Tekjuhæstu tíu prósentin fengu 30 prósent af Leiðréttingunni

Þau tíu pró­sent lands­manna sem þén­uðu mest á árinu 2014 fengu tæp­lega 30 pró­sent af þeim 72,2 millj­örðum króna sem ráð­stafað var inn á fast­eigna­veð­lán hluta lands­manna í gegnum Leið­rétt­ing­una, nið­ur­færslu á verð­tryggðum lánum sem rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar hrinti í fram­kvæmd. Með­al­heild­ar­tekjur þessa hóps árið 2014 voru 21,6 millj­ónir króna. Það þýðir að um 22 millj­arðar króna hafi runnið til þess tíu pró­sent lands­manna sem hafði hæstar tekjur árið 2014 í gegnum Leið­rétt­ing­una. Sú tíund Íslend­inga sem átti mestar eignir, en með­al­tals­eign hóps­ins er 82,6 millj­ónir króna, fékk tæp­lega tíu millj­arða króna úr rík­is­sjóði í gegnum Leið­rétt­ing­una.

Til sam­an­burðar fékk tekju­lægri helm­ingur þjóð­ar­innar 14 pró­sent upp­hæð­ar­innar í sinn hlut, eða rúm­lega tíu millj­arða króna. Það þýðir að 86 pró­sent hennar fór til þess helm­ings þjóð­ar­innar sem hafði hærri tekjur. Þetta kemur fram í skýrslu um nið­ur­færslu verð­tryggðra lána sem beðið var um í júní 2015, fyrir rúmum 19 mán­uðum síðan. Skýrslan var birt á vef fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins í dag.

Alls er skýrslan átta blað­síður og í henni er ekki að finna tæm­andi upp­lýs­ingar um hvernig leið­rétt­ingin skipt­ist á milli hópa Íslend­inga. Flest svörin eru sett fram í gröfum sem erfitt er að sjá nákvæma skipt­ingu út úr.

Skýrslan er svar við fimm spurn­ingum sem þing­menn stjórn­ar­and­stöð­unnar settu fram í kjöl­far þess að fyrri skýrsla um skipt­ingu Leið­rétt­ing­ar­innar þótti ekki gefa full­nægj­andi upp­lýs­ingar um hvernig hún skipt­ist á milli hópa sam­fé­lags­ins, meðal ann­ars eftir tekjum og eignum. Fyrri skýrsla hafði ein­ungis sýnt hvernig Leið­rétt­ingin hafði skipst milli þeirra hópa sem hana fengu, ekki hvernig sú skipt­ing leit út þegar hinir sem áttu ekki rétt á henni voru taldir með.

Fyrsta spurn­ingin sner­ist um hvernig heild­­ar­­upp­­hæð þeirrar fjár­­hæðar sem varið hefur verið til lækk­­unar verð­­tryggðra fast­­eigna­veð­lána ein­stak­l­inga skipt­ist milli beinnar höf­uð­stólslækk­­unar á fast­­eigna­veð­lánum ein­stak­l­inga og frá­­­drátt­­ar­liða, svo sem fast­­eigna­veð­krafna án veð­­trygg­inga, van­skila og greiðslu­­jöfn­un­­ar­­reikn­inga. Næstu tvær voru spurn­ingar um hverjir frá­­­drátt­­ar­lið­irnir væru og hver er skipt­ingin milli þeirra í krónum talið, og hvert heild­­ar­hlut­­fall beinnar höf­uð­stólslækk­­un­­ar, þ.e. lækk­­unar höf­uð­stóls að und­an­­skildum frá­­­drátt­­ar­lið­um, af verð­­tryggðum fast­­eigna­veð­lán­um, væri?

Þessum spurn­ingum er svarað öllum saman í skýrsl­unni.

Í svari ráðu­neyt­is­ins kemur fram að heild­ar­fjár­hæðin sem ráð­stafað var inn á fast­eigna­veð­lán hafi verið 72,2 millj­arðar króna, og þar af hafi 62,4 millj­örðum verið ráð­stafað sem beinni höf­uð­stólslækkun. 8,7 millj­örðum hafi verið ráð­stafað inn á greiðslu­jöfn­un­ar­reikn­inga, 1,3 millj­arða króna inn á van­skil, áfallnar verð­bætur eða vexti og 970 millj­ónir króna inn á fast­eigna­veð­kröfur sem glatað hafa verð­trygg­ingu. Hlutfall beinnar höf­uð­stólslækk­unar af leið­rétt­ing­ar­fjár­hæð sem ráð­stafað var til lækk­unar á höf­uð­stól fast­eigna­veð­lána er 98 pró­sent, þar af eru greiðslur inn á greiðslu­jöfn­un­ar­reikn­inga 12 pró­sent en þeir eru hluti höf­uð­stóls.

Þeir sem áttu tugi milljóna fengu um tíu milljarða

Í fjórðu spurn­ingu var spurt um hvernig heild­ar­upp­hæðin sem varið var í Leið­rétt­ing­una skipt­ist á milli tekna allra fram­telj­enda árið 2014. Í svar­inu kemur fram að lang stærsti hluti fjár­ins fór til þess hóps sem er í efri hluta tekju­dreif­ingar lands­manna. Tölurnar eru þó ekki sund­ur­lið­aðar í krónum eða hlut­föllum eftir tekju­bilum heldur er birt graf með tekju­tí­undum og valdar upp­lýs­ingar úr því settar fram í texta. Þar kemur fram að tekju­lægri helm­ingur lands­manna fékk tæp­lega 14 pró­sent af leið­rétt­ing­ar­fénu en tekju­hæstu tíu pró­sent þeirra fékk tæp­lega 30 pró­sent upp­hæð­ar­innar.

Fimmta og síð­asta spurn­ingin sner­ist um hvernig Leið­rétt­ingin skipt­ist á milli eign­ar­hópa. Í svari ráðu­neyt­is­ins segir að þeir sem eru í efstu eign­ar­tí­und­inni, og áttu hreina eign yfir 82,6 millj­ónum króna, hafi fengið 13,3 pró­sent upp­hæð­ar­innar. Það þýðir að 9,6 millj­arðar króna hafi farið til fólks sem átti 82,6 millj­ónir króna eða meira í hreinni eign. Samkvæmt grafi sem birt er með svar­inu þá virð­ist tæp­lega 70 pró­sent upp­hæð­ar­innar hafa farið til þess helm­ings Íslend­inga sem á mestar tekjur. Hinn helm­ing­ur­inn, sá sem á litlar eða engar eignir, fékk því um 30 pró­sent upp­hæð­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár