Um ellefu milljarðar greiddir inn á lán undir hatti „Fyrstu fasteignar“ á tveimur árum

Úrræði sem stjórn­völd kynntu fyrir fyrstu fast­eigna­kaup­endur, og tryggði þeim skatt­frjálsa ráð­stöfun sér­eignar inn á hús­næð­is­lán, fór hægt af stað. Eftir að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á hefur nýt­ing á því hins vegar marg­fald­ast.

Úrræðið var kynnt 2016, af Bjarna Benediktssyni og Sigurði Inga Jóhannssyni, og tók gildi um mitt ár 2017.
Úrræðið var kynnt 2016, af Bjarna Bene­dikts­syni og Sigurði Inga Jóhanns­syni, og tók gildi um mitt ár 2017. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Alls hafa þeir sem nýtt hafa sér úrræðið „Fyrsta fast­­eign“ greitt inn á lán sín eða borgað í útgreiðslu á útborgun fyrir íbúð 16,5 millj­­arða króna frá því að úrræðið tók gildi. um 9,5 millj­­arðar króna hafa verið nýttir til að greiða inn á lán og um sjö millj­­arðar króna í útgreiðslu.

[links]Alls hafa þeir sem nýtt hafa sér úrræðið „Fyrsta fast­­eign“ greitt inn á lán sín eða borgað í útgreiðslu á útborgun fyrir íbúð 10,5 millj­­arða króna frá því að úrræðið tók gildi. um 5,9 millj­­arðar króna hafa verið nýttir til að greiða inn á lán og tæp­­lega 4,6 millj­­arðar króna í útgreiðslu.

Þetta kemur fram í tölum sem fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið hefur tekið saman fyrir Kjarn­ann.

Sam­­­­kvæmt úrræð­inu geta þeir nýtt sér­­­­­­­eign­­­­ar­líf­eyr­is­­­­sparnað til að safna fyrir inn­­­­­­­borgun á fyrstu íbúð­­­­ar­­­­kaup eða greitt inn á höf­uð­stól hús­næð­is­láns. Alls er heim­ilt að ráð­stafa að hámarki 500 þús­und krónum á ári í mest tíu ár með ofan­­­­greindum hætti sam­­­­kvæmt skil­­­­málum „Fyrstu fast­­­­eign­­­­ar“.

Faraldurinn jók nýtingu mikið

Úrræðið hefur staðið til boða frá árinu 2017. Framan af var það ekki nýtt mikið en nýt­ingin tók veru­lega við sér þegar kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á, vextir lækk­uðu skarpt og fram­boð af hús­næð­is­lánum á skap­legum kjörum jókst mikið.

[adspot]Á árinu 2020 rúm­lega tvö­fald­að­ist upp­hæðin sem var notuð til að greiða inn á lán eða í útgreiðslu undir hatti „Fyrstu fast­eign­ar“ úr 5,2 í 10,5 millj­arða króna. Í fyrra jókst hún um enn hærri upp­hæð, sex millj­arða króna, og stendur nú, líkt og áður sagði, í 16,5 millj­örðum króna. Rúmlega tvær af hverjum þremur krónum sem nýttar hafa verið í úrræð­inu hafa því verið nýttar á árunum 2020 og 2021.

Á sama tíma hefur hús­næð­is­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hækkað um 27 pró­sent.

Langt frá settu markmiði

Þegar úrræðið „Fyrsta fast­eign“ var kynnt í Hörpu um miðjan ágúst 2016 af þáver­andi ráða­­­­mönnum þjóð­­­­ar­innar kom fram í glæru­kynn­ingu að um 50 millj­­­­arðar króna myndu rata í inn­­­­greiðslur á hús­næð­is­lánum vegna „Fyrstu fast­­­­eign­­­­ar“ á tíu árum eftir að úrræðið tæki gild­i.

Sam­­­­kvæmt kynn­ing­unni áttu um 14 þús­und manns að nýta sér úrræðið á fyrstu árum þess. Þá var lagt upp með að árlega myndu um tvö þús­und manns mæt­­­­ast í hóp þeirra sem eiga kost á því að nýta sér úrræð­ið.

Í dag, þegar gild­is­tími úrræð­is­ins er næstum hálfn­aður hafa 17.347 nýtt sér „Fyrstu fast­eign“ og heild­ar­upp­hæðin sem ráð­stafað hefur verið undir hatti úrræð­is­ins 16,5 millj­arðar króna, eða þriðj­ungur þeirrar upp­hæðar sem ráða­menn kynntu að yrðu greiddar inn á hús­næð­is­lán innan þess.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár