Telur hugsanlegt frumvarp munu leiða til fjöldauppsagna í kvikmyndaiðnaðinum

Sagafilm telur að segja verði upp öllu fast­ráðnum starfs­mönnum í íslenskum kvik­mynda­iðn­aði, verði ný frum­varps­drög um kvik­mynda­styrki að lögum.

Kvik­mynda­fram­leið­and­inn Sagafilm segir að frum­varps­drög ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra hygli fyr­ir­tækjum sem byggja starf­semi sína á verk­töku, á kostnað þeirra sem hafa fast­ráðna starfs­menn. Fyr­ir­tækið býst við fjölda­upp­sögnum í grein­inni nái frum­varps­drögin að verða að lögum í óbreyttri mynd.

Þetta kemur fram í umsögn Sagafilm um frum­varps­drögin sem birt­ist á sam­ráðs­gátt stjórn­valda síð­ast­lið­inn föstu­dag. Kjarninn hefur áður fjallað um fyr­ir­hugað frum­varp, en mark­mið þess er að reglur um rík­is­styrki til kvik­mynda­fram­leið­enda verði skýr­ari, auk þess sem fram­leið­end­urnir verði bundnir strang­ari skil­yrðum til þess að geta fengið þá.

Frumvarpshöfundar sýni „vanþekkingu og skilningsleysi“

Samkvæmt frum­varps­drög­unum yrði ekki lengur hægt að fá þann fram­leiðslu­kostnað sem reikn­aður er sem hlut­deild af rekstri félags­ins end­ur­greiddan. Sagafilm gerir alvar­lega athuga­semd við þá til­lögu og segir hana vera þá óskýr­ustu og alvar­leg­ustu í drög­unum, auk þess sem hún varpi „mestu ljósi á van­þekk­ingu og skiln­ings­leysi frum­varps­höf­unda á rekstri fram­leiðslu­fyr­ir­tækja.“

Í umsögn­inni segir að þessi til­laga komi sér­stak­lega niður á Sagafilm, þar sem fjöldi starfs­manna fyr­ir­tæk­is­ins eru fast­ráðnir. Því sé eðli­legt að launa­kostn­aður þeirra, sem sé stór hluti af rekstr­ar­kostn­aði fyr­ir­tæk­is­ins, sé tek­inn með í fram­leiðslu­kostn­aði á kvik­myndum eða þáttum.

Segir gerviverktöku einu leiðina

Sagafilm segir að hlut­deildin sem fyr­ir­tækið telji með til fram­leiðslu­kostn­aðar hafi verið reiknað út frá starfs­manna­kostn­aði þess. Þar er með­tal­inn allur skrif­stofu- og stjórn­un­ar­kostn­aður félags­ins, til við­bótar við bók­halds- og end­ur­skoð­un­ar­kostn­aðar, auka ann­ars beins starfs­manna­kostn­aðar.

„Óhjá­kvæmi­leg afleið­ing þessa ákvæðis frum­varps­ins, verði það að lögum, er að kvik­mynda­fram­leiðslu­fyr­ir­tæki veigra sér við að fast­ráða starfs­menn sem taka þátt í fram­leiðslu kvik­mynda,“ segir í umsögn­inni. Fyr­ir­tækið segir því að eina leiðin til þess að halda áfram óbreyttri starf­semi og upp­fylla skil­yrði regl­unnar sé með gervi­verk­töku, eða að segja upp öllum fast­ráðnum starfs­mönnum og ráða þá sem verk­taka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár