Bláu blokkinni boðið upp í dans

For­sæt­is­ráð­herra Dan­merkur og leið­togi Sós­í­alde­mókra­ta­flokks­ins viðr­aði hug­myndir um stjórn­ar­sam­starf yfir miðj­una á dög­unum. Breið stjórn hefur ein­ungis verið reynd einu sinni á frið­ar­tímum í Danmörku og end­aði ekki vel, en kjós­endum hugn­ast hug­myndin.

Mette Frederiksen forsætisráðherra Danmerkur og formaður Sósíaldemókrataflokksins.
Mette Frederik­sen for­sæt­is­ráð­herra Dan­merkur og for­maður Sós­í­alde­mókra­ta­flokks­ins. Mynd: EPA

Löng hefð er fyrir því í Danmörku að flokkar á vinstri og hægri væng stjórn­mál­anna starfi ekki saman að stjórn lands­ins, heldur skipt­ist í rauðar og bláar „blokkir“ innan þings­ins, sem sam­ein­ist um stjórnir í aðra hvora átt­ina, sem þó stundum njóta stuðn­ings flokka sem standa á miðj­unni og eru opnir í báða enda.

Eina til­raunin sem gerð hefur verið í Danmörku til stjórn­ar­sam­starfs yfir miðj­una á frið­ar­tímum var gerð árið 1978. Þá mynd­uðu hægri­flokk­ur­inn Venstre og Sós­í­alde­mókratar saman stjórn undir for­sæti Anker Jørg­en­sen. Sú til­raun gekk afleit­lega, en stjórnin hékk saman í litlu meira en ár.

Óvænt útspil Frederiksen

Nú seg­ist Mette Frederik­sen, for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Sós­í­alde­mókra­ta­flokks­ins, til­búin að breyta út frá venj­unum í dönskum stjórn­málum og vinna yfir miðj­una í rík­is­stjórn­ar­sam­starfi. Hún rit­aði grein í Jót­land­s­póst­inn á stjórn­ar­skrár­dag Dan­merkur, 5. júní, sem ekki var hægt að túlka á annan máta en sem boð frá dönskum jafn­að­ar­mönnum um mögu­legt sam­starf við flokka innan bláu blokk­ar­innar.

[adspot]

Í við­tali sem hún átti við blaðið sama dag sagði hún að flokkur hennar vildi opna umræðu um hvort hægt að mynda „breiða stjórn“. „Það er heið­ar­legt og einnig rétt að opna þá umræðu, svo að Danir geti myndað sér skoðun á þessu, líka með góðum fyr­ir­vara fyrir kosn­ingar,“ sagði Frederik­sen við blaðið, en hún þarf að boða til þing­kosn­inga fyrir 5. júní á næsta ári.

Takk, en nei takk

Leið­togar stærstu flokk­anna til hægri á þingi voru snöggir að veita Frederik­sen nokkuð afger­andi afsvör. Jakob Ellemann-Jensen for­maður Venstre sagði að til­laga Frederik­sen virk­aði hrein­lega ótrú­verðug á meðan að Søren Pape Poulsen for­maður Íhalds­flokks­ins var snöggur að segja ein­fald­lega, „takk, en nei takk“ við umleit­unum for­sæt­is­ráð­herr­ans um stjórn­ar­sam­starf yfir miðj­una.

Keppni við Lars Løkke um atkvæðin á miðjunni?

En hvað er þá unnið með þessum þreif­ingum Frederik­sen? Í þeim efnum horfa danskir stjórn­mála­skýrendur til nokk­urra þátta.

Í fyrsta lagi hefur til­laga Frederik­sen verið teiknuð upp sem and­svar við nýjum flokki Lars Løkke Rasmus­sen, Modera­terne, en sá flokkur var einmitt form­lega kynntur til leiks þann 5. júní. Má segja að Mette hafi stolið sviðs­ljós­inu af Lars Løkke þann dag­inn, enda vöktu brú­ar­bygg­ingar hennar yfir miðj­una mikla athygli og umræður um þær lifa enn í dönskum fjöl­miðlum.

Lars Løkke Rasmus­sen, sem sjálfur biðl­aði til Mette Frederik­sen um stjórn­ar­sam­starf yfir miðj­una í aðdrag­anda kosn­inga árið 2019, er hann var for­maður Venstre, hefur hins vegar nýtt sér afsvör leið­tog­anna innan bláu blokk­ar­innar til þess að koma þeim skila­boðum á fram­færi að eina mögu­lega leiðin til þess að mynda stjórn yfir miðj­una verði með atkvæðum til hans nýja flokks. Lars Løkke stillir flokknum upp í miðj­unni og seg­ist helst vilja taka þátt í sam­starfi sem nái þvert yfir miðj­una.

Önnur mögu­leg skýr­ing sem nefnd hefur verið fram varð­andi til­lögur Mette Frederik­sen er sú að jafn­að­ar­menn horfi til þess að ein­angra mögu­lega þá flokka sem eru lengra til vinstri innan rauðu blokk­ar­innar, þá helst Ein­ing­ar­list­ann, sem náði feikna­góðum árangri í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum í Kaup­manna­höfn í fyrra og skák­aði Sós­í­alde­mókrötum sem stærsti flokk­ur­inn í höf­uð­borg­inni.

Enn ein skýr­ing sem sett hefur verið fram er sú að Frederik­sen sé ein­fald­lega að koma sér og flokki sínum upp vara­á­ætlun, ef svo færi að rauða blokkin héldi ekki meiri­hluta í þing­inu í kom­andi kosn­ingum. Hún og aðrir framá­menn í flokki danskra jafn­að­ar­manna hafa jú talað fyrir því að þeirra fyrsti kostur yrði að halda áfram núver­andi minni­hluta­stjórn Sós­í­alde­mókra­ta­flokks­ins, með stuðn­ingi rauðu blokk­ar­innar og samn­ingum yfir miðj­una í ákveðnum mála­flokkum.

Kjósendur virðast opnir fyrir samstarfi yfir miðjuna

Sjón­varps­stöðin TV2 lét fram­kvæma skoð­ana­könnun á meðal almenn­ings í síð­ustu viku, þar sem spurt var hvort fólk vildi helst sjá stjórn yfir miðj­una, stjórn flokka í bláu blokk­inni eða stjórn flokka í rauðu blokk­inni.

Af þessum þremur kostum varð stjórn yfir miðj­una vin­sæl­asti kost­ur­inn, en 40 pró­sent svar­enda í könn­unni sögðu að það hugn­að­ist þeim best. Næst efst á blaði var rík­is­stjórn hægri­flokka, en 29 pró­sent töldu það væn­leg­ast, en ein­ungis 25 pró­sent sögð­ust helst vilja sjá stjórn flokka vinstra megin við miðju.

Stuðn­ings­menn Radikale Venstre, sem sögu­lega hefur verið opinn í báða enda en flokk­ast nú með rauðu blokk­inni, eru lík­leg­astir til að vera hlynntir stjórn­ar­sam­starfi yfir miðj­una, en um 77 pró­sent þeirra segja að það væri þeirra fyrsti kostur. Um 56 pró­sent kjós­enda Sós­í­alde­mókrata segja það sinn fyrsta kost og 51 pró­sent kjós­enda Venstre, sam­kvæmt nið­ur­stöðum könn­un­ar­innar.

Á bil­inu 39-46 pró­sent kjós­enda flestra ann­arra flokka segja stjórn yfir miðj­una sinn fyrsta kost, þó að reyndar skeri stuðn­ings­menn Nye Borgerlige (sem liggur við ysta hægri) og vinstri­flokks­ins Ein­ing­ar­list­ans sig frá öðrum. Einungis 15 pró­sent kjós­enda Ein­ing­ar­list­ans telja að sam­starf yfir miðj­una yrði heilla­spor.[links]

Eins og Borgþór Arn­gríms­son fjall­aði um í nýlegri frétta­skýr­ingu í Kjarn­anum er ekki ljóst hvenær verður kosið til þings í Danmörku. Á næstu vikum er búist við því að skýrsla um „minka­málið“ í veiru­far­aldr­inum komi fram en sér­stök nefnd hefur unnið að skýrsl­unni mán­uðum saman.

Ef nið­ur­staða nefnd­ar­innar verður sú að eðli­lega hafi verið staðið að ákvarð­ana­töku í þessu stóra og umdeilda máli gæti hugs­ast að Frederik­sen myndi ákveða að boða til kosn­inga strax í haust. Verði nið­ur­staðan á hinn bóg­inn sú að rangar ákvarð­anir stjórn­valda hafi ráðið för gæti það haft áhrif, og dregið úr fylgi jafn­að­ar­manna. Þá sæi for­sæt­is­ráð­herr­ann sér ekki í hag að flýta kosn­ing­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár