Bókanir gengu á víxl vegna rekstrarniðurstöðu Kópavogsbæjar

Alls voru sex bókanir færðar í fundar­gerð bæjarráðs Kópa­vogsbæjar ás fimmtudag þar sem hart var tekist á um rekstrar­niðurstöðu bæjarins.

Kópavogur
Kópa­vogur Mikil átök voru í bæja­ráði um rekstr­ar­nið­ur­stöðu bæj­ar­ins. Mynd: Golli

Hart var tekist á um hvort rekstur Kópa­vogsbæjar væri sjálfbær eða ekki á fundi bæjarráðs á fimmtudag og gengu bókanir á víxl á fundinum. Meirihluti Sjálfstæðis­flokks og Fram­sóknar lagði fram ársreikning Kópa­vogsbæjar fyrir síðasta ár og sagði jafnframt að árin 2024 og 2025 væru tvö bestu rekstrarár Kópavogs í 18 ár. Rekstrar­niðurstaðan var jákvæð um 4,6 milljarða króna.

Minni­hlutinn, sem samanstendur af Viðreisn, Samfylkingu, Pírötum og Vinum Kópavogs, bókar sérstak­lega að þessi niður­staða sé tilkomin vegna lóðasölu og segir fátt um raun­verulega rekstrar­niðurstöðu bæjarins.

Vinir Kópavogs og ViðreisnHelga Jóns­dóttir í Vinum Kópavogs og Theodóra S. Þor­steins­dóttir, odd­viti Við­reisnar eru á meðal þeirra sem bók­uðu vegna máls­ins.

„Rekstur Kópa­vogsbæjar er ekki sjálfbær án lóðasölu,“ segir í bókuninni. Því næst segir: „Fulltrúar minni­hlutans í bæjar­stjórn Kópavogs vekja athygli á að hefð­bundinn rekstur bæjarins stendur ekki undir sér. Samkvæmt …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár