Vinnuveitendur hafa borgað 39 milljarða af húsnæðislánum þeirra sem nýta séreign

Alls hefur um fimmt­ungur þjóð­ar­innar nýtt sér úrræði til að greiða niður hús­næð­is­lán skatt­frjálst um 110 millj­arða króna með ráð­stöfun sér­eign­ar­sparn­aðar. Framlag vinnu­veit­enda er um 35 pró­sent af þeirri upp­hæð.

Alls hafa þeir Íslend­ingar sem velja að ráð­stafa sér­eign­ar­sparn­aði sínum til að greiða niður hús­næð­is­lán greitt þau niður um 109,9 millj­arða króna frá miðju ári 2014 í ann­ars vegar almennu úrræði og hins vegar undir hatti úrræðis sem kall­ast „Fyrsta fast­eign“. Þessi ráð­stöfun er skatt­frjáls og ávinn­ingur þessa hóps í upp­söfn­uðum skattafslætti er áætluð 26,8 millj­arðar króna. Alls hafa 38 pró­sent allra sem eru á vinnu­mark­aði, eða 21 pró­sent þjóð­ar­innar í heild, nýtt sér umrædd úrræði.

Þeir sem nýta sér sér­­­­­­­eign­­­­ar­líf­eyr­is­­­­sparnað til að greiða niður hús­næð­is­lán sitt sam­­­­kvæmt úrræðum sem stjórn­­­­völd hafa inn­­­­­­­leitt á und­an­­­­förnum árum fá líka annan ávinn­ing.

Það að safna sér­eign­ar­sparn­aði felur nefni­lega í sér mót­fram­lag frá vinn­u­veit­enda sem er ígildi launa­hækk­­­­un­­­­ar. Þar er um að ræða launa­hækkun sem er lög­fest og stendur ein­ungis þeim til boða sem velja að safna í sér­eign með þessum hætti. Sam­tals hafa vinnu­veit­endur greitt niður 38,6 millj­arða króna af hús­næð­is­lánum þessa hóps á und­an­förnum árum. Alls nemur fram­lag vinnu­veit­enda til þeirra sem hafa nýtt sér almenna úrræðið 32,9 millj­örðum króna en fram­lag þeirra til þeirra sem hafa nýtt sér „Fyrstu fast­eign“ nemur 5,7 millj­örðum króna.

Þetta kemur fram í tölum sem fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið hefur tekið saman fyrir Kjarn­ann.

Fjölgað um 27 prósent á einu ári

Það þýðir að hóp­ur­inn sem nýtt hefur sér úrræðin hefur notað sam­tals 71,2 millj­arða króna af eigin sér­eign­ar­sparn­aði til að borga inn á hús­næð­is­lán eða sem útborgun fyrir hús­næði frá árinu 2014.

Um er að ræða hóp sem telur alls 79.747 manns. Hann skipt­ist þannig að 62.400 hafa nýtt sér almenna úrræði en 17.347 hafa nýtt sér „Fyrstu fast­eign“ frá því að það úrræði varð virkt árið 2017. Þeim sem nýtt hafa sér úrræðin hefur fjölgað um tæp 27 pró­sent á einu ári.

Í skýrslu sér­­­fræð­inga­hóps um höf­uð­stólslækk­­­un sem unnin var í aðdrag­anda þess að almenna úrræð­inu var hleypt af stokk­unum árið 2014 kom fram að með­­­al­­­launa­­­tekjur fjöl­­­skyldna sem spör­uðu í sér­­­­­eign og skuld­uðu í fast­­­eign væri mun hærri en með­­­al­­­launa­­­tekjur þeirra sem spara ekki. „Al­­­mennt eru tekjur þeirra sem spara í sér­­­­­eigna­líf­eyr­is­­­sparn­aði mun hærri en hinna sem ekki gera það,“ stóð orð­rétt í skýrsl­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár