„Hvaða fíflagangur er þetta?“

Þing­maður Við­reisnar og áheyrn­ar­full­trúi í fjár­laga­nefnd segir að meiri­hlut­inn hafi rit­stýrt fyr­ir­vara hans við nefnd­ar­á­lit í morgun.

Jón Steindór Valdimarsson, þingmaður Viðreisnar.
Jón Steindór Valdi­mars­son, þing­maður Við­reisnar. Mynd: Bára Huld Beck

Jón Steindór Valdi­mars­son, þing­maður Við­reisnar, sagð­ist á Alþingi í dag vera í senn ákaf­lega hryggur en jafn­framt reiður vegna þess að í morgun hefði meiri­hlut­inn í fjár­laga­nefnd tekið „að sér rit­stjórn­ar­vald“ á þeim fyr­ir­vara sem hann vildi setja við stuðn­ing hans við fjár­auka sem þar hefði verið tek­inn út. Jón Steindór er áheyrn­ar­full­trúi í nefnd­inni.

„Meiri­hlut­inn gengur þar með þvert á það sem hér hefur tíðkast und­an­farið og ég verð að segja það að mér finnst það ansi hart að meiri­hlut­inn þoli ekki fyr­ir­vara við stuðn­ing við málið en ætli sér það virki­lega að rit­stýra fyr­ir­vara mínum við málið. Þetta er algjör­lega fáheyrt, herra for­seti, og ekki líð­andi,“ sagði hann í ræðu undir liðnum störf þings­ins.

Hann sagði þetta vera sér­stakt mál. „Í fyr­ir­var­anum sem ekki hlaut náð í nefnd­inni er talað um að til­lögur gangi ekki nógu langt. Þar kemur líka fram að ég kunni að styðja breyt­ing­ar­til­lögur sem fram koma. Ég held að það sem meiri­hlut­inn vill ekki að sé sagt í nefnd­ar­á­lit­inu í mínum fyr­ir­vara séu þessar setn­ingar: „Þær breyt­ingar sem hafa verið gerðar frá upp­haf­legu frum­varpi eru við­ur­kenn­ing á mál­flutn­ingi Við­reisnar varð­andi aukin fram­lög til nýsköp­unar en þar er bætt við 200 millj­ónum til Nýsköp­un­ar­sjóðs atvinnu­lífs­ins vegna svo­kall­aðrar Stuðn­ings Kríu. Enn fremur eru til­lögur um fram­lög til ferða­á­byrgð­ar­sjóðs vegna pakka­ferða. Þar er farin leið sem Viðreisn hefur talað fyrir.“

Þarna er ég í raun að hrósa nefnd­inni fyrir að hlusta á skyn­sam­legan mál­flutn­ing sem hún tekur undir en nefndin vill rit­stýra þessum setn­ingum út úr fyr­ir­far­anum. Hvaða fífla­gangur er þetta?“ spurði hann.

Nefndarmenn verða að geta staðið við álitið

Steinunn Þóra Árna­dóttir, þing­maður VG og nefnd­ar­maður í fjár­laga­nefnd, tjáði sig um málið undir sama lið og sagði það skipta máli að hér væri um að ræða nefnd­ar­á­lit meiri­hluta nefndar sem nefnd­ar­menn settu nöfn sín undir. „Eðli máls­ins sam­kvæmt hefur þá í fjöl­flokka­meiri­hluta farið fram umræða um það hvað eigi að standa í því nefnd­ar­á­liti.“

Hún sagði að áheyrn­ar­full­trúi í nefnd­inni, eins og Jón Steindór er í þessu til­felli, gæti tekið undir meiri­hluta­á­lit ef hann kysi svo. „Ég held að hér séum við komin út svo­lítið ókann­aðar lendur þar sem í raun­inni þing­sköp segja ekki beint fyrir um það hvernig eigi að standa að þessum málum en það er auð­vitað svo­lítið sér­stakt þegar nefnd­ar­menn eru með á nefnd­ar­á­liti en í raun­inni með orðum og til­lögum sem ganga miklu lengra en þó er verið að gera í nefnd­ar­á­lit­inu.“

Steinunn Þóra sagði jafn­framt að hún hefði enga skoðun á því hvernig aðrir þing­menn settu sína póli­tík fram. „Að sjálf­sögðu ekki. Menn standa með orðum sínum – en ég hins vegar vil standa með mínum orðum og ég tel að meiri­hluti sá sem skrifar undir nefnd­ar­á­lit verði auð­vitað að geta staðið á bak við það sem að í því stendur. Mér finnst það mik­il­vægt að við fylgjum eftir þeim reglum sem hér eru varð­andi þing­styrk, til að mynda, sem fjalla um það að áheyrn­ar­full­trúi getur lýst sig sam­þykkan – ef hann svo kýs – nefnd­ar­á­liti meiri­hluta.

Venjan hefur verið sú að þegar þing­menn hafa haft sér­staka skoðun þá skili þeir inn meiri­hluta­á­liti. Það var ekki hægt í þessu til­viki og í mínum huga snýst þetta um, það er að segja formið, að áheyrn­ar­full­trúi getur lýst sig sam­þykkan nefnd­ar­á­liti ef hann kýs svo,“ sagði hún að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár