„Fyrirtæki sem ekki huga að samfélagslegri ábyrgð eiga sér ekki framtíð“

Þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins segir að hún sé hneyksluð eins og flestir aðrir lands­menn á fram­gangi Samherja. „Það er alvar­legt ef stór­fyr­ir­tæki eru að hafa áhrif á lýð­ræðið. Mér finnst það mjög alvar­legt.“

Bryndís Haraldsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, og kollegi hennar Njáll Trausti Friðbertsson.
Bryndís Har­alds­dóttir, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, og kollegi hennar Njáll Trausti Frið­berts­son. Mynd: Bára Huld Beck

Þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Bryndís Har­alds­dóttir, segir að fyr­ir­tæki sem taka sam­fé­lags­lega ábyrgð alvar­lega eigi að virða lýð­ræðið og ekki beita sér gegn því. Fyr­ir­tæki sem ekki huga að sam­fé­lags­legri ábyrgð eigi sér ekki fram­tíð.

Þetta kom fram í máli hennar undir liðnum störf þings­ins í dag en í sam­tali við Kjarnann stað­festir hún að þarna hafi hún átt við sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækið Samherja.

„Ég er að sjálf­sögðu að vísa til Sam­herja­hneyksl­is­ins. En það getur verið að hægt sé að setja fleiri undir þennan hann en í dag gengur þetta út á það sem er að ger­ast í sam­fé­lag­inu,“ segir hún í sam­tali við Kjarnann.

Hneyksluð á þessum framgangi

Mikið hefur verið fjallað um svo­kall­aða „skæru­liða­deild“ Samherja und­an­farna viku en Kjarninn greindi meðal ann­ars frá sam­ræðum þar sem fram kom að Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins, vildi ekki að Njáll Trausti Frið­berts­son yrði næsti odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks í Norð­aust­ur­kjör­dæmi. Enn fremur greindi Kjarninn frá því að Samherji hefði reynt að hafa áhrif á nið­ur­stöðu í for­manns­kjöri í stétt­ar­fé­lagi blaða­manna í síð­asta mán­uði.

[links]„Ég er eins og flestir lands­menn hneyksluð á þessum fram­gangi – þetta er sorg­legt,“ segir Bryndís. „Það er alvar­legt ef stór­fyr­ir­tæki eru að hafa áhrif á lýð­ræðið. Mér finnst það mjög alvar­legt.“

Í ræðu sinni á þingi í dag hóf hún mál sitt á því að segja að Ísland væri frjálst land, land þar sem fólki væri frjálst að gera það sem það vill svo lengi sem það skað­aði ekki aðra.

„Á Íslandi ríkir mál­frelsi, skoð­ana­frelsi og trú­frelsi og við verðum ávallt að standa vörð um þetta frelsi. Hið opin­bera þarf að stíga niður með hóg­værð og jafn­ræði að leið­ar­ljósi. Fjöl­miðlar eiga að vera beittir og veita aðhald. Þeir eiga að segja satt og rétt frá. Þeir eiga að vera gagn­rýnir og þeir eiga að vera opnir fyrir gagn­rýni. Fyr­ir­tæki þurfa að hlíta sömu reglum. Öll fyr­ir­tæki sem ætla að eiga sér fram­tíð þurfa að huga að sam­fé­lags­legri ábyrgð sinni. Þau þurfa að axla ábyrgð og hafa upp­byggi­leg áhrif á umhverfi sitt. Stuðn­ingur við íþrótta­fé­lög og menn­ingu er góður og mik­il­vægur, en það er ekki nóg. Fyr­ir­tæki sem taka sam­fé­lags­lega ábyrgð alvar­lega virða lýð­ræðið og beita sér ekki gegn því. Fyr­ir­tæki sem ekki huga að sam­fé­lags­legri ábyrgð eiga sér ekki fram­tíð,“ sagði hún að lokum.

Finnst „menn ganga of langt“

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins tjáði sig um málið í gær en hann sagð­ist í sam­tali við frétta­stofu RÚV ekki vera ánægður með að stórir öfl­ugir aðilar í fyr­ir­tækja­rekstri beittu sér af fullum krafti í fjöl­miðlaum­fjöllun sem þeir eru ósáttir við.

Þegar hann var spurður hvað honum fynd­ist um þessa her­ferð gagn­vart ein­stökum fjöl­miðla­mönnum og jafn­vel fjöl­miðlum þá svar­aði hann að hægt væri að hafa alls konar skoð­anir á því að fólk ætti ekki að gera eitt­hvað eða gera hlut­ina öðru­vísi heldur en gert væri.

„En ég er í prinsipp­inu þeirrar skoð­unar að það er skoð­ana­frelsi á Íslandi. Fólki er frjálst að hugsa hluti, fólki er frjálst að segja hluti, fólki er frjálst að beita sér. Það er mjög stórt mál að fara að ganga gegn því frelsi. Ég er hins vegar ekk­ert sér­stak­lega ánægður með að stórir öfl­ugir aðilar í fyr­ir­tækja­rekstri beiti sér af fullum krafti í fjöl­miðlaum­fjöllun sem þeir eru ósáttir við. Aðallega vil ég að hlut­irnir séu uppi á borði, gegn­sæir og það sé verið að ræða mál­efna­lega um hlut­ina. Það er það sem mér finnst vera mik­il­vægt. Ég held líka að við verðum að hlusta ef menn segja að rík­is­mið­ill­inn, sem hefur mjög ríkum skyldum að gegna, ef menn segja að hann sé ekki að rísa undir því sem að honum ber að gera að lögum og er rétt­læt­ingin fyrir því að við öll tökum sam­eig­in­lega þátt í því að halda honum á floti og fjár­magna hann þá ber okkur að hlusta. Ekki skella við skolla­eyrum. Jafnvel þó að fyr­ir­tæki eigi í hlut og það geta verið fyr­ir­tæki sem ganga vel. Okkur ber að hlusta og vera gagn­rýnin. Beita gagn­rýn­inni hugsun í allri umræðu um þessi mál. Þarna er ég að tala um þetta á almennum nótum en í þessu til­tekna máli finnst mér menn ganga mjög langt,“ sagði Bjarni við RÚV í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár