Segja mögulegt frumvarp vera atvinnuletjandi á tímum atvinnuleysis

Hags­muna­sam­tök fram­leiðslu­fyr­ir­tækja leggj­ast gegn ýmsum þáttum fyr­ir­hug­aðs frum­varps atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­is­ins sem snýr að reglum um rík­is­styrki til fram­leiðslu kvik­mynda og sjón­varps­þátta.

Sigríður Mogensen, sviðsstjóri hugverkasviðs SI, er ein af höfundum umsagnarinnar.
Sigríður Mogensen, sviðs­stjóri hug­verka­sviðs SI, er ein af höf­undum umsagn­ar­innar. Mynd: Bára Huld Beck

Samtök iðn­að­ar­ins (SI) og Samband íslenskra kvik­mynda­fram­leið­enda (SÍK) telja drög að nýju frum­varpi atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­is­ins um kvik­mynda­styrki til þess fallið að skerða sam­keppn­is­hæfni kvik­mynda­iðn­að­ar­ins og ógna atvinnu­ör­yggi innan hans.

Einnig segja sam­tökin að frum­varpið gangi gegn mark­miðum opin­berrar kvik­mynda­stefnu Íslands og hvetji til upp­sagna á fast­ráðnu starfs­fólki innan geirans. Þetta kemur fram í umsögn sam­tak­anna um frum­varpið, sem birt­ist á sam­ráðs­gátt stjórn­valda síð­ast­lið­inn föstu­dag.

Kjarninn hefur áður fjallað um áður­nefnt frum­varp, en mark­mið þess er að end­ur­greiðslur til sjón­varps- og kvik­mynda­fram­leiðslu­fyr­ir­tækja lúti skýr­ari reglum og séu bundnar strang­ari skil­yrðum en áður. Verði frum­varps­drögin að lögum mætti búast við þrengri skil­grein­ingu á þeim fram­leiðslu­kostn­aði sem fyr­ir­tækin gætu fengið end­ur­greiðslu fyrir, auk þess sem lög­giltir end­ur­skoð­endur verði fengnir til að fara yfir upp­gjör þeirra.

Gangi gegn markmiðum kvikmyndastefnu

Í umsögn sinni benda SI og SÍK á að full­trúar stjórn­valda og atvinnu­lífs­ins hafi gefið út sam­eig­in­lega kvik­mynda­stefnu til árs­ins 2030 nýlega, en henni var ætlað að móta heild­stæða stefnu fyrir kvik­mynda­gerð og kvik­mynda­menn­ingu á Íslandi.

Samkvæmt sam­tök­unum kemur fram í stefn­unni að end­ur­greiðslu­kerfi kvik­mynda­gerðar á Íslandi þyki ein­falt nú þegar og að stefnt skuli að því að varð­veita kosti kerf­is­ins og þróa það á þann veg að það stand­ist alþjóð­lega sam­keppni á hverjum tíma. „Telja sam­tökin að drög að frum­varpi til breyt­inga á lögum um end­ur­greiðslur gangi að hluta gegn þessum mark­miðum,“ segir í umsögn­inni.

Fastráðnum starfsmönnum sagt upp

Samtökin telja líka að fyr­ir­hugað frum­varp myndi hvetja til upp­sagna fast­ráð­inna starfs­manna yrði það að lögum, þar sem ekki yrði lengur hægt að fá end­ur­greiðslu vegna launa­kostnað þeirra. Fram­leiðslu­fyr­ir­tækið Sagafilm minnt­ist einnig á þennan hluta frum­varps­drag­anna í annarri umsögn sem birt er á sam­ráðs­gátt stjórn­valda, en Kjarninn fjall­aði um þá umsögn í gær.

Atvinnuletjandi og veikir greinina

Með þrengri skil­yrðum fyrir end­ur­greiðslu telja sam­tökin að verið sé að skerða sam­keppn­is­hæfni Íslands á sviði kvik­mynda- og sjón­varps­þátta­gerðar á meðan atvinnu­leysi sé sögu­lega hátt. „Hvat­arnir sem ofan­greindar breyt­ingar hefðu í för með sér yrðu atvinnu­letj­andi á tímum þar sem brýnt er að fjölga störfum,“ sögðu sam­tökin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár