Sálarbylgjan skellur á

Danska söng­konan Eif kemur fram í Norræna hús­inu með fjög­urra manna hljóm­sveit í jan­úar. Und­an­farnar vikur hefur hljóm­sveitin verið að vinna með sál­ar­fullan bræð­ing raf­tón­listar og hlið­rænnar tón­listar sem Eif hlakkar til að kynna fyrir Íslend­ingum.

Fyrir rúm­lega tveimur árum var Ann-Sofie Rokbøl á leið­inni með flugi til Kanada. Á löngu flug­inu fór hún að spjalla við mann­inn í sæt­inu við hlið­ina á henni, sem reynd­ist vera frá Íslandi. Það átti eftir að verða afdrifa­ríkt sam­tal. „Á milli þess sem við töl­uðum saman sváfum við á öxl hvort ann­ars. Ég var á leið­inni til Kanada til að læra og eftir fyrstu önn­ina hitt­umst við í New York og fórum svo til Reykja­víkur saman. Þar hófst ást­ar­sam­band mitt við Ísland. Ég varð ást­fangin af borg­inni, lista- og tón­list­ar­sen­unni, tungu­mál­inu og nátt­úr­unni. Ég hef oft komið til Íslands síðan og það hefur verið mér mik­ill inn­blástur. Fyrst þegar ég kom hugs­aði ég með mér að það yrði stór­kost­legt að fara á tón­leika­ferða­lag til Íslands ein­hvern tím­ann. Nú er loks­ins að verða af því,“ segir Ann-Sofie, sem ber lista­manns­nafnið Eif. Á laug­ar­dags­kvöldi í jan­úar ætlar hún að halda tón­leika í Norræna hús­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár