Kvenkosturinn ógurlegi

Stefán Jón Hafstein veitir umsögn um bók Stein­unnar Sigurðar­dóttur um Heiðu Ásgeirs­dóttur: Heiða- fjall­dalabóndinn.

Er Heiða bóndi á Ljótar­stöðum mesti kven­kostur sem nú er uppi á Íslandi? Skiptir ekki máli, því hún myndi væntanlega kæra sig kollótta um slíka vegtyllu ef marka má magnaða kven­lýsingu Stein­unnar Sigurðar­dóttur skáldkonu á Heiðu fjall­dalabónda. Hún er einyrki með 500 fjár lengst uppi á heiði austur í Skafta­fellssýslu, á pallbíl, traktor, hund, vélsleða, smalar á fjórhjóli og hlaðin hvílíkum önnum og baráttu­málum að þarf víðan afrétt til að hún nái að varpa öndinni stöku sinnum. Tók við búi laust um tvítugt og senn að nálgast frum miðaldra. Náttúru­verndar­sinni og kunn hugsjóna­kona, sveitar­stjórnar­maður fyrir Z-listann (hversu zvalt er það?). Dettur inn á þing sem varamaður fyrir Ara Trausta næst þegar hann skellir sér í Pólferð, massar færustu rúnings­menn og telur fóstur í ám um land allt. Fyrir utan að hrynja í það stöku sinnum. Slást við vott af þunglyndi. Og þurfa verulega að taka á því svo röddin skjálfi ekki af kvíða þegar hugsjónir reka hana á málþing, sem hún má náttúru­lega alls ekkert vera að því að sinna, en gerir samt. Rífur jafnvel kjaft fyrir þingnefnd (ósofin af kvíða) og hvolfir hálfri hvítvíns­flösku þegar heim kemur til að ná sér niður. Öðru máli gegnir að um hagyrðinga­mótin þar sem hún lætur fjúka í kviðlingum.

Þetta er engin venjuleg kona. Því hér er fátt eitt talið.

Ritgerð Stein­unnar er klassa sjúrnalismi. Kaflarnir heita eftir árstíðum og kalla fram hrynjandina í lífi fjár­bóndans og skepnanna og fólksins allt í kring, lífið í sveitinni lifnar og leikur í ljósi sólar eða skuggum vetrar­myrkurs –svo kemur öskufall. Smátt og smátt birtist kven­persóna sem lætur móðan mása um allt og allt meðan skáld­konan vinnur sitt hljóða skráningar­verk; raðar upp sögum, hugleiðingum, stöðu­færslum af Fésbók, vísum og húmor af innsæi og skilningi á konunni sjálfri og hlutverki sögumanns samtímis. Þaulæfð í svona formgerð úr skáldsagna­skrifunum.

Inn í þessa stóru smáveröld sogast lesandinn.

Erindi Stein­unnar var að skrásetja baráttu fjall­dalabóndans við hina ógnandi virkjana­menn sem vildu leggja jörðina undir lón, staura­virki og ruðninga til að ná rafmagni. Búlands­virkjun skyldi hún heita. Þeim tekst að sundra vinum og sveit­ungum þar sem ólíkir hagsmunir takast á, en hin einarða Heiða lætur sig hvergi og hefur í heiðri Sigríði í Brattholti sem fór marga suður­ferðina til að bjarga Gullfossi fyrir rúmri öld. Í þessari sögu skynjum við ógnina sem einstaklingur stendur frammi fyrir gagnvart gírugu kerfi og hve mikil áraun það er að standa á sínu og lifa andvöku­nætur, kvíðaköst, vinamissi og fjártón; hún er svipt afkomu og friðhelgi sem hún þráir og á rétt á.

„Mín skoðun er sú að ég hafi engan rétt til að selja land eða vatn undan Ljótar­stöðunum og skaða þar með jörðina sem ég hef til umráða yfir eina starfsævi um alla framtíð. Ég hefði ekki viljað að mamma og pabbi eða amma og afi hefðu selt undan jörðinni, og keypt varalit og nýjan Farmal. Við mann­fólkið erum dauðleg, landið lifir áfram, það kemur nýtt fólk, nýjar kindur, nýir fuglar og svo framvegis, en landið með ám og vötnum, gróðri og auðnum verður áfram, tekur einhverjum breytingum í aldanna rás, en er áfram.“

(bls. 320)

Þetta er alveg nóg efni í litla bók og ástæðan fyrir því að Heiða tók skrá­setningu í mál. En svo gerist miklu meira þegar þær stöllur tala saman, að því er virðist á enda­lausum bílferðum, síma­fundum, spjall­þráðum eða hvernig þær nú bræða sig saman. Persónan birtist í blæbrigðum þess lífs og lands sem mótar hana, ekki alltaf í rökréttum orsakar- og afleiðingar­þráðum, því Heiða er eiginlega hin fullkomna mótsögn við sjálfa sig.

Hún er kjörkuð, sterk, en samt er hún oft svo veik, andlega og líkamlega; hugrökk, en væng­brotin inni í sér, kvíðin og lítil í sér - eða lætur vaða af svaka­legum krafti (jafnvel svo að þarf að halda henni niðri á balli þar sem Suður­orku­maðurinn er að þvælast!). Maður verður nánast líkamlega örmagna að taka þátt í vinnu­streðinu sem aldrei lýkur og þakkar hreinlega fyrir þegar hún loksins lætur sér líða í brjóst í Lazyboy með köttinn malandi og Makkintosdollu við höndina (segist hafa séð byrjun á ótal sjónvarps­myndun en fáar enda).

Þessi saga kann vel að hafa byrjað sem annáll baráttu­konu en hún er orðin kven­lýsing og samfélags­mynd í víddum sem maður sér ekki oft svo vel gerða af íslenskum miðlum.

Steinunn leggur sig virkilega í líma við að birta okkur lífið í sveitinni, lýst með orðum Heiðu og athöfnum. Þetta er engin fegrun. Þvert á móti. Alveg djöfulsins puð. Heiða vandar um fyrir fólki og skepnum jafnt en stráir um sig gæsku um leið; hrútarnir eru leiðinlegir, hafurinn metfé, ærnar illskeyttar, litlu lömbin leika sér svo fagurlega, kiðlingarnir dásemd, hundurinn dýri hann Fífill er afbragð og kettirnir fá sinn skerf hver eftir karakter. Gengur í öll verk svo mann sundlar og verkjar í liðina með henni, bölvuð skólp­þróin að stíflast þegar verst á stendur, öll þrifin maður og sápu­skúrið, sýnir sjálfri sér þá virðingu að baða sig (nema um sauðburðinn) og hefur fasta reglu á hverjum vinnudegi, svo mjög að mann langar að vita hvað hún borðar í morgunmat. Smæstu atriði skipta máli: Kóngablái liturinn á fjár­húsþökunum, ljósin á milli útihúsa, týran í myrkrinu frá næsta bæ.

Það villir um fyrir manni að framan af virðist hún frekar einföld manneskja í einföldu umhverfi og jafnvel aðeins bernsk í hinu stóra samhengi heimsins - þótt hún tuskist á við hvern sem er í réttunum og hafi jafnvel farið á djammið fyrir sunnan. En svo læðast inn fleiri þankar og utan­ferðir sem opna gat á lágskýjaðan himinninn fyrir austan. Innibyrgð togstreita kemur í ljós. Játar að hún gæti jafnvel hugsað sér að vera bóhem og búa erlendis, eiga heima í öruggu húsi hvernig sem viðrar og hvenær sem Katla gýs; þurfa ekki að bera ábyrgð á 500 lífum, geta keypt krydd­stauk ef vantar, vera „bara þar sem rokkið er“. En hún mun auðvitað aldrei yfirgefa Ljótar­staði. Því hún er alveg rótföst í landinu og sögu þess. Kannski.

Og allt hitt. Fyrir utan að vinna sigra í virkjana­málum (vonum að við getum öll sofið rótt út af aflagðri Búlands­virkjun) er hún þessi lands­fræga fóstur­talninga­kona (meðal bænda) og þar erum við að tala um alvöru kaldar hendur, bogið bak og fjallvegastímabrak um vetur. Kappsfull rúnings­kona sem fer á heimsmót (þótt hún búist nú ekki við að verða atvinnu­keppandi í þeirri grein fer í hún í læri hjá þeim fremstu í útlöndum) og ryður úr sér nöfnum rúnings­meistara og árangur­stöflum á sama hátt og forfallnir áhugamenn um golf. Nefnir tegundina af klippunum sem hún á. Fer í vélsleða­ferðir með einhverjum njólum að veturlagi um Strandir (eina konan) og svo þessi svakalega törn þegar sauðburðurinn fer í hönd og dagar og nætur og vikur renna saman í einni vakt.

Þegar þar kemur sögu kallast þessi bók á Stein­unnar á við aðra sögu hennar sem var líka um vakt­hafandi konu, Vigdísi sem var ein á forseta­vakt.

Steinunn skráir þessar ítarfrásagnir ef miklu listfengi fyrir strák sem einu sinni var í sveit og lifir sig inn í þetta allt - þótt nú séu aðrir tímar. Höfundur á miklar þakkir fyrir að stytta sér ekki leið svo maður merki, heldur leyfir öllu að tala, jafnvel helvítis karga­þýfinu á láns­túninu vorið sem kól… Og svo um það að farga skepnum, sorgina, draga dautt fé úr fönn, ýldu­fýluna. Ábyrgðina á velferð dýranna.

Einstæð? Já. Og tekur útskýrða ákvörðun um að eiga ekki barn.

Þær tala mergjaða íslensku stöllurnar. Steinunn, verð­launaður stílisti, varast skraut og póesí, lætur Heiðu tala sitt mál. Þar er nú ekki flatneskan; orðgnótt og samlíkingar utan af afrétt og innan úr þessari kjaftforu kjellu sem segist hafa verið alin upp við skammir og ekkert væl. Það hæfir að hafa fáar, svart­hvítar myndir af persónunni í bókinni - fyndnar fjökyldumyndir hefðu drepið galdurinn. En vantar eiginlega að hafa listrænt kort af jörðinni og námunda við stórfljót og eldstöðvar. Maður vinnur bara úr því með nútíma­tækni.

Þegar árstíða­hringurinn lokast og ritgerðin fer á endapunkt er þetta eiginlega bara fullkomið: Búlands­virkjun komin í verndar­flokk og Heiða í söguflokk.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár