Tíu mikilvægustu hlutirnir sem eru að gerast í heiminum í dag

Deilur Íslendinga um stað­setningu innan­landsflug­vallar komast ekki á listann yfir tíu mikil­vægustu hlutina sem eru að gerast í heiminum í dag að þessu sinni, en þar er ýmislegt annað merkilegt.


  1. Alþjóða­gjaldeyris­sjóðurinn gerir ráð fyrir því að 1,6 milljarða evra endur­greiðsla á láni berist sjóðnum frá Grikk­landi á þriðjudaginn. Nú er fundað bæði í Brussel og Aþenu um áframhald samkomu­lags um skuldamál Grikkja.

  2. Francois Hollande Frakk­lands­forseti segir að leigubíla­þjónustan Uber ætti að vera ólögleg eftir að ofbeldis­full mótmæli brutust út í París í gær. Leigu­bílstjórar voru að mótmæla þjónustunni og þeir stöðvuðu umferð, veltu bílum og brenndu hjólbarða.

  3. Einn er látinn og tveir alvarlega særðir eftir árás á gasverksmiðju í Lyon í Frakk­landi í morgun. Francois Hollande forseti segir að árásin beri öll merki hryðjuverka­árásar.

  4. Hæstiréttur Banda­ríkjanna úrskurðaði í gær að lög um heilbrigðis­tryggingar skyldu standa, sem er mikill sigur fyrir Barack Obama Bandaríkja­forseta, enda breytinga á heilbrigðis­trygginga­kerfinu meðal hans stærstu mála.

  5. Evrópu­sambandið mun flytja 40 þúsund flótta­menn sem koma til Ítalíu og Grikk­lands til annarra ESB-ríkja á næstu tveimur árum.

  6. Liðsmenn Íslamska ríkisins réðust gegn sýrlenska stjórnar­hernum og liðs­sveitum Kúrda í Kobani í gærkvöldi.

  7. 200 stúdentar í Búrúndí leituðu skjóls í bandaríska sendi­ráðinu þar í gær, vegna vaxandi ólgu í landinu. Einn vara­forseta landsins hefur flúið til Belgíu.

  8. Vladimír Pútín Rúss­lands­forseti og Barack Obama Bandaríkja­forseti ræddu saman í síma í gær í fyrsta sinn frá því í febrúar. Þeir ræddu um versnandi ástand í Sýrlandi og samkomulag við Íran um kjarnorkumál.

  9. Mikil flóð eru nú í Sochi, rússnesku borginni sem hýsti Vetrar­ólympíu­leikana í fyrra. Hluti borgarinnar er undir vatni og að minnsta kosti einn hefur látið lífið.

  10. Fjölmiðla­samsteypan IAC/InterActive sem á og rekur stefnumóta­síðuna Match.com og smáforritið Tinder hyggst setja þann hluta samsteypunnar sem rekur stefnumóta­síðurnar á markað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár