Segir stöðuna á BUGL óásættanlega

Mennta- og barna­mála­ráð­herra segir að bið­tím­inn á barna- og ung­linga­geð­deild Land­spít­ala (BUGL) sé algjör­lega óásætt­an­legur. Þing­maður Pírata spurði ráð­herr­ann á þingi hvænær far­sæld­ar­lögin færu að skila árangri.

Ásmundur Einar Daðason mennta- og barnamálaráðherra.
Ásmundur Einar Daðason mennta- og barna­mála­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Ásmundur Einar Daðason mennta- og barna­mála­ráð­herra og Björn Leví Gunn­ars­son þing­maður Pírata ræddu bið­tíma á barna- og ung­linga­geð­deild Land­spít­al­ans (BUGL) í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í vik­unni og svokölluð far­sæl­ar­lög þar sem meg­in­mark­miðið er að börn og for­eldrar sem á þurfa að halda hafi aðgang að sam­þættri þjón­ustu við hæfi án hind­r­ana.

Björn Leví hóf fyr­ir­spurn sína á að benda á að þann 12. júní 2019 hefði verið sam­þykkt á þingi fram­kvæmda­á­ætlun í mál­efnum barna. Allir greiddu atkvæði með áætl­un­inni sem var kostn­að­ar­metin upp á rúma 1,2 millj­arða króna.

„Ég finn að vísu ein­ungis um 800 millj­ónir í fjár­lögum síðan þá. Áætlunin sner­ist meðal ann­ars um sam­starf og heild­ar­sýn í mál­efnum barna, snemmtæka íhlutun og fyr­ir­byggj­andi aðgerðir,“ sagði hann.

Meðalbiðtími um sjö og hálfur mánuður

Björn Leví greindi frá því að starfs­fólk BUGL hefði komið á fund vel­ferð­ar­nefndar í vik­unni og kynnt starf­semi sína og óásætt­an­legan bið­tíma eftir með­ferð. „Með­al­bið­tími er um sjö og hálfur mán­uður og aukn­ing hefur verið í bráða­til­fellum í COVID sem hefur slæm áhrif á þann biðlista. Helstu skila­boð starfs­fólks­ins til okkar voru að efla ætti fyr­ir­byggj­andi aðgerðir.“

Benti hann jafn­framt á að fram­kvæmda­á­ætl­unin næði ein­ungis út þetta ár, 2019 til 2022, og að ein­sýnt væri að ekki næð­ist að klára öll þau verk­efni sem eru til­greind í þeirri áætlun.

„Það er til dæmis ekki einu sinni búið að taka fyrstu skóflustung­una að nýju með­ferð­ar­heim­ili í Garðabæ enn. Það er enn áhuga­verð­ara að ný fram­kvæmda­á­ætlun í mál­efnum barna er ekki á þing­mála­skrá rík­is­stjórn­ar­innar. Ef fjár­magna ætti nýja áætlun ætti hún að vera til­búin í vor til að hægt sé að taka til­lit til hennar í fjár­mála­á­ætlun og í fjár­lögum næsta árs.

Miðað við þetta, óljósar fjár­heim­ildir vegna fram­kvæmda­á­ætl­unar, að fram­kvæmda­á­ætlun er ekki að klár­ast, það vantar nýja fram­kvæmda­á­ætlun og það er fjöldi bráða­til­fella hjá BUGL og biðlistar lengj­ast, spyr ég: Hvenær megum við eiga von á því að far­sæld­ar­lögin fari að skila árangri? Er það á þessu ári, á næsta ári, eftir fimm ár? Ráðherra hlýtur að vita það með nægi­legri nákvæmni til að geta sagt okkur það hér og nú: Hvenær fara far­sæld­ar­lögin að skila árangri og með­ferð­ar­úr­ræði á fyrsta og öðru stigi að hafa áhrif á það að við þurfum í raun ekki að nýta þriðja stigið?“ spurði hann.

„Ég verð að segja að ég er mjög óþolinmóður maður“

Ásmundur Einar svar­aði og sagði að staðan á BUGL væri óásætt­an­legt. „Í lok síð­asta kjör­tíma­bils vorum við búin að vinna sam­eig­in­lega vinnu, félags­mála­ráðu­neytið og heil­brigð­is­ráðu­neytið, varð­andi grein­ingu á þeim málum og biðlista almennt og ég og nýr heil­brigð­is­ráð­herra höfum rætt með hvaða hætti við förum inn í það mál. Ég hef fulla trú á því að hægt verði að ná mjög vel utan um þau mál, af því að þessi bið­tími er alger­lega óásætt­an­legur.“

Varðandi fyr­ir­spurn­ina sjálfa þá sagði ráð­herr­ann að það væri hár­rétt hjá Birni Leví að hugs­unin á bak við far­sæld­ar­lög­gjöf­ina væri að grípa fyrr inn í til að draga úr þriðja stigs úrræðum og þeim þáttum.

„Ég verð að segja að ég er mjög óþol­in­móður maður. Lögin tóku gildi 1. jan­úar og ég myndi gjarnan vilja að við gætum látið þetta allt saman taka gildi einn, tveir og þrír. Það fjár­magn til að mynda sem rennur til sveit­ar­fé­laga, hluti af fjár­magn­inu rennur til sveit­ar­fé­laga og hluti til ríkis, samn­ingum sem tengj­ast því er lokið. Það er búið að ljúka útfærslu á því og nýbúið að klára þá skipt­ingu þannig að það rennur til sveit­ar­fé­lag­anna. Það er gríð­ar­lega mik­il­vægt að fara í sam­tal við skóla­kerfið, leik­skóla­kerfið og fram­halds­skól­ana.

Við erum byrjuð að ræða það mjög stíft núna við þá aðila sem þar eru en auð­sjá­an­lega hefur COVID-far­ald­ur­inn tals­verð áhrif vegna þess að það hefur ekki mikið annað kom­ist að í skóla­kerf­inu en að leysa dag frá degi úr málum vegna sam­komu­tak­mark­ana. Vænt­ingar mínar standa til þess að á þessu ári förum við að sjá ákveð­inn árangur skila sér í því að við brjótum niður múra og getum gripið fyrr inn í og boðið upp á fyrsta og ann­ars stigs úrræði. En við þurfum að vera með­vituð um að það mun taka þessa breyt­ingu, sem þarf að teygja sig inn í alla anga í þjón­ustu við börn og ung­menni, þrjú til fimm ár að skila fullum árangri og það var mark­miðið og upp­leggið í laga­frum­varp­inu þegar það var sam­þykkt hér síð­asta vor,“ sagði hann.

Vandinn er að núvernandi framkvæmdaáætlun kláraðist ekki

Björn Leví þakk­aði í fram­hald­inu skýr svör. „Á þessu ári eigum við að fara að byrja að sjá ein­hver við­brögð og á þremur til fimm árum verður komin full inn­leið­ing. Vandinn sem ég sé og ástæðan fyrir því að ég spyr er að núver­andi fram­kvæmda­á­ætlun klárað­ist ekki. Þá seinkar óhjá­kvæmi­lega öllu öðru síðar í ferl­inu, allri annarri inn­leið­ingu. Eins og staðan er núna þarf barn sem líður illa að bíða í rúma sjö mán­uði eftir aðstoð,“ sagði hann.

„Við vinnsl­una lagði ráð­herra mikla áherslu á að reikna sparn­að­inn sem fælist í því að grípa börn snemma, áður en vand­inn yrði of stór, til þess að við þyrftum ekki þriðja stigs úrræðin, sem kosta mikið og barnið er komið á gríð­ar­lega skað­legan stað þegar svo er komið. Við eigum í vanda­málum með ákveðna mönnun í þessum úrræðum þannig að þegar allt kemur til alls, hvernig getur ráð­herra sann­fært okkur um að inn­leið­ing­unni verði lokið eftir þrjú til fimm ár?“ spurði Björn Leví.

Þurfa að endurskipuleggja öll úrræðin

Ásmundur Einar svar­aði í annað sinn og sagð­ist taka undir með þing­mann­inum þegar hann velti fyrir sér hvernig hægt væri að sann­færa þing­heim um að ljúka inn­leið­ing­unni.

„Ég held að það sé hægt að gera það með því að vera í sam­felldu sam­starfi við þingið. Hluti af lög­gjöf­inni felst í því að kjósa sér­staka þing­manna­nefnd sem á að vinna með ráðu­neyt­inu að inn­leið­ing­unni, þannig að við munum gera allt sem við getum til að ljúka inn­leið­ing­unni að fullu. En það er alveg rétt hjá hátt­virtum þing­manni að það er þungur endi sem eru þriðja stigs úrræði í dag og við þurfum að fara ofan í það í bráð, þ.e. bráða­vanda á ein­staka stofn­unum, BUGL og fleirum, en líka með hvaða hætti við ætlum að sjá úrræðin á þriðja stig­inu.

Við þurfum að end­ur­skipu­leggja þau öll. Við hófum þá vinnu í lok síð­asta kjör­tíma­bils og höldum henni áfram núna vegna þess að það skortir líka sam­tal þar á milli. Það er oft þannig að barn sem er á einum stað velk­ist á nokkrum öðrum stöðum í við­bót. Þannig að lög­gjöfin mun líka auð­velda þriðja stigs end­ann á úrræð­unum. Þess vegna leggjum við alla áherslu á inn­leið­ingu þess­arar lög­gjafar og það verður meg­in­verk­efni nýs mennta- og barna­mála­ráðu­neytis að inn­leiða hana,“ sagði ráð­herr­ann og þakk­aði Birni Leví fyrir fyr­ir­spurn­irnar og orða­skiptin um þetta mál.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár