Safna pissi á Hróarskeldu til að nota til bjórgerðar

Á Hróarskeldu­hátíðinni, sem nú stendur sem hæst, stendur yfir metnaðar­fullt verkefni sem gengur út á að safna þvagi úr hátíðar­gestum með það að markmiði að endur­vinna pissið og nota til bjór­gerðar. Frétta­miðillinn The Guardian greinir frá málinu.

Skipuleggjendur hátíðarinnar stefna að því að safna hátt í 25.000 lítrum frá yfir 100.000 hátíðar­gestum til bjór­gerðarinnar, sem verða notaðir nánar tiltekið til að frjóvga bygg sem síðar verður notað til að brugga ljósan bjór, eða pilsner.

Á Hróarskeldu­hátíðinni má nú sjá langar biðraðir karlmanna sem bíða eftir því að losa þvag ofan í sérstakar málm­trektir, en pissinu er safnað saman í sérsmíðaða tanka sem eru svo fluttir á akra í nágrenninu þar sem það er notað í fyrr­greindum tilgangi.

Verkefnið hefur hlotið heitið: „Fra pis til pilsner,“ eða Úr pissi yfir í bjór, og var hleypt af stokkunum á yfir­standandi Hróarskeldu­hátíð. Um er að ræða samstarfs­verkefni tónlistar­hátíðarinnar og dönsku landbúnaðar­nefndarinnar (DAFC).

Ef allt gengur að óskum geta gestir Hróarskeldu­hátíðarinnar árið 2017 mátt eiga von á því að fá tækifæri til að bragða „piss­bjórinn.“ Ferlið hefur verið kallað „beercycling.“

Hér má sjá myndræna fram­setningu á ferlinu.

Hér má sjá myndræna framsetningu á ferlinu.
Hér má sjá mynd­ræna fram­setn­ingu á ferl­inu.

„Þvagið sem gestir Hróarskeldu­hátíðarinnar hafa skilið eftir sig hefur haft neikvæð áhrif á umhverfið og holræsa­kerfið okkar,“ hefur The Guardian eftir Leif Nielsen, formanni DAFC. „Verkefnið okkar mun nú breyta þvaginu í auðlind. Flestir sjá tilgang og skemmtun í því að gefa okkur persónulegt framlag til bjór­gerðarinnar og tónlistar­mennirnir hafa tekið fram­takinu opnum örmum sem hjálpar óneitanlega mikið til.“

Leif vonar að einhverjar af stærri stjörnum hátíðarinnar láti ekki sitt eftir liggja, en þeirra á meðal eru meðal annarra Sir Paul McCartney og Pharrel Willims. „Við settum upp sérstakar pissu­skálar við sviðin þar sem hljóm­sveitirnar stíga á stokk, þannig vð við vonum að við náum að safna líka rokk­stjörnu­þvagi,“ segir Marie Grabow frá DAFC.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár