Grikkir ræða nýtt tilboð á síðustu stundu - Reynt að hópfjármagna neyðarlánið

Grísk stjórn­völd fara í dag yfir tilboð frá framkvæmda­stjórn Evrópu­sambandsins, einum lánveitanda Grikk­lands, þar sem reynt er til þrautar að koma í veg fyrir yfir­vofandi greiðslu­fall gríska ríkisins. Hluti láns Alþjóða­gjaldeyris­sjóðsins til Grikk­lands fellur á gjalddaga síðar í dag en með samkomu­lagi á síðustu stundu yrði Grikkjum kleift að greiða fjár­hæðina. Upphæðin sem er á gjalddaga í dag nemur 1,6 milljörðum evra, eða jafnvirði um 235 milljarða íslenskra króna. Samkvæmt erlendum fjöl­miðlum, meðal annars Guardian sem fylgist grannt með stöðu mála, þykir mögulegt að Tsipras, forsætis­ráðherra Grikk­lands, ferðist til Brussel í kvöld og fundi um mögulega lausn á síðustu stundu.

Eins og kunnugt er hafnaði Alexis Tsipras fyrra tilboði kröfuhafa Grikk­lands og sendi ákvörðunina um samþykkt samninga í þjóðar­atkvæðis­greiðslu þann 5. júlí næst­komandi. Leiðtogar stærstu evru­ríkjanna gerði grískum stjórn­völdum það ljóst í gær að atkvæða­greiðslan snérist í raun um áfram­haldandi aðild Grikkja að evru­samstarfinu. Grískir bankar opnuðu ekki í gær og eru enn lokaðir almenningi. Einungis er hægt að taka út 60 evrur á dag úr hrað­bönkum og hafa myndast langar biðraðir við hraðbanka.

Hópfjármagna neyðarlán til Grikklands

Á meðan ráðamenn í Evrópu reyna að leysa úr flókinni stöðu sem gæti haft í för með sér ófyrirséðar afleiðingar, þá hefur Breti einn hafið hópfjármögnun á neyðar­láni til Grikk­lands á hópfjármögnunar­síðunni Indiegogo. Hann stefnir að því að safna 1,6 milljörðum evra. Huffington Post fjallar meðal annars um söfnunina undir fyrir­sögninni „Gríski neyðar­sjóðurinn á Indiegogo er jafn niður­drepandi og hann hljómar“. Fyrir þriggja evra framlag fæst póstkort frá forsætis­ráðherra Grikk­lands, prentuð í Grikk­landi, grísku efnahags­kerfi til góðs. Fyrir sex evrur fæst grískt salat með feta-osti og olívum, fyrir tíu evrur fæst lítil flaska af drykknum Ouzu og fyrir 25 evru framlag fæst flaska af grísku víni.


Á hádegi í dag, þriðjudag, höfðu safnast um 103 þúsund evrur sem er einungis brot af upphæðinni sem þarf. Miðað við þann skamma tíma sem er til stefna þykir ólíklegt að lána­greiðsla gríska ríkisins verði hópfjármögnuð af einstaklingum.


Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár