Bjarni: Ekki auðséð að kórónaveiran hafi grundvallaráhrif á stöðu þeirra fátækustu

„Við verðum að átta okkur á því að þeir sem eru búnir að lifa lengi á 221.000 kr. útborgað eru við­kvæm­astir fyrir þess­ari veiru,“ sagði Guð­mundur Ingi Krist­ins­son á Alþingi í dag, en fjár­mála­ráð­herra sagði ekki hafa verið „farið inn í bóta­kerfi almanna­trygg­inga“ við und­ir­bún­ing aðgerða vegna efna­hags­á­hrifa heims­far­ald­urs­ins.

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra telur óljóst hvort staða þeirra sem hafa bág­ust kjör á Íslandi hafi „tekið breyt­ingum í ein­hverjum grund­vall­ar­at­riðum vegna heims­far­ald­urs­ins“ þótt vissu­lega verði að huga að öllum í sam­fé­lag­inu. Hækkun atvinnu­leys­is­bóta og breyt­ingar á bóta­kerfum í þágu þeirra sem lakast standa séu ekki á meðal þeirra skrefa sem rík­is­stjórnin kynni nú vegna efna­hags­á­hrifa heims­far­ald­urs kór­ónu­veiru.

Oddný G. Harð­ar­dóttir

Þetta kom fram í máli ráð­herr­ans á Alþingi í dag þegar hann kynnti frum­varp sitt. Oddný G. Harð­ar­dóttir, þing­flokks­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, og Guð­mundur Ingi Krist­ins­son, þing­maður Flokks fólks­ins, gerðu athuga­semdir við að ekki væri hugað að vel­ferð­ar­þáttum í frum­varp­inu. 

„Ég vil spyrja hæst­virtan ráð­herra hvort ekki standi til að hækka atvinnu­leys­is­bætur a.m.k. að lág­marks­launum sem nú eru, sam­kvæmt samn­ingum Eflingar, 335.000 kr.,“ sagði Oddný.

Bjarni svar­aði spurn­ing­unni ekki beint en lagði áherslu á að aðgerðir rík­is­stjórn­ar­innar mið­uðu að því að koma í veg atvinnu­leysi frekar en að bæta hag þeirra sem missa vinn­una. „Okkar aðgerðir á þessu stigi máls snúa að því að forða þeirri bylgju atvinnu­leys­is­mála sem var fyr­ir­séð og við erum, í stað­inn fyrir að taka inn á atvinnu­leys­is­skrána og hækka bæt­urnar þar, hrein­lega að taka að okkur að standa undir stórum hluta launa­greiðslna fólks í reynd sem ella hefði orðið atvinnu­laust,“ sagði Bjarni. 

Guð­mundur Ingi Krist­ins­son

Guð­mundur Ingi úr Flokki fólks­ins sagð­ist hafa áhyggjur af stórum hópum eldri borg­ara og öryrkja sem fengi útborgað 221.438 kr. á mán­uði. „Ég spyr því hæstv. fjár­mála­ráð­herra: Er ekki kom­inn tími til að hjálpa þessum ein­stak­lingum, t.d. að sjá til þess að þeir borgi ekki útsvarið einn dag­inn og ríki og sveit­ar­fé­lög taki það á sig til að tryggja að þessir ein­stak­lingar eigi fyrir nauð­synjum?“ spurði hann. 

Bjarni svar­aði á þá leið að ekki væri væri vikið að umræddum málum í frum­varp­inu. „Hann spyr út í stöðu þeirra sem búa við einna bág­ust kjör í land­inu, en ekki er auð­séð að staða þeirra hafi tekið breyt­ingum í ein­hverjum grund­vall­ar­at­riðum vegna heims­far­ald­urs­ins þó að við verðum að huga að öllum í þessu sam­fé­lagi og að ekki sé hægt að úti­loka að nei­kvæð áhrif veirunnar snerti hvern og einn Íslend­ing. Ég tel hins vegar að það sem hátt­virtur þing­maður kemur inn á sé hluti af annarri og breið­ari umræðu um almanna­trygg­inga­kerfið. Ég gengst alveg við því að í þeim skrefum sem við erum núna að kynna, sem eru efna­hags­legar aðgerðir vegna útbreiðslu veirunnar, var ekki farið inn í bóta­kerfi almanna­trygg­inga.“

Guð­mundur Ingi sagð­ist ósam­mála ráð­herra. „Þetta snýst um að við verðum að átta okkur á því að þeir sem eru búnir að lifa lengi á 221.000 kr. útborgað eru við­kvæm­astir fyrir þess­ari veiru. Þetta er fólkið sem hefur ekki getað veitt sér almenni­legan mat. Það vita allir að það er erfitt að lifa ein­göngu á hrís­grjónum og hafra­graut. Þetta fólk kaupir sér ekki lýsi, vítamín og annað sem það þarf nauð­syn­lega á að halda. Það er búið að sýna fram á að það er fyr­ir­byggj­andi að taka inn lýsi, C-vítamín og D-vítamín. Þetta fólk hefur ekki efni á þessu. Það hefur rétt efni á að halda hús­næði og síðan fer það til hjálp­ar­stofn­ana eftir mat. Þetta er fólkið sem þarf á hjálp að halda og við eigum að hjálpa því alveg eins og öllum hinum.“ Bjarni tók undir að þetta væri við­kvæmur hópur og almanna­trygg­inga­kerfið gegndi mik­il­vægu hlut­verki. Hins vegar væri þetta önnur umræða heldur en nú ætti sér stað, um aðgerðir til að mæta efna­hags­legum áhrifum kór­óna­veirunnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár