Fjórðungur bankastarfsmanna með yfir milljón á mánuði

Banka­starfs­menn leggja mesta áherslu á stytt­ingu vinnu­viku í yfir­stand­andi kjara­samn­ingum. Meðaltal heild­ar­launa þeirra eru 838 þús­und krónur á mán­uði. Hjá Eflingu er launa­hækkun lang­mik­il­væg­asta bar­áttu­málið, enda með­al­laun þar 479 þús­und.

Alls eru 24,7 pró­sent allra starfs­manna í fjár­mála­fyr­ir­tækjum með yfir eina milljón króna í laun á mán­uði. Þar af eru 12,6 pró­sent með meira en 1,2 millj­ónir króna á mán­uði en ekki er greint frekar hversu há laun þess hóps eru yfir eru.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í kjara­könnun sem Gallup gerði fyrir Samtök starfs­manna fjár­mála­fyr­ir­tækja (SSF) í októ­ber í fyrra. Alls tóku 2.786 félags­menn sam­tak­ana þátt, sem þýðir að þátt­takan var 74 pró­sent. Samkvæmt frétt á heima­síðu SSF gefur könn­unin „mjög ábyggi­lega mynd af kaupi og kjörum félags­manna“. Þorri félags­manna í sam­tök­unum vinnur hjá bönkum lands­ins.

Í könn­un­inni kom meðal ann­ars fram að með­al­tals­laun starfs­manna í fjár­mála­fyr­ir­tækjum hafi verið 838 þús­und krónur á mán­uði í októ­ber í fyrra. Þau höfðu hækkað úr 692 þús­und í febr­úar 2006, eða um 21 pró­sent. Á sama hækk­aði launa­vísi­talan um 18,7 pró­sent.

Þeir sem skil­greindir voru sem „hærri stjórn­endur“, alls 169 þeirra sem svör­uðu könn­un­inni, voru með tæp­lega 1,5 millj­ónir króna að með­al­tali í laun á mán­uði. Hösk­uldur Ólafsson, banka­stjóri Arion banka, er lík­ast til launa­hæsti banka­maður lands­ins. Hann var með rúm­lega 6,2 millj­ónir króna í laun á árinu 2018.

til sam­an­burðar má nefna að mið­gildi heild­ar­launa á Íslandi á árinu 2017 var 618 þús­und krónur, sem þýðir að helm­ingur launa­manna var með laun undir þeirri upp­hæð. Laun Hösk­uldar eru því tíföld sú upp­hæð.

Leggja mesta áherslu á styttri vinnuviku

Flestir hátt laun­aðir starfs­menn fjár­mála­fyr­ir­tækja eru ánægðir með launin sín, en ekki allir. Þannig sýndi könn­unin að um tíu pró­sent þeirra sem eru með yfir eina milljón króna í laun á mán­uði séu óánægð með það sem þau fá útborgað.

Könnunin sýnir einnig að fleiri starfs­menn fjár­mála­fyr­ir­tækja leggja áherslu á stytt­ingu vinnu­tíma (41,9 pró­sent) en hækkun launa (39,1 pró­sent) í yifr­stand­andi kjara­samn­ingum. Í sam­bæri­legri könnun sem Gallup gerði fyrir Eflingu, og kynnt var í des­em­ber í fyrra, kom fram að 61 pró­sent félags­manna þar vildi leggja mesta áherslu á hækkun launa og 15 pró­sent á hús­næð­is­mál. Einungis ell­efu pró­sent töldu stytt­ingu vinnu­tíma vera mik­il­væg­asta kjara­málið. Hjá Eflingu voru enda með­a­tals­heild­ar­laun félags­manna sem voru í 100 pró­sent starfi 479 þús­und krónur. Það þýðir að meðal heild­ar­launa þeirra sem starfa í fjár­mála­geir­anum eru 75 pró­sent hærri en félags­manna í Eflingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár