Óviss framtíð einungis tveimur árum frá gangsetningu

Tíma­bundin rekstr­ar­stöðvun er framundan hjá kís­il­veri PCC á Bakka við Húsavík, ein­ungis tveimur árum eftir að verk­smiðjan var gang­sett. Ríkið hefur varið millj­örðum króna í að verk­efnið á Bakka verði að veru­leika á und­an­förnum árum.

Kísilver PCC á Bakka var gangsett í maí árið 2018, eftir þriggja ára framkvæmdatímabil. Stefnt er að því að slökkva á báðum ofnum þess í lok júlí.
Kísilver PCC á Bakka var gang­sett í maí árið 2018, eftir þriggja ára fram­kvæmda­tíma­bil. Stefnt er að því að slökkva á báðum ofnum þess í lok júlí. Mynd: Sunna Ósk Logadóttir

Fram­kvæmdir við kís­il­ver fyr­ir­tæk­is­ins PCC BakkiSilicon hf. hófust á iðn­að­ar­svæð­inu á Bakka við Húsavík árið 2015, eftir nokk­urra ára und­ir­bún­ing. Í fréttum frá þeim tíma kom fram að um 40 millj­arða fjár­fest­ingu væri að ræða og talað var um að verk­smiðjan ætti að skapa um 120 störf til fram­tíðar.

Núna á fimmtu­dag, ein­ungis rúmum tveimur árum eftir að verk­smiðjan kveikti í fyrsta sinn á ofnum sínum, greindi fyr­ir­tækið hins vegar frá því að búið væri að segja upp um 80 starfs­mönnum og að slökkt yrði báðum ljós­boga­ofnum verk­smiðj­unnar tíma­bundið í lok júlí. Þetta segir fyr­ir­tækið gert vegna áhrifa kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins, sem hafi dregið úr spurn eftir kís­il­málmi og valdið verð­lækk­unum á heims­mark­aði.

Ekki er ljóst hvenær hægt verður að gang­setja ofn­ana á ný, en Rúnar Sig­ur­páls­son for­stjóri kís­il­verk­smiðj­unnar sagði við mbl.is fyrir helgi að hann gæti ekki sagt til um hvort fram­leiðslu­stöðv­unin yrði sex mán­uðir, tólf mán­uðir eða jafn­vel lengri. Heims­far­ald­ur­inn er óúreikn­an­legur, sagði for­stjór­inn, en ljóst er að vand­ræði verk­smiðj­unnar eru þó ekki nýtil­komin.

Rekstrarerfiðleikar komu fljótt fram

Rekstur verk­smiðj­unnar hefur verið erf­iður allt frá upp­hafi, en frá því að kís­il­verið var gang­sett vorið 2018 hafa bil­anir og þungar aðstæður á hrá­vöru­mörk­uðum sett mark sitt á hann.

[adspot]

Verk­smiðjan er í meiri­hluta­eigu þýska stór­fyr­ir­tæk­is­ins PCC SE, sem á 86,5 pró­sent hlut, en inn­lendir líf­eyr­is­sjóðir og Íslands­banki eiga líka 13,5 pró­sent hlut í félag­inu í gegnum fjár­fest­inga­fé­lagið Bakka­stakk. Í apríl fjöll­uðu bæði Við­skipta­blaðið og Frétta­blaðið um að líf­eyr­is­sjóðir hefðu fært niður hlutafé sitt í Bakka­stakki að öllu eða mestu leyti, vegna rekstr­ar­ó­vissunnar.

Þá hafði þýska móð­ur­fé­lagið skömmu áður lagt PCC á Bakka til um 40 millj­ónir banda­ríkja­dala, meira en fimm millj­arða íslenskra króna, í formi hlut­haf­a­láns, til þess að bæta lausa­fjár­stöðu kís­il­vers­ins og tryggja rekstr­ar­grund­völl þess. Ljóst var orðið að leggja þyrfti félag­inu til aukið rekstr­arfé strax síð­asta haust.[links]

Auk þess­ara miklu fjár­fest­inga af hálfu eig­enda kís­il­verk­smiðj­unnar hefur íslenska ríkið á ýmsan hátt liðkað fyrir því að verk­smiðjan, sem nú er ekki talið hag­kvæmt að halda í rekstri, kæm­ist í rekstur sem fyrsta fyr­ir­tækið á iðn­að­ar­svæð­inu við Bakka.

Þar höfðu heima­menn á Húsavík lengi haft hug­myndir um að byggja upp orku­freka iðn­að­ar­starf­semi, sem knýja mætti áfram með því að beisla orku nátt­úru­auð­linda í nágrenn­inu. Alcoa var með stórt álver á teikni­borð­inu á Bakka árum saman, en af þeirri fram­kvæmd varð ekki.

Árið 2014 sam­þykkti ESA, eft­ir­lits­stofnun EFTA, að rík­is­sjóður og sveit­ar­fé­lagið Norð­ur­þing mættu veita tæp­lega fjög­urra millj­arða króna rík­is­að­stoð frá til fram­kvæmd­ar­innar, í formi beins fjár­styrks til lóð­ar­fram­kvæmda, afslátta á tekju­skatti, fast­eigna­skatti og hafn­ar­gjöldum, auk nið­ur­fell­ingu á ýmsum sköttum og gjöldum til allt að tíu ára. Áður hafði ESA sam­þykkt rík­is­að­stoð til Hafn­ar­sjóðs Norð­ur­þings vegna bygg­ingar iðn­að­ar­hafnar á Húsavík, sem tengd­ist upp­bygg­ing­unni á Bakka.

Jarðgöng sem tengja iðn­að­ar­svæðið á Bakka við Húsa­vík­ur­höfn varð helsti kostn­að­ar­lið­ur­inn sem ríkið tók á sig, en heild­ar­kostn­aður rík­is­ins vegna jarð­gang­anna undir Húsa­vík­ur­höfða og veg­teng­ingum við þau nam rúmum 3,5 millj­örðum króna með verð­bótum.

Hann varð rúm­lega 1,7 millj­arði hærri en upp­haf­lega var gert ráð fyrir, sam­kvæmt því sem fram kom í svari Þórdís Kol­brúnar R. Gylfa­dóttur ráð­herra iðn­að­ar­mála við fyr­ir­spurn Birgir Þór­ar­ins­sonar þing­manns Mið­flokks­ins í lok jan­úar í fyrra.

Virkjað að Þeistareykjum til að veita orku á Bakka

Einnig virkj­aði Lands­virkjun á jarð­varma­svæð­inu að Þeista­reykjum og Landsnet lagði tug­kíló­metra háspennu­línur til þess að orku­frekur iðn­aður á borð við kís­il­ver geti starfað á Bakka, en enn sem komið er kís­il­ver PCC eina verk­smiðjan sem hefur risið á svæð­inu.

Samkvæmt fréttum frá árinu 2015, þegar fram­kvæmdir hófust og eft­ir­lits­stofnun EFTA var búin að leggja blessun sína yfir að í raf­orku­samn­ingi Lands­virkj­unar við PCC fælist ekki ólög­mæt rík­is­að­stoð, var gert ráð fyrir því að kostn­aður við Þeista­reykja­virkjun yrði 5 millj­arðar og kostn­aður við línu­lagnir Lands­nets 1,5 millj­arðar króna.

Árleg orku­þörf kís­il­vers­ins þegar það fram­leiðir á fullum afköstum er 456 þús­und mega­vatt­stundir, en fram kom í Frétta­blað­inu í gær að fram­leiðslu­stöðvun PCC á Bakka gæti kostað Lands­virkjun yfir 300 millj­ónir króna á árs­grund­velli, sé miðað við að verk­smiðjan kaupi raf­magn á 25 doll­ara á mega­vatt­stund og hafi 80 pró­senta lág­marks­kaup­skyldu.

Ekki fæst þó upp­gefið hjá PCC hversu mikið af umsaminni orku kís­il­verk­smiðjan þarf að greiða fyrir á meðan fram­leiðslu­stoppið varir, sam­kvæmt umfjöllun Frétta­blaðs­ins.

Högg

Ljóst er að vænt­an­leg rekstr­ar­stöðvun kís­il­vers­ins er högg fyrir sam­fé­lagið á Húsavík og í Norð­ur­þingi öllu, enda hafa umsvifin sem fylgdu rekstr­inum verið mikil. Sveit­ar­stjórnin sendi frá sér yfir­lýs­ingu á fimmtu­dag þar sem fram kom að hugur þeirra væri hjá starfs­mönnum sem hefðu misst vinn­una og fjöl­skyldum þeirra, en fram hefur komið að flestir þeirra sem missa vinn­una eru bara með eins eða tveggja mán­aða langan upp­sagn­ar­frest.

„Allir munu leggj­ast á eitt til að sam­fé­lagið kom­ist sem fyrst í gegnum þessa stöðu. Allar for­sendur eru fyrir því að í Norð­ur­þingi geti atvinnu­líf og sam­fé­lag tekið vel við sér í kjöl­far heims­far­ald­urs­ins. Á svæð­inu eru auð­lindir, inn­viðir og tæki­færi til frek­ari upp­bygg­ingar atvinnu­lífs­ins sem brýnt er að verði nýtt,“ sagði í yfir­lýs­ingu sveit­ar­stjórn­ar­innar.

Setja þurfi „meiri kraft“ í að koma upp starfsemi á Bakka

Leið­togar rík­is­stjórn­ar­flokk­anna hafa einnig tjáð sig um stöð­una. Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efn­hags­ráð­herra sagði við RÚV á föstu­dag að ákvörð­unin væri mikið högg, sem þjóð­ar­búið finni fyrir. Hann sagði að staða fyr­ir­tækja í orku­frekum iðn­aði á Íslandi væri almennt áhyggju­efni um þessar mundir.

Sigurður Ingi Jóhanns­son ráð­herra byggða­mál sagði sömu­leiðis við RÚV á föstu­dag að meta þyrfti áhrifin af þessu áfalli fyrir sam­fé­lagið í Norð­ur­þingi. Hann sagði einnig að setja þyrfti „meiri kraft“ í að koma upp fleiri atvinnu­tæki­færum á iðn­að­ar­svæð­inu við Bakka, þar sem það hefði ekki tek­ist hingað til.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár