Leggur til skýrari reglur um ríkisstyrki til kvikmyndaframleiðenda

Kvik­mynda­fram­leið­endur þyrftu að láta lög­gilta end­ur­skoð­endur fara yfir upp­gjör sín til þess að geta fengið styrk frá atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu, verði hugs­an­legt frum­varp að lögum.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra.
Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neytið leggur til að end­ur­greiðslur til sjón­varps- og kvik­mynda­fram­leiðslu­fyr­ir­tækja lúti skýr­ari reglum og séu bundnar strang­ari skil­yrðum, sam­kvæmt drögum að nýju frum­varpi í Sam­ráðs­gátt stjórn­valda. Meðal ann­ars er lagt til að fram­leiðslu­kostn­aður fyr­ir­tækj­anna verði betur skil­greindur og að þau fái lög­gilta end­ur­skoð­endur til að fara yfir upp­gjör þeirra.

Drögin birt­ust í Sam­ráðs­gátt­inni í gær og byggja á skýrslu sem Rík­is­end­ur­skoðun skil­aði til Alþingis um end­ur­greiðslu­kerfi til kvik­mynda­fyr­ir­tækja og fram­kvæmd þess. Samkvæmt ráðu­neyt­inu eru laga­breyt­inga­til­lög­urnar í frum­varp­inu gerðar til að bregð­ast við athuga­semdum Rík­is­end­ur­skoð­unar í skýrsl­unni sinni.

Uppgjör og endurskoðun á öllum verkefnum

Samkvæmt núgild­andi lögum þurfa kvik­mynda­fyr­ir­tækin að skila end­ur­skoð­uðu upp­gjöri ef þeir fá meiri en 20 millj­ónir króna í end­ur­greiðslu frá rík­inu. Þetta þýðir þó að tals­verðar fjár­hæðir eru greiddar til kvik­mynda­fyr­ir­tækja án þess að upp­gjör liggi fyrir, en þær námu 223 millj­ónum króna vegna 35 verk­efna árið 2018 eins og kemur fram í frum­varps­drög­unum.

Ráðu­neytið leggur til að öll fram­leiðslu­fyr­ir­tæki sem fá end­ur­greiðslu frá rík­inu þurfa nú að skila kostn­að­ar­upp­gjöri sem farið hefur verið yfir með lög­giltum end­ur­skoð­anda, óháð upp­hæð.

Allur vafi tekinn af

Til við­bótar við kröfu um kostn­að­ar­upp­gjör fela frum­varps­drögin í sér skýr­ari skil­grein­ingu á fram­leiðslu­kostn­aði sem hægt er að fá end­ur­greiðslu fyrir. Hann feli í sér allan þann kostnað sem fellur til hér­lendis, eða stundum í öðrum EES-löndum, við gerð kvik­mynda­verks og teng­ist annað hvort und­ir­bún­ings­tíma­bili, fram­leiðslu­tíma­bili eða eft­ir­vinnslu­tíma­bili fram­leiðslu. Þessi kostn­aður verði að vera skráður í fjár­hags­bók­haldi umsækj­anda.

Þar að auki inni­heldur frum­varpið ýmis önnur skil­yrði sem er ætlað að taka af allan vafa um skil­yrðin sem fylgja end­ur­greiðsl­unni. Þeirra á meðal er að end­ur­greiðsla til sjón­varps­þátta eða kvik­mynda verði alltaf til­greind í kredit­lista og að skýrt verði nánar hvenær fram­leiðslu telst vera lokið.

Ráðu­neytið hefur opnað fyrir umsagnir við frum­varps­drögin og mun taka á móti þeim fram að ára­mótum. Enn sem komið er hefur eng­inn skrifað umsögn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár