„Skæruliðadeildin“ grennslaðist fyrir um meint heimshornaflakk Helga Seljan

Eftir að Helgi Seljan fór í vinnu­ferð til Kýpur í jan­úar sagði Jón Óttar Ólafsson að „skoðun“ væri hafin á því hvort hann væri í Namibíu. Páll Stein­gríms­son leit­aði líka til ráðu­neyt­is­stjóra í upp­hafi árs í von um að fá upp­lýs­ingar um ferðir Helga.

Jón Óttar Ólafsson sagði Páli Steingrímssyni þann 3. febrúar að „skoðun“ væri hafin á því hvort Helgi Seljan væri staddur í Namibíu.
Jón Óttar Ólafsson sagði Páli Stein­gríms­syni þann 3. febr­úar að „skoðun“ væri hafin á því hvort Helgi Seljan væri staddur í Namibíu.

Jón Óttar Ólafsson ráð­gjafi Samherja sagði í upp­hafi febr­ú­ar­mán­aðar á þessu ári að „skoðun“ væri hafin á því hvort frétta­mað­ur­inn Helgi Seljan væri mögu­lega staddur í Namibíu. „Það er verið að tekka a þvi. Su skoðun byrj­aði i dag,“ sagði Jón Óttar í spjalli við skip­stjór­ann Pál Stein­gríms­son, sem hafði spurt Jón Óttar að því hvort frétta­mað­ur­inn væri staddur í Namibíu.

Þetta er sami Jón Óttar og var opin­ber­aður í lok ágúst í fyrra á síðum Kjarnans fyrir að hafa áreitt Helga ítrekað um nokk­urra mán­aða skeið, meðal ann­ars með því að sitja fyrir honum á kaffi­húsi í mið­borg Reykja­víkur og senda honum ógn­andi SMS-skila­boð. Í kjöl­farið baðst Jón Óttar afsök­unar á skila­boð­unum sem hann sendi Helga og kom því á fram­færi að hann sjálfur hefði verið undir miklu per­sónu­legu álagi vegna nei­kvæðrar umfjöll­unar um hann í fjöl­miðlum. Samherji hefði ekk­ert vitað af því sem hann var að gera.

Helgi Seljan fór til Kýpur undir lok jan­ú­ar­mán­aðar og heim­sótti borg­ina Limassol, en þar hafa þónokkur félög Sam­herj­a­sam­stæð­unnar verið skráð með skrif­stofur. Ferðin var farin til þess að varpa ljósi á umfang starf­semi Samherja á Kýpur og kom­ast í sam­band við þá sem að nafn­inu til hafa verið í for­svari fyr­ir­tækja sam­stæð­unnar þar sem stjórn­ar­menn. Lítil svör feng­ust og starf­semi Samherja á Kýpur virð­ist öll í mýflugu­mynd þrátt fyrir að hafi verið umfangs­mikil á papp­írum árum saman, eins og þáttur Kveiks varp­aði glöggu ljósi á.

Nokkrum dögum eftir að Samherji fékk veður af Kýp­ur­ferð Helga birti fyr­ir­tækið yfir­lýs­ingu á vef sínum undir fyr­ir­sögn­inni „Rík­is­út­varpið reynir fyr­ir­sát á Kýpur í ferða- og útgöngu­banni“ og gagn­rýndi þar að Helgi hefði „freistað þess að end­ur­vinna fréttir um mál sem tengj­ast útgerð í Namibíu og sett sig í sam­band við núver­andi og fyrr­ver­andi stjórn­ar­menn félaga sem tengj­ast Samherja.“ Þar var einnig birt mynd­band af Helga við störf ásamt kvik­mynda­töku­manni.

Jón Óttar sagði í sam­tali við Pál þann 29. febr­úar að mynd­bandið sem Samherji hefði birt á vef sínum kæmi úr örygg­is­mynda­vél hjá „lög­manns­stof­unni okkar“ og Páll lýsti yfir ánægju með birt­ingu þess. „Haha já ok en djöf­ull er þetta gott á þá,“ sagði Páll.

Í fram­hald­inu lýsti Páll þeirri skoðun sinni að Samherji ætti að ráð­ast í að taka „við­töl í Namibíu“ því „þessi hópur [innsk. blm.: senni­lega fjöl­miðla­fólks] er ekk­ert að hætta svo mikið er víst“. Jón Óttar svar­aði því til að það væri allt væri til­búið fyrir slík við­töl og hægt væri að byrja á þeim strax næsta mánu­dag.

Í sam­skiptum Páls við aðra innan Samherja hafði hann ítrekað lýst þeirri skoðun sinni að það ætti að fara til Namibíu og tala við fyrr­ver­andi skip­verja sem störf­uðu fyrir dótt­ur­fé­lög Samherja þar í landi, því þeir hefðu þá sögu að segja að allur aðbún­aður hefði verið betri þegar Samherji var enn að róa á miðin syðra. Ljóst virt­ist á Jóni Óttari að slíkt stæði til, þarna í lok jan­ú­ar­mán­aðar. Slíkt mynd­band úr smiðju Samherja hefur þó ekki birst.

[adspot]

Þann 3. febr­úar hefur Sam­herj­a­menn grunað að Helgi væri mögu­lega staddur í Namibíu, en óljóst er af þeim sam­skiptum sem Kjarninn hefur undir höndum af hverju það var. Ein af mörgum spurn­ingum sem Samherji hefur kosið að svara ekki í tengslum við yfir­stand­andi umfjöllun Kjarnans um starfs­hætti starfs­manna og ráð­gjafa Samherja snýr einmitt að því hvernig þessi „skoðun“ hafi farið fram.

Leitaði til ráðuneytisstjóra eftir upplýsingum

Ofan­greint var ekki í eina skiptið sem meintar ferðir Helga Seljan um heim­inn báru á góma í sam­skiptum Sam­herj­a­fólks. Í upp­hafi þessa árs ræddi Páll við lög­mann­inn Örnu McClure um að hann ætl­aði sér að kom­ast að því hvort Helgi hefði verið við­staddur er upp­ljóstr­ar­inn Jóhannes Stef­áns­son fór til Berlínar í Þýska­landi árið 2019 og gaf namibískum yfir­völdum skýrslu um Namib­íu­málið í sendi­ráði lands­ins þar í borg.

Páll sagð­ist þann 3. jan­úar ætla að leita til per­sónu­lega til Martins Eyj­ólfs­sonar, fyrr­ver­andi sendi­herra í Þýska­landi og núver­andi ráðu­neyt­is­stjóra utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins, og grennsl­ast fyrir um þetta – hvort Helgi Seljan hefði farið með Jóhann­esi til Berlínar. Páll sagði við Örnu að hann ætl­aði að „heyra í Martin“ því Martin hefði eitt sinn sagt að hann myndi hik­laust ráða sig í borg­ara­þjón­ustu utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins.


„Var að tala við Martin Eyjólfs,hann er núna ráðu­neyt­is­stjóri í utan­rík­is­ráðu­neyt­inu 😃“ sagði Páll síðan við Örnu þann 4. jan­úar og lét fylgja að það hefði verið „mjög gott spjall“ sem Páll sagð­ist ætla að „segja mönnum af“ því hann teldi það end­ur­spegla „svo­lítið hvað fólk er að hugsa“, en ekki var þó á Páli að skilja að hann hefði fengið nokkrar upp­lýs­ingar frá ráðu­neyt­is­stjór­anum.

Kjarninn bar þessi sam­skipti undir Martin Eyj­ólfs­son ráðu­neyt­is­stjóra í utan­rík­is­ráðu­neyt­inu.

„Ég get stað­fest að Páll Stein­gríms­son leit­aði til mín í byrjun árs til að kanna mögu­leika á aðstoð utan­rík­is­þjón­ust­unnar. Eins og við­brögð Páls bera með sér var ekki unnt að verða við beiðn­inni enda fellur hún utan verk­sviðs utan­rík­is­þjón­ust­unnar og kom því ekki inn á borð hennar,“ segir Martin í skrif­legu svari til Kjarnans.

Blaða­maður spurði Martin einnig um kynni hans og Páls, en Páll sagði Örnu frá því að þeir hefðu kynnst fyrir nokkrum árum og haldið sam­bandi. Martin seg­ist mál­kunn­ugur Páli vegna vanda­sams borg­ara­þjón­ustu­máls frá þeim tíma er hann gegndi emb­ætti sendi­herra í Berlín.

[box]

„Sökum eðlis slíkra mála get ég ekki greint frekar frá því en sam­starf sendi­ráðs­ins og Páls við úrlausn þess máls gekk með ágætum,“ segir Martin.

Páll sagði við Örnu í spjalli þeirra tveggja að Martin bæri mikla virð­ingu fyrir honum og að hann hefði sagt við Máa, Þorstein Má Bald­vins­son, að fyr­ir­tæki sem hefði mann eins og Pál inn­an­borðs væri ekki á flæðiskeri statt.[links]

Kjarninn spurði Martin út í þessi sam­skipti og hvort hann ætti ein­hverjar skýr­ingar á þeim orðum sem voru eignuð honum í sam­tali Páls og Örnu.

„Varðandi þau orð sem eftir mér eru höfð hef ég senni­lega getið sam­skipta Páls og sendi­ráðs­ins við úrlausn áður­nefnds borg­ara­þjón­ustu­máls og hrósað honum í sam­tali sem ég átti við Þorstein Má Bald­vins­son nokkru síðar í Cuxhaven við nafn­gift­ar­at­höfn tveggja nýrra skipa Deutsche Fischfang Union, dótt­ur­fé­lags Samherja. Þangað var ég boð­inn sem sendi­herra Íslands,“ segir Martin.

Páll sagði við Örnu að hann hefði sagt Jóni Óttari frá sam­skiptum sínum við Martin.

„Ég sagði Jóni Óttari frá sam­tali mínu við Martin til að nota á okkar menn, til að benda á hvaða fólk við erum að tala við þegar að við erum að koma fram með okkar mál­stað" skrif­aði Páll.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár