Ólíkar skoðanir á því að greiða út persónuafslátt

Hug­myndir um að greiða út per­sónu­af­slátt voru viðr­aðar á Alþingi í vik­unni en sitt sýn­ist hverjum um málið. Þing­flokks­for­maður Pírata lagði til að tala frekar um „per­sónu­arð“.

Halldóra Mogensen, þingflokksformaður Pírata.
Halldóra Mogensen, þing­flokks­for­maður Pírata. Mynd: Bára Huld Beck

Sérstök umræðu var á Alþingi í vik­unni um að greiða út per­sónu­af­slátt en máls­hefj­andi var Halldóra Mogensen, þing­flokks­for­maður Pírata. Hún telur að slík aðgerð gæti orðið náms­mönnum og hinum lægst settu í sam­fé­lag­inu til góðs. Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, telur þetta aftur á móti ekki góða hug­mynd, hún myndi meðal ann­ars hafa nei­kvæða hvata á vilja fólks til að vinna.

Halldóra benti á í ræðu sinni að per­sónu­af­sláttur frá tekju­skatti hefði nú verið við lýði í rúm­lega 30 ár. Hann hefði reynst mjög gott tæki til að auka ráð­stöf­un­ar­tekjur þeirra sem minnstar tekjur hafa og aukið tæki­færi lág­tekju­fólks.

„Aftur á móti hafa þeir sem engar tekjur hafa ekki notið góðs af per­sónu­af­slætti, enda engar tekjur til að veita afslátt af. Þrátt fyrir að hljóma mis­vísandi, þá er það engu að síður hægt. Slíkt má gera með því að greiða út til ein­stak­linga þá fjár­hæð per­sónu­af­sláttar sem við­kom­andi nýtir sér ekki í hverjum mán­uði. Slík útgreiðsla á ónýttum per­sónu­af­slætti – öðru nafni nei­kvæður tekju­skattur – myndi hér á Íslandi sér­stak­lega nýt­ast ungu fólki og náms­mönnum, sem margir hverjir afla lít­illa tekna en safna í stað þess skuldum í formi náms­lána,“ sagði hún.

Hætta að láta sig eingöngu dreyma og raungera hugmyndir

Halldóra benti jafn­framt á að sífellt ykjust kröfur til barna og ung­menna á Íslandi. Þar sem áður hefði dugað að vera með stúd­ents­próf þyrfti nú að minnsta kosti eina háskóla­gráðu, helst tvær. Slíkt tæki auð­vitað mörg ár, ár þar sem við­kom­andi ein­stak­lingur væri tekju­laus, eða í besta falli mjög tekju­lít­ill. Samhliða háskóla­námi hlæð­ust upp náms­lán, og þrátt fyrir að full­víst væri að þau þurfi að borga til baka væri alls ekki á vísan að róa með örugga atvinnu að loknu námi. Allt þetta ylli streitu og van­líðan.

„Ef náms­mönnum væri greiddur út ónýttur per­sónu­af­sláttur á meðan námi stæði gætu ein­hverjir þeirra mögu­lega tekið lægri náms­lán eða hrein­lega bara látið enda ná saman. Ein­hverjir munu hins vegar nýta tæki­færið sem svona örygg­is­net veitir til að hætta að láta sig ein­göngu dreyma og raun­gera hug­myndir sínar. Einnig mun þessi hóg­væra upp­hæð geta haft áhrif á hvenær fólk ákveður að stofna fjöl­skyldu og eign­ast börn að loknu námi,“ sagði hún.

Allt væru þetta atriði sem talin eru þjóð­fé­lagi til tekna í nýjum vel­sæld­ar­mark­miðum rík­is­stjórn­ar­innar.

Gæti breytt stöðu þeirra verst stöddu

„En útgreiddur ónýttur per­sónu­af­sláttur nýt­ist ekki bara náms­mönnum. Atvinnu­líf um allan heim er að þró­ast í þá átt að fólk ræður sig til ein­stakra verk­efna frekar en í fasta laun­aða vinnu. Það veitir atvinnu­rek­endum auk­inn sveigj­an­leika, en er ekki beint fallið til að auka öryggi starfs­fólks­ins sem um ræðir. Það gerir það hins vegar að verkum að upp munu koma til­vik þar sem fólk missir út tekjur í stuttan tíma og gæti þessi aðgerð hjálpað til við að brúa þau tíma­bil,“ sagði hún.

Krafan um símenntun væri einnig komin til að vera og myndi ein­göngu aukast á næstu miss­erum. Með þess­ari aðgerð yrði fólki gert auð­veld­ara um vik til að sækja sér hana og efla sig í starfi.

Útgreiðsla ónýtts per­sónu­af­sláttar nýtt­ist þó ekki ein­göngu innan mennta­kerf­is­ins eða á atvinnu­mark­aði. Hluti öryrkja og þeirra sem búa við fjár­hags­að­stoð sveit­ar­fé­laga hefði svo lágar tekjur að þær næðu ekki upp í þá upp­hæð sem full­nýtir per­sónu­af­slátt­inn. Nei­kvæður tekju­skattur myndi geta breytt stöðu þeirra verst stöddu og það eitt og sér gerði þessa hug­mynd þess virði að láta á hana reyna.

Myndi margfalt borga sig

„Þekkt er að það kostar pen­inga að búa til pen­inga. Þrátt fyrir að eiga upp­runa sinn í rekstri fyr­ir­tækja nær orða­til­tækið alveg jafn­vel yfir hið opin­bera. Það sem átt er við er að inn­viðir sem styrkja ein­stak­linga búa til betri ein­stak­linga sem munu skila meira til sam­fé­lags­ins til baka. Streita, áhyggjur af skuldum og sér­stak­lega glötuð tæki­færi frum­kvöðla sem aldrei náðu sér á flug kosta þjóð­fé­lagið gríð­ar­lega mikið,“ sagði Halldóra.

Hún sagði enn fremur að þessi hug­mynd væri ekki ókeypis í fram­kvæmd, hún kost­aði um 10 millj­arða en grein­ingar sýndu að ávinn­ing­ur­inn yrði mun meiri. Eina leiðin til að kom­ast að því fyrir víst væri að láta af henni verða og mæla árang­ur­inn. Ef nið­ur­staðan yrði sparn­aður í heil­brigð­is­kerf­inu, aukin aðsókn í nám og aukin nýsköpun, með til­heyr­andi stofnun nýrra fyr­ir­tækja, eins og rann­sóknir bentu til, þá myndi aðgerðin borga sig marg­falt til baka.

Leggur til orðið „persónuarður“

Þing­mað­ur­inn aug­lýsti jafn­framt eftir nýju heiti yfir þessa hug­mynd sem þekk­ist nú sem nei­kvæður tekju­skattur. „Eitthvað aðeins jákvæð­ara og fal­legra. Eftir að hafa lagt höf­uðið í bleyti datt mér í hug að ónýttur útgreiddur per­sónu­af­sláttur – annað ónot­hæft orð­skrípi – væri lík­lega best lýst með orð­inu per­sónu­arður,“ sagði hún.

Þótt orðið per­sónu­arður væri nýtt þá væri hug­myndin hvorki ný né frum­leg. Hún væri ekki einu sinni dýr. „En engu að síður hefur aldrei verið á það reynt af alvöru hvort lág­marks­fram­færsla muni auka vel­sæld fólks­ins í land­inu. Í stað­inn hefur verið reynt að plástra upp í ein­staka göt glopp­ótts kerfis með aðgerðum sem annað hvort ná ekki utan um vanda­málið eða kosta meira í umsýslu en vanda­málið sjálft. Með breyttum atvinnu­háttum, snar­lækk­andi tryggð á vinnu­mark­aði og auk­inni kröfu um menntun og þekk­ingu gengur ekki að hið opin­bera ríg­haldi í gamlar kenni­setn­ingar og reyni að troða sam­fé­lag­inu í þann ramma. Því það er ekki nóg að tala bara fal­lega um fram­tíð­ina, við þurfum núna að fara að búa hana til! Og til þess þurfum við fjár­festa í fólki, því fólkið er fram­tíðin,“ sagði hún að lokum.

Fagnaði umræðunni

Fjármála- og efna­hags­ráð­herra svar­aði Halldóru og sagð­ist fagna því að taka umræð­una í þing­inu. Þetta væri vissu­lega ekki algjör­lega ný hug­mynd en þau hefðu þó aldrei tekið hana til djúprar athug­unar. „En hér virð­ist útgangs­punkt­ur­inn vera sá að útgreiðsla ónýtts per­sónu­af­sláttar væri ekki sér­lega dýr aðgerð en að ávinn­ing­ur­inn væri mik­ill, sér­stak­lega fyrir ungt fólk og náms­menn.“ Hann benti á að úttekt frá árinu 2019 hefði ónýttur per­sónu­af­sláttur við álagn­ingu árs­ins verið 11,2 millj­arðar sem gæfi þá mynd af áhrifum þess­ara hug­mynda en hann taldi að þetta væru veru­legar fjár­hæðir. „Og því til við­bótar verður að telj­ast afar lík­legt að þessi breyt­ing myndi hafa til­tekna hvata í för með sér sem gætu orðið til þess að auka enn frekar á fjár­hags­legu áhrifin.“

Hann sagði að einnig hefði komið fram í grein­ingu ráðu­neyt­is­ins að af þessum 11,2 millj­örðum þá væru það ríf­lega þrír millj­arðar sem ekki nýtt­ust hjá 16 og 17 ára ein­stak­lingum. Alls um fimm millj­arðar sem væru hjá þeim sem eru undir tví­tugu. „Og vegna þess að hér er námið nefnt til sög­unnar vill ég láta þess getið hér að það liggur fyrir þing­inu frum­varp til breyt­inga á lána­sjóði íslenskra náms­manna sem felur í sér tölu­vert miklar breyt­ingar á stuðn­ingi stjórn­valda við náms­menn sem munu hafa veru­leg áhrif á kjör náms­manna til hins betra.“

Myndi hafa neikvæða hvata á vilja fólks til vinnu

Bjarni sagði að rík­is­stjórnin væri í miðju verki að vinna úr ýmsum hug­myndum sem að öðru leyti væri beint sér­stak­lega að ungu fólki. Þar mætti nefna sér­stakan hús­næð­is­stuðn­ing, svo sem stuðn­ing við fyrstu kaup, auk þess sem áhrif skatt­kerf­is­breyt­inga sem tóku gildi um ára­mótin, gagn­að­ist vænt­an­lega ungu fólki sem jafn­framt væri fremur tekju­lágt – enda væru þær aðgerðir sniðnar að þeim hópi og hefði meðal ann­ars verið byggt á úttekt sér­staks sér­fræði­hóps sem hefði ekki talið gagn­legt að fara í útgreiðslu á ónýttum per­sónu­af­slætti, sér­stak­lega vegna þess að það myndi leiða til svo hárra jað­ar­skatta. Þessir jað­ar­skattar yrðu þá sér­lega háir á fólk með lágar tekjur.

„Þetta myndi með öðrum orðum hafa mjög nei­kvæða hvata á vilja fólks til vinnu,“ sagði hann. Þá taldi ráð­herr­ann að þessar hug­myndir Pírata væru í ætt við hug­myndir um borg­ara­laun og sagði hann að þeir sem fylgst hafa fylgst með þeim málum í til­raun ann­ars staðar hefði vænt­an­lega tekið eftir því að það hefði komið fram ýmsir van­kantar á slíkum hug­myndum.

Betra að lækka skatta

„Ef við viljum gera ráð­staf­anir hér upp á tíu, ell­efu eða tólf millj­arða þá í mínum huga ættum við ein­fald­lega að lækka skatt­ana. Ég skil ekki hvers vegna – þegar við höfum búið til kerfi sem segir við þá sem geta farið að vinna – að þau geti gert það skatt­laust vegna per­sónu­af­slátt­ar­ins að við ættum að ganga lengra heldur en það.“

Bjarni sagði að per­sónu­af­slátt­ar­kerfið ætti einmitt að nýt­ast náms­mönnum og ungu fólki vel. „Það dregur svo veru­lega úr árlegri skatt­byrði þessa hóps vegna þess að hann getur nýtt sum­ar­mán­uð­ina til vinnu og per­sónu­af­slátt­ur­inn tryggir að heild­ar­skatt­byrði árs­ins verður mun minni. Og ef það er eitt­hvað sem við þurfum á næstu árum þá er það að auka fram­leiðn­ina en ekki með því að senda fólki tékka heim og hvetja það til að fara ekki að vinna. Akkúrat öfugt við það sem við þurfum að gera á næstu árum.“

Að lokum sagð­ist hann ekki vera hrif­inn af hug­mynd­inni og að hægt væri að ráð­stafa slíkum fjár­munum með skyn­sam­legri hætti. „Og ég tel að við ættum almennt að byggja upp kerfin okkar þannig að það sé hvati til að fara að vinna og skapa verð­mæti.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár