Grikkjum gert að afsala sér fjárhagslegu fullveldi sínu

Grikkir þurfa nánast að afsala sér fjárhags­legu fullveldi sínu, og ráðast í umfangs­miklar niður­skurðar­aðgerðir og einka­væðingu, ætli þeir að forða sér frá gjald­þroti og hanga inni í evru­samstarfinu. Þetta kem­ur meðal ann­ars fram í til­lögu að sam­komu­lagi um skulda­vanda Grikk­lands sem sett var sam­an á fundi fjár­mála­ráðherra evru­ríkj­anna í dag. The Guardian fjallar um málið. Ná­ist sam­komu­lag þurfa Grikk­ir lík­lega á bil­inu 82-86 millj­arða evra sam­kvæmt til­lögu ráðherr­anna.

Angela Merkel, kanslari Þýska­lands, og Francoise Holland, Frakk­lands­forseti, kynntu Alexis Tsipras, forseta Grikk­lands, skilyrðin fyrir tugmilljarða evra neyðar­láni til handa Grikkjum, á fundi í Brussel í dag. Merkel og Hollande gengu hart fram gegn Tsipras í dag um að hann ábyrgðist að staðið verði við samkomu­lagið ef af því verður.

Ef Grikkir ganga ekki að skilyrðunum fyrir neyðar­láninu, mun þjóðin ganga tíma­bundið út úr evru­samstarfinu á meðan gríska ríkið vinnur að endur­skipulagningu skulda þjóðar­búsins. Gangi þjóðin af skilyrðum evru­ríkjanna, verða Grikkir að framselja yfirráð sín yfir ríkis­eignum að andvirði 50 milljarða evra sem tryggingu fyrir neyðar­láninu og að ráðist verði í einka­væðingu ríkis­fyrirtækja. Hvorug leiðin naut samhljóma stuðnings leiðtoga evru­svæðisins.

Skilyrðin fyrir neyðar­láninu eru mun strangari en kröfu­hafar Grikk­lands hafa áður farið fram á á síðastliðnum fimm árum. Samkvæmt heimildum Guardian má rekja hina auknu hörku til þjóðar­atkvæða­greiðslunnar sem grísk stjórn­völd efndu til með litlum fyrirvara á dögunum, sem hleypti illu blóði í viðsemjendurna.

„Honum var sagt að hann myndi fá betri samning ef já kæmi upp úr kössunum, og að nei myndi þyngja samninga­gerðina verulega,“ segir heimilda­maður The Guardian.

Ríkis­sjóður Grikk­lands skuldar 320 milljarða evra, eða 177 prósent af þjóðar­framleiðslu landsins, þrátt fyrir að hafa þegar fengið um 240 milljarða evra í neyðarlán á undan­förnum árum. Þjóðar­framleiðsla Grikk­lands hefur fallið um 25 prósent frá árinu 2010, og atvinnu­leysi í landinu mælist nú 26 prósent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár