Norskt félag kaupir rúmlega sjö prósent í Heimavöllum fyrir tæpan milljarð

Virði bréfa í Heima­völlum, sem hefur vart hagg­ast mán­uðum saman, tók kipp í morgun þegar greint var frá því að norskt leigu­fé­lag hefði keypt stóran hlut í félag­inu. Kaup­verðið var í kringum millj­arð króna.

Heimavellir voru skráðir í Kauphöll Íslands vorið 2018.
Heima­vellir voru skráðir í Kauphöll Íslands vorið 2018. Mynd: Nasdaq Iceland

Norska leigu­fé­lagið Fredens­borg AS, í gegnum íslenskt dótt­ur­fé­lag, hefur keypt sam­tals 7,2 pró­sent hlut í íslenska leigu­fé­lag­inu Heima­völlum, stærsta almenna leigu­fé­lagi lands­ins. Ef Fredens­borg greiddi mark­aðs­verð fyrir hlut­inn þá hefur félagið greitt tæp­lega 950 millj­ónir króna fyrir hann.

Í til­kynn­ingu til Kaup­hallar Íslands er því flaggað að Klasi ehf. hafi selt norska félag­inu 3,8 pró­sent hlut í Heima­völlum en óljóst er hverjir aðrir selj­endur eru.

Aðal­eig­endur Klasa er félagið Sigla með 93 pró­sent eign­ar­hlut, en það félag er til helm­inga í eigu félag­anna Gana ehf., í eigu Tómasar Krist­jáns­sonar, og Snæbóls ehf., í eigu Finns Reys Stef­áns­sonar og Stein­unnar Jóns­dóttur. Þessir fjórir aðilar áttu fyrir söl­una í dag 21,43 pró­sent hlut í Heima­völlum en eiga eftir þau 17,6 pró­sent hlut.

Eign­ar­hlutur þess­ara tengdu félaga er því kom­inn undir 20 pró­sent og því þurfti að flagga í kaup­höll.

Hluta­bréfa­verð Heima­valla tók kipp við þessi við­skipti í morgun og hefur hækkað um 6,84 pró­sent í rúm­lega eins millj­arðs króna við­skiptum. Þorri þeirra við­skipta eru þó kaup Fredens­borg á áður­nefndum hlut.

Reyndu að afskrá félagið

Lyk­il­hlut­hafar Heima­valla reyndu að afskrá félagið í fyrra eftir að illa gekk að fá stóra fag­fjár­festa á borð við líf­eyr­is­sjóði til að fjár­festa í því og eftir að félag­inu mistókst að end­ur­fjár­magna sig í takti við fyrri áætl­anir sem áttu að losa það undan arð­greiðslu­höml­u­m.

Kaup­höll Íslands hafn­aði þeim til­raunum og þess í stað fóru helstu hlut­hafar Heima­valla í þá veg­ferð að selja eignir með það mark­mið að skila arð­inum af þeim til hlut­hafa. Samhliða var haldið áfram, með umtals­verðum árangri, að leita að end­ur­fjár­mögnun fyrir lánin sem mein­uðu útgreiðslu á arði.

Marka­virði Heima­valla er í dag er rétt rúm­lega 13 millj­­arðar króna. Eigið fé félags­­ins, mun­­ur­inn á skuldum og eignum þess, er hins vegar mun hærri tala eða 19,4 millj­­arðar króna miðað við síð­asta birta upp­gjör.

Í októ­ber hófu Heima­vellir umfangs­mikla áætlun um end­ur­kaup á eigin bréfum, en til stendur að kaupa alls 337,5 millj­ónir hluta fram að næsta aðal­fundi.

Við árs­lok 2019 áttu Heima­vellir 1.627 íbúðir en áætl­anir félags­ins gera ráð fyrir að ríf­lega 400 íbúðir yrðu seldar út úr eigna­safn­inu á árunum 2019 til 2021.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár