PCC reisir kísilver á Bakka - 40 milljarða framkvæmd

PCC BakkiSilicon hf. hefur ákveðið að reisa kís­il­ver á iðn­að­ar­svæð­inu á Bakka við Húsavík til fram­leiðslu á kís­il­málmi og er áætluð árleg fram­leiðslu­geta vers­ins 32.000 tonn í fyrri áfanga en full­byggð er áætluð afkasta­geta 66.000 tonn. Aflþörf vers­ins er 53 MW í fyrri áfanga og áætlað er að 48 MW komi frá hinni nýju virkjun Lands­virkj­unar að Þeista­reykjum. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu.

Fyr­ir­vörum, sem voru í samn­ingum Sveit­ar­fé­lags­ins Norð­ur­þings og íslenska rík­is­ins við þýska fyr­ir­tækið PCC SE og dótt­ur­fé­lag þess PCC BakkiSilicon hf. um bygg­ingu og rekstur kís­il­vers á Bakka, hefur nú verið aflétt og því munu fljót­lega hefj­ast marg­vís­legar fram­kvæmdir tengdar upp­bygg­ingu þess og iðn­aðar­svæð­is­ins í heild sinni.


Bygg­ing­ar­kostn­aður kís­il­vers­ins er tal­inn verða um 300 millj­ónir Banda­ríkja­dala eða nálægt fjöru­tíu millj­örðum íslenskra króna. Áætlað er að allt að 400 manns starfi við upp­bygg­ing­una og að við fyrri áfanga vers­ins muni skap­ast um 120 fram­tíð­ar­störf, auk afleiddra starfa. Áætlanir gera ráð fyrir að fram­leiðsla geti haf­ist í árs­lok 2017.


„Auk bygg­ingar kís­il­vers­ins verður sam­hliða ráð­ist í hafnar- og vega­fram­kvæmdir sem, auk þess að þjón­usta rekstur PCC BakkaSilicon hf., búa í hag­inn fyrir frek­ari iðn­aðar­upp­bygg­ingu á Bakka. Því til við­bótar má nefna fram­kvæmdir Lands­virkj­unar að Þeista­reykjum og fyr­ir­hug­aða línu­lögn Lands­nets hf. til Húsa­víkur, en hvoru tveggja mun styrkja mjög inn­viði sveit­ar­fé­lag­anna á svæð­inu og gefa kost á frek­ari atvinnu­upp­bygg­ingu á NA-horn­inu,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár