Leigufélag ætlar að selja eignir fyrir milljarða og skila til hluthafa

Heima­vellir, stærsta leigu­fé­lag lands­ins sem starfar á almennum mark­aði, ætlar að fækka íbúðum í sinni eigu veru­lega á næstu miss­erum með því að selja þær. Hagn­að­inum af þeirri sölu verður skilað beint til hlut­hafa.

Á meðal verkefna Heimavalla sem eru í uppbyggingu eru 42 íbúðir á Hlíðarenda sem eiga að afhendast í ágúst og september 2019.
Á meðal verk­efna Heima­valla sem eru í upp­bygg­ingu eru 42 íbúðir á Hlíð­ar­enda sem eiga að afhend­ast í ágúst og sept­em­ber 2019. Mynd: Skjáskot/Hlidin.is

Alls eru ríf­lega 400 íbúðir í eigu Heima­valla skil­greindar eða verða skil­greindar til sölu í nán­ustu fram­tíð. Bókfært virði þeirra er um 14,5 millj­arðar króna og áætlað er að sala þeirra muni losa allt að fjóra millj­arða króna í umfram eigið fé. Því eigið fé verður skilað til hlut­hafa með end­ur­kaupum á hluta­bréfum í Heima­völlum eða með arð­greiðslum.

Þetta kom fram í fjár­festa­kynn­ingu vegna hálfs árs upp­gjörs Heima­valla sem birt var á föstu­dag. Á hlut­hafa­fundi í Heima­völlum sem hald­inn var á föstu­dag var sam­þykkt að upp­færa end­ur­kaupa­heim­ild félags­ins þannig að því verði heim­ilt að kaupa allt að þrjú pró­sent í sjálfu sér af hlut­höfum á næstu átta mán­uðum.

Heima­vellir munu eiga alls um 1.700 íbúðir í lok þessa árs en þeim á að fækka með eigna­sölum í um 1.400 fyrir lok árs 2020.

Reynt að afskrá eftir ár

Heima­vellir voru skráðir á markað vorið 2018. Ári síðar reyndu lyk­il­hlut­hafar að afskrá félagið, en Kauphöll Íslands kom í veg fyrir það. Þær skýr­ingar voru gefnar fyrir þeirri veg­ferð að Heima­vellir hafi ekki fengið góðar mót­tökur hjá stærstu fjár­festum lands­ins, sér­stak­lega líf­eyr­is­sjóðum, og að end­ur­fjár­mögn­un­ar­til­burðir Heima­valla hafi ekki staðið undir vænt­ingum. 

Ýmsir við­mæl­endur Kjarnans, meðal ann­ars á meðal hlut­hafa í Heima­völlum, töldu hins vegar að önnur ástæða væri líka fyrir þeim til­raunum. Ástæða sem byggði á verð­mati frá Arctica Finance sem sagði að virði eigna Heima­valla sé um 14 millj­örðum krónum meira en mark­aðsvirðið. Því hafi verið til mik­ils að vinna að selja þær eignir og taka út mik­inn hagnað. Það gekk þó ekki eftir.

Verðmat sýndi mun hærra virði eigna

Marka­virði Heima­valla í dag er um 13,5 millj­arðar króna. Eigið fé félags­ins, mun­ur­inn á skuldum og eignum þess, er hins vegar mun hærri tala eða 18,8 millj­arðar króna.

Á blað­síðu þrjú í áður­nefndu verð­mati Arctica Finance, sem hluti hlut­hafa Heima­valla höfðu aðgang að og er kyrfi­lega merkt trún­að­ar­mál, kom fram að Arctica Finance meti eignir Heima­valla á mun hærra verði en gert sé í birtum reikn­ingum þess og að fyr­ir­tækið telji að eigið fé Heima­valla miðað við sitt mat hafi átt að vera 27 millj­arðar króna í vor. Því skeik­aði um 14 millj­örðum króna á mats­verði Heima­valla og mark­aðsvirði félags­ins á þeim tíma og eftir umtals­verðu að slægj­ast ef hægt yrði að afskrá félagið ódýrt en selja svo eignir þess jafnt og þétt.

Það tókst hins vegar ekki og nú ætlar félagið að selja eignir og hratt og greiða hlut­höfum sínum afrakstur þess.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár