Vill tryggja að fólk fái að mótmæla fyrir framan sendiráð án truflana lögreglu

Þing­maður Pírata gerði mót­mæli fyrir framan sendi­ráð að umtals­efni á Alþingi í vik­unni. Hún hvatti alla þing­menn til að tryggja að fólk fengi áfram að mót­mæla fyrir framan sendi­ráð án trufl­ana lög­reglu.

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir þingmaður Pírata.
Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir þing­maður Pírata. Mynd: Bára Huld Beck

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir þing­maður Pírata benti á undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í vik­unni að ekki væri hægt að mót­mæla fyrir framan sendi­ráð hér á landi án þess að eiga það á hættu að vera vísað í burtu af lög­reglu eða jafn­vel vera hand­tek­inn.

Hún hóf mál sitt á því að beina athygl­inni að sam­stöðu­mót­mælum með borg­ur­unum í Úkraínu fyrir utan sendi­ráð Rúss­lands. „Við höfum fylgst með af ákveð­inni aðdáun, að minnsta kosti sú sem hér stendur, hvernig mót­mæl­endur í Rúss­landi mót­mæla stríð­inu í Úkraínu þrátt fyrir að eiga vissa yfir höfði sér hand­töku fyrir að lýsa skoð­unum sínum, fyrir að mót­mæla,“ sagði hún.

„Ímyndum okkur hins vegar að þessir mót­mæl­endur sem stóðu fyrir framan rúss­neska sendi­ráðið hefðu fengið þau fyr­ir­mæli frá lög­reglu að færa sig í burtu, færa mót­mælin annað, þau væru fyrir, rúss­neska sendi­herr­anum þætti þetta óþægi­legt og hann vildi helst að þau myndu bara fara.

Og þegar mót­mæl­endur hefðu ekki brugð­ist vel við, þ.e. hefðu bara ekki farið, þá hefði lög­reglan hand­tekið alla þessa mót­mæl­endur fyrir að hlýða ekki fyr­ir­mælum lög­reglu um að gjöra svo vel að fara og hætta að trufla rúss­neska sendi­herr­ann,“ sagði hún.

Maður handtekinn í tvígang fyrir að færa sig ekki

Benti Þor­hildur Sunna á að þetta væri hægt á Íslandi í dag. „Þetta hefur einn maður raunar upp­lifað fyrir framan annað sendi­ráð í tvígang. Það var hins vegar ekki rúss­neska sendi­ráðið heldur það banda­ríska þar sem einn maður stóð með skilti og var að mót­mæla stríðs­rekstri Banda­ríkja­manna. Hann var beð­inn um að færa sig þrátt fyrir að valda engum ama nema kannski ein­hverjum sjón­rænum ama fyrir sendi­herra Banda­ríkj­anna. Og þegar hann færði sig ekki var hand­tek­inn og var að lokum dæmdur fyrir að hafa ekki hlýtt fyr­ir­mælum lög­reglu um að færa sig. Þetta hefur gerst í tvígang nýlega á Íslandi. Þetta er gall­inn við 19. gr. lög­reglu­laga. Hann brýtur á rétti fólks til frið­sam­legra mót­mæla.“

Í þess­ari grein sem Þór­hildur Sunna vísar til segir að almenn­ingi sé „skylt að hlýða fyr­ir­mælum sem lög­reglan gefur, svo sem vegna umferð­ar­stjórnar eða til þess að halda uppi lögum og reglu á almanna­færi“.

Í ræðu sinni sagð­ist þing­mað­ur­inn vera með í vinnslu mál sem tekur á þessu og hvatti Þór­hildur Sunna alla þing­menn til að tryggja að fólk fengi áfram að mót­mæla fyrir framan sendi­ráð án trufl­ana lög­reglu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár