Bjarni hættir sem forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur

Forstjóri Orkuveitu Reykja­víkur, Bjarni Bjarnason, óskaði eftir því á fundi stjórnar Orkuveitu Reykja­víkur að láta af störfum sem forstjóri í mars á næsta ári. Þá verða tólf ár liðin síðan Bjarni tók við forstjóra­stöðunni.

„Fyrsta mars á næsta ári eru 12 ár liðin síðan ég tók við starfi forstjóra Orkuveitu Reykja­víkur. Það er vilji minn að láta af starfi forstjóra á þeim tímamótum. Með því að boða starfslok mín með góðum fyrirvara vil ég gefa stjórn OR tækifæri til að hefja leit að eftir­manni, konu eða karli,“ segir í bókun forstjóra Orkuveitu Reykja­víkur sem hann lagði fram á fundi stjórnar í dag mánudag.

Bjarni segir í bókuninni að nýtt kjör­tímabil sé hafið og ný stjórn taki senn við taumunum í Orkuveitu Reykja­víkur.

„Ný stjórn mun væntanlega hefja vegferðina með stefnu­mótun fyri Orkuveitu­samstæðuna til næstu ára. Ég tel mikilvægt að hún fái tækifæri til að vinna það verk með eftir­manni mínum. Ég tel því að þetta sé rétti tíminn fyrir mig og fyrir Orkuveitu Reykja­víkur að ég stígi til hliðar. Ég óska því eftir samþykki stjórnar OR fyrir því ferli sem ég hef lýst hér að framan.“

Stjórn OR féllst á erindi Bjarna og þakkaði góðan fyrirvara til að finna fyrir­tækinu nýjan forstjóra, að því er segir í tilkynningu frá OR.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár