Mynd: Birgir Þór Harðarson

Sprenging í nýtingu á séreignarsparnaði til að borga niður húsnæðislán skattfrjálst

Alls hafa Íslend­ingar ráð­stafað 110 millj­örðum króna af sér­eign­ar­sparn­aði sínum inn á hús­næð­is­lán frá 2014. Þessi ráð­stöfun hefur fært þeim sem geta og kjósa að nýta sér hana tæp­lega 27 millj­arða króna í skatt­afslátt.

Þeim sem hafa nýtt sér skatt­frjálsa ráð­stöfun sér­eign­ar­sparn­aðar inn á hús­næð­is­lánið sitt fjölg­aði mikið mikið á árinu 2021. Í byrjun þess árs höfðu 62.952 ein­stak­lingar, um 17 pró­sent allra lands­manna og um 30 pró­sent allra á vinnu­mark­aði, nýtt sér úrræðið frá því að það var fyrst kynnt til sög­unnar um mitt ár 2014. Í nýliðnum jan­úar var sá fjöldi hin vegar kom­inn í 79.747 tals­ins. Þeim hafði því fjölgað um tæp 27 pró­sent á einu ári. Það þýðir að 38 pró­sent allra sem eru á vinnu­mark­aði, eða 21 pró­sent þjóð­ar­innar í heild, hefur nýtt sér hið skatt­frjálsa úrræði.

Þetta kemur fram í svari fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans um málið sem byggja á upp­lýs­ingum frá Skatt­inum.

Þessi hópur hefur alls ráð­stafað 109,9 millj­örðum krónum af sér­eign­ar­sparn­aði inn á hús­næð­is­lánin sín frá árinu 2014. Í sam­an­tekt­inni sem Kjarninn hefur fengið afhenta kemur fram að hóp­ur­inn sem hefur nýtt sér úrræðið hafi alls fengið skatt­afslátt upp á sam­tals 26,8 millj­arða króna fyrir að nýta sér­eign­ar­sparnað sinn á þennan hátt.

Framlengt aftur og aftur og aftur

Um er að ræða tvö úrræði. Annars vegar það sem felur í sér að hver sem er geti ráð­stafað sér­eign­ar­sparn­aði sínum skatt­frjálst inn hús­næð­is­lánið sitt og hins vegar það sem kall­ast „Fyrsta fast­eign“.

Fyrra úrræðið var hluti af „Leið­rétt­ing­unni“ svoköll­uðu, en hluti hennar fólst í því að að rík­is­sjóður greiddi 72,2 millj­arða króna inn á verð­tryggð hús­næð­is­lán hóps lands­manna sem hafði verið með slík lán á árunum 2008 og 2009. Samtals voru greiddir 72,2 millj­arðar króna inn á lánin og greiðsl­urnar fóru að mestu til tekju­hærri og eign­­ar­­meiri hópa sam­­fé­lags­ins.

Hin hliðin á „Leið­rétt­ing­unni“ fól síðan í sér að lands­mönnum áttu að vera gert kleift að nota sér­eigna­sparnað sinn skatt­frjálst til að borga niður hús­næð­is­lán sín í þrjú ár, frá miðju ári 2014 og fram til 30. júní 2017. Búið er að fram­lengja þessa nýt­ingu þrí­vegis síðan: fyrst fram á sum­arið 2019, svo, í tengslum við gerð lífs­kjara­samn­ing­anna, fram á mitt ár 2021 og loks var hún fram­lengd í tvö ár í við­bót í fyrra. Úrræðið er því í boði út júní 2023 sem stendur.

Langflestir í almenna úrræðinu

Alls hafa 62.400 manns nýtt sér almenna úrræðið frá því var hleypt af stokk­unum um mitt ár 2014. Í skýrslu sér­­fræð­inga­hóps um höf­uð­stólslækk­­un sem unnin var í aðdrag­anda þess kom fram að með­­al­­launa­­tekjur fjöl­­skyldna sem spör­uðu í sér­­­eign og skuld­uðu í fast­­eign væri mun hærri en með­­al­­launa­­tekjur þeirra sem spara ekki. „Al­­mennt eru tekjur þeirra sem spara í sér­­­eigna­líf­eyr­is­­sparn­aði mun hærri en hinna sem ekki gera það,“ stóð orð­rétt í skýrsl­unni.

Sam­an­lagt hefur þessi hópur fengið að ráð­stafa 93,4 millj­örðum króna inn á hús­næð­is­lánin sín skatt­frjálst á sjö og hálfu ári. Því er 85 pró­sent þeirrar upp­hæðar sem Íslend­ingar hafa notað af sér­eign­ar­sparn­aði sínum til að borga niður hús­næð­is­lán vegna þessa úrræðis.

Hitt úrræðið kall­ast „Fyrsta fast­eign“ og hefur verið á boðstól­unum frá árinu 2017. Sam­­­­kvæmt úrræð­inu geta þeir nýtt sér­­­­­­­eign­­­­ar­líf­eyr­is­­­­sparnað til að safna fyrir inn­­­­­­­borgun á fyrstu íbúð­­­­ar­­­­kaup eða greitt inn á höf­uð­stól hús­næð­is­láns. Alls er heim­ilt að ráð­stafa að hámarki 500 þús­und krónum á ári í mest tíu ár með ofan­­­­greindum hætti sam­­­­kvæmt ákveðnum skil­­­­málum.

Samtals hafa 17.347 manns nýtt sér „Fyrstu fast­eignar“-úrræðið og greitt alls 16,5 millj­arða króna inn á hús­næð­is­lán sín, eða notað sem útborgun fyrir fyrstu íbúð, frá því að það tók gildi.

Framtíðartekjur ríkis og sveitarfélaga hafa skerst um 26,8 milljarða

Þar sem ofan­greind notkun á sér­eign­ar­sparn­aði er skatt­frjáls þá skerðir hún tekjur rík­is­sjóðs og sveit­ar­fé­laga. Þau þurfa ekki að takast á við það tekju­tap í dag þar sem skattur af sér­eign­ar­sparn­aði er vana­lega borg­aður þegar fólk fer á eft­ir­laun. Þegar stærsti hluti þess hóps sem nýtir skatt­frjálsa úrræðið kemst á þann aldur verða stjórn­mála­menn nútím­ans lík­ast til flestir löngu hættir og aðrir teknir við ábyrgð á rík­is­fjár­mál­un­um.

Hluti af fyrsta efnahagsaðgerðarpakka ríkisstjórnarinnar vegna kórónuveirufaraldursins, sem var kynntur í mars 2020, var að heimila fólki að taka út séreignarsparnað sinn gegn því að greiða strax af honum skatt.
Hluti af fyrsta efna­hags­að­gerð­ar­pakka rík­is­stjórn­ar­innar vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins, sem var kynntur í mars 2020, var að heim­ila fólki að taka út sér­eign­ar­sparnað sinn gegn því að greiða strax af honum skatt.

Samkvæmt svörum sem bár­ust við fyr­ir­spurn Kjarnans er áætluð lækkun tekju­skatts vegna úrræð­anna tveggja 17,1 millj­arður króna fyrir árinu 2014 til 2021 og áætlun lækkun á útsvars­greiðslum til sveit­ar­fé­laga er 9,7 millj­arðar króna. Því nemur skatt­afsláttur þeirra lands­manna sem geta nýtt sér úrræðið sam­tals 26,8 millj­örðum króna.

Í ljósi þess að búið er að fram­lengja gild­is­tíma almenna úrræð­is­ins fram á mitt ár 2023 áætlar fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið að tekju­tap ríkis og sveit­ar­fé­laga verið á bil­inu fimm til sex millj­arðar króna til við­bótar.

Þeir sem nota séreign til að koma sér í gegnum faraldur greiða skatt

Þetta eru ekki einu hóp­arnir sem opnað hefur verið fyrir að geti nýtt sér­eign­ar­sparnað sinn áður en þau fara á eft­ir­laun. Í fyrsta efna­hag­s­pakka rík­is­stjórnar Katrínar Jak­obs­dótt­ur, sem kynntur var 21. mars 2020, var ein af aðgerð­unum sem kynnt var til leiks sú að lands­mönnum gert kleift að taka út sér­eigna­sparnað til að takast á við skamm­tíma­fjár­hags­vanda. Þeir sem nýttu sér þetta úrræði þurftu þó að greiða skatt af sparn­að­inum þegar hann var tek­inn út. Því var líka um tekju­skap­andi aðgerð að ræða fyrir rík­is­sjóð.

Þegar aðgerðin var kynnt til leiks kom fram að rík­­is­­stjórnin reikn­aði með að teknir yrðu út tíu millj­­arðar króna af sér­­­eign­­ar­­sparn­að­in­um. Um síð­ustu ára­mót höfðu lands­menn alls tekið út um 37 millj­­arða króna af sér­­­eign­­ar­­sparn­aði sínum síðan slíkar úttektir, en hægt var að sækja um nýt­ing­una út síð­asta ár. Nýtingin hefur því verið næstum fjór­föld umfram áætl­anir.

Því má gera ráð fyrir því að tekjur rík­­is­­sjóðs vegna skatt­greiðslna af nýt­ingu sér­­­eign­­ar­­sparn­aðar sem hluta af aðgerða­­pakka til að takast á við efna­hags­­legar afleið­ingar kór­ón­u­veiru­far­ald­­urs verði um 13,4 millj­­arðar króna.

Það er tíu millj­örðum krónum meira en upp­haf­lega var áætl­að.

Ekki hefur verið birt neitt nið­­ur­brot á þeim hópi sem hefur nýtt sér þetta úrræði en ætla má að þar sé, að minnsta kosti að hluta, um að ræða fólk sem hefur átt í greiðslu­erf­ið­­leikum vegna efna­hags­­legra áhrifa COVID-19. Þeir sem fóru úr vel laun­uðum störfum á atvinn­u­­leys­is­bætur eru lík­­­legri til að til­­heyra þessum hópi en aðr­ir, þar sem tekju­hærri hafa almennt verið lík­­­legri til að spara sér­­­eign en tekju­lægri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár