­fræð­ingi Fiski­stofu hafi skip­verj­inn fyrr­ver­andi sagt að brott­kastið um borð í Kleif­arberg­i hefði í öllum til­vikum verið sam­kvæmt fyr­ir­mælum frá skip­stjóra og stýri­manni.

Fiski­stofa taldi að útgerðin hafi haft fjár­hags­legan ávinn­ing af brott­kast­inu

Í úrskurði Fiski­stofu sagði að talið væri að útgerðin hefði haft fjár­hags­legan ávinn­ing af því að kasta fiski fyrir borð sem ann­ars yrði til að tefja vinnslu um borð eða sem full­nægði ekki kröfum útgerð­ar­inn­ar. ­Miklu magni af fiski hafi verið hent með vit­und og sam­kvæmt fyr­ir­mælum skip­stjóra. Einnig mætti ganga út frá því, eins og atvikum var lýst, að um ásetn­ings­brot hafi verið að ræða.

„Ég hef aldrei gefið fyr­ir­skipun um brott­kast, það er engin útgerð­ar­maður sem gefur fyr­ir­skipun um brott­kast­ið,“ sagði Guð­mundur Krist­jáns­son, þáver­andi útgerð­ar­stjóri Brims, sem gerði þá út Kleif­a­berg, í við­tali við RÚV í nóv­em­ber 2017.

Útgerðin taldi mála­til­búnað Fiski­stofu ekki standast

Í yfir­lýs­ingu frá Útgerð­ar­fé­lagi Reykja­víkur eftir að úrskurð­ur­inn féll kom fram að hann yrði kærður til atvinnu­vega- og ný­sköp­un­ar­ráðu­neyt­is­ins. Félagið taldi sig ekki hafa fengið rétt­láta máls­með­ferð hjá Fiski­stofu sem hafi bæði rann­sakað meint brot og fellt úrskurð. „Við erum alveg miður okkar yfir þess­ari ákvörðun og teljum hana ranga,“ sagði Run­ólfur Viðar Guð­munds­son, fram­kvæmda­stjóri hjá Útgerð­ar­fé­lags Reykja­vík­ur. Hann sagði að ekki hefði verið tekið til­lit til sjón­ar­miða og rök­semda félags­ins við rann­sókn máls­ins.

Útgerðin taldi mála­til­búnað Fiski­stofu ekki stand­ast en úrskurður hennar byggi á lýs­ingu eins manns og mynd­skeiðum sem auð­velt væri að eiga við og bjaga. Þá taldi útgerð­ar­fé­lagið að þau meintu brot sem Fiski­stofa telur að hafi verið framin á árunum 2008 og 2010 væru löngu fyrnd.

Enn fremur hafi eitt mynd­skeið­anna verið kært til lög­reglu enda væri það falsað að mati sér­fræð­inga útgerð­ar­inn­ar.

„Þetta eru gríð­ar­lega hörð við­ur­lög, í raun dauða­dómur yfir Kleifa­bergi RE-70. Kleifa­berg hefur verið meðal feng­sæl­ustu fiski­skipa íslenska flot­ans. Afli skips­ins frá árinu 2007 hef­ur­verið tæp 100.000 tonn og afla­verð­mæti yfir 30 millj­arðar króna á núvirði. Lang stærsti hlut­i þessa frá­bæra árang­urs má þakka yfir­burða áhöfn á skip­inu. Ef skipið stoppar í 3 mán­uði eru allar líkur á að sjó­menn á Kleifa­bergi fái vinnu á öðrum skip­um. Með þess­ari ákvörðun er verið að leggja niður 52 manna vinnu­stað,“ sagði Run­ólfur Viðar í yfir­lýs­ingu útgerð­ar­fé­lags­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár