Segir ríkisstjórnina ætla að lækka veiðigjöld um tvo milljarða til viðbótar

Þing­maður Sam­fylk­ingar segir að rík­is­stjórnin hafi ákveðið að lækka veiði­gjöld á næsta ári í fimm millj­arða króna. Þau voru 11,2 millj­arðar króna í fyrra. Tóbaksnot­endur muni greiða meira í gegnum tóbaks­gjöld en útgerðin í veiði­leyfagjöld árið 2020.

„Í gær­kvöldi kynnti rík­is­stjórnin breyt­ing­ar­til­lögur sínar á fjár­laga­frum­varp­inu og er ein þeirra sér­stak­lega frétt­næm. Þá til­lögu vilja sumir í stjórn­ar­flokk­unum örugg­lega tala sem minnst um.

1. Því seint í gær­kvöldi lagði rík­is­stjórnin til að veiði­leyfagjöldin verði lækkuð tals­vert meira en til stóð fyrir ein­göngu tveimur mán­uðum þegar fjár­laga­frum­varpið var lagt fram. Rík­is­stjórnin vill nú lækka veiði­leyfagjöldin um 2 millj­arða kr til við­bótar en þá mun veiði­leyfagjaldið hafa lækkað um meira en helm­ing síðan þessi rík­is­stjórn tók við völdum og farið úr 11,2 millj­örðum og í 5 millj­arða kr.“

Þetta kemur fram í facebook-færslu Ágústs Ólafs Ágústs­sonar, þing­manns Sam­fylk­ing­ar­innar, sem birt var í dag. Hann bendir á að með breyt­ing­unni muni reyk­ing­ar­fólk og aðrir tóbaksnot­endur, um átta pró­sent af þjóð­inni, greiða meira til sam­neysl­unnar á næsta ári í tóbaks­gjald en kvóta­hafa greiða fyrir afnot af fisk­veiði­auð­lind­inni.

Þar segir hann einnig að veiði­gjaldið sé nú orðið svo lágt að það dekki ekki þann kostnað sem skatt­greið­endur verði fyrir vegna þjón­ustu hins opin­bera gagn­vart atvinnu­grein­inni. „Samkvæmt lögum eiga veiði­leyfagjöld m.a. að mæta þeim kostn­aði, sem vill svo til að er 5,1 millj­arður og er því hærri en það sem rík­is­stjórnin leggur nú til að veiði­leyfagjöldin verði.“

Ótrúlegt góðæri í greininni síðastliðinn áratug

Kjarninn greindi frá því í lok sept­em­ber að íslensk sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki hafi átt eigið fé upp á 276 millj­arða króna í lok síð­asta árs. Frá hruni hefur eig­in­fjár­staða sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækj­anna batnað um 355 millj­arða króna, en hún var nei­kvæð í lok árs 2008.

Í lok árs 2008 var eig­in­fjár­staða geirans nei­kvæð en er nú, líkt og áður sagði jákvæð um 276 millj­arða króna. Hún batn­aði um 14 millj­arða króna á árinu 2018.

Alls greiddu fyr­ir­tækin sér arð upp á 12,3 millj­arða króna í fyrra. Frá árinu 2010 hafa þau greitt 92,5 millj­arða króna til eig­enda sinna í arð­greiðslur.

Sam­an­lagt hefur hagur sjáv­ar­út­veg­ar­ins, því vænkast um 447,5 millj­arða króna frá árinu 2008 og út síð­asta ár, eða á einum ára­tug.

Veiði­gjöld voru 11,3 millj­arðar króna í fyrra, sem eru þau hæstu sem geir­inn hefur greitt. Það nán­ast tvö­föld­uð­ust milli ára, úr 6,8 millj­örðum króna árið 2017. Samtals frá árinu 2011, og út síð­asta ár, greiddi sjáv­ar­út­veg­ur­inn 63,3 millj­arða króna í veiði­gjöld.

Veiði­gjöldin áttu að lækka á þessu ári, og áætlað var að þau myndu skila um sjö millj­örðum króna í rík­is­kass­ann í ár og nán­ast sömu upp­hæð á árinu 2020, sam­kvæmt fjár­laga­frum­varp­inu. Nú virð­ist sem að þau verði enn lægri á næsta ári en til stóð.

Ný lög um veiði­gjald tóku gildi um síð­ustu ára­mót þar sem meðal ann­ars var settur nýr reikni­stofn sem bygg­ist á afkomu við veiðar hvers nytja­stofns. Í fjár­laga­frum­varp­inu sagði að með breyt­ing­unum sé dregið úr töf við með­ferð upp­lýs­inga um átta mán­uði. „Þá er veiði­gjaldið nú ákveðið fyrir alm­an­aksár í stað fisk­veiði­ár­s.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár