Mynd: Nasdaq Iceland

Telja að virði Heimavalla sé tvöfalt hærra

Skráning Heima­valla á markað hefur ekki gengið sem skyldi. Lítill áhugi hefur verið á félag­inu hjá líf­eyr­is­sjóðum lands­ins, það hefur sætt gagn­rýni fyrir áhrif sín á hús­næð­is­markað og ómögu­legt hefur reynst að losna undan arð­greiðslu­banni.

Heima­vellir er stærsta leigu­fé­lag lands­ins sem starfar á almennum leigu­mark­aði. Mark­aðsvirði félags­ins, sem hefur verið skráð í Kauphöll Íslands í rúmt ár, er um 13 millj­arðar króna.

Til­raunir til að afskrá félagið af mark­aði fóru nýverið út um þúfur. Þær skýr­ingar voru gefnar fyrir þeirri veg­ferð að Heima­vellir hafi ekki fengið góðar mót­tökur hjá stærstu fjár­festum lands­ins, sér­stak­lega líf­eyr­is­sjóðum, og að end­ur­fjár­mögn­un­ar­til­burðir Heima­valla hafi ekki staðið undir vænt­ingum.

Ýmsir við­mæl­endur Kjarnans, meðal ann­ars á meðal hlut­hafa í Heima­völlum, telja hins vegar að önnur ástæða sé líka fyrir þeim til­raunum. Ástæða sem byggi á verð­mati frá Arctica Finance sem sagði að virði eigna Heima­valla sé um 14 millj­örðum krónum meira en mark­aðsvirðið. Því hafi verið til mik­ils að vinna að selja þær eignir og taka út mik­inn hagnað.

Ríkið seldi...

Heima­vellir voru stofn­aðir árið 2015. Þá var ákveðið að renna saman nokkrum minni leigu­fé­lögum, sem áttu sam­tals 191 íbúð, í eitt og og úr urðu Heima­vellir.

Í kjöl­farið rúll­aði bolt­inn hratt. Heima­vellir keyptu hvert eigna­safnið á fætur öðru, oft af Íbúða­lána­sjóði sem var að losa um eignir sem hann hafði setið uppi með.

Stærsta við­bótin kom þó síðla árs 2016 þegar Heima­vellir eign­uð­ust 716 íbúðir á Ásbrú, gamla varn­ar­liðs­svæð­inu á Mið­nes­heiði, með því að sam­ein­ast félag­inu Ásabyggð, sem hét áður Háskóla­vellir. Það hafði eign­ast flestar þeirra árið 2008 þegar þær voru keyptar af Kadeco. Kadeco hafði verið stofnað til að taka við fast­eignum á svæð­inu í kjöl­far þess að banda­ríski her­inn yfir­gaf her­stöð­ina á Mið­nes­heiði.

Íslenska ríkið á bæði Íbúða­lána­sjóð og Kadeco. Því var stærsti selj­andi fast­eigna til Heima­valla við skatt­greið­endur, eða íslenska ríkið fyrir okkar hönd.

Á þessum árum jókst umfang Heima­valla hratt. Virði fjár­fest­inga­eigna félags­ins, sem voru hús­næði í útleigu eða bygg­ingu, fór úr því að vera 10,2 millj­arðar króna í lok árs 2015 í að vera 53,5 millj­arðar króna snemma árs 2018. Alls jókst umfang Heima­valla því fimm­falt á um tveimur árum.

...Og ríkið lánaði

Hug­mynda­fræðin á bak við hinn mikla vöxt Heima­valla var sú að ná félag­inu upp í þá stærð að það væri hægt að skrá félagið á markað. Slík skrán­ing var boðuð á fyrri hluta árs 2018 og skrán­ing­ar­lýs­ing Heima­valla var birt 23. apríl það ár. Þar var hægt að finna ítar­legar upp­lýs­ingar um hvernig félagið hafið vaxið og fjár­magnað sig.

Líkt og áður sagði keyptu Heima­vellir stærstan hluta þeirra íbúða sem félagið hafði eign­ast af íslenska rík­inu. Auk þess var opin­berað í skrán­ing­ar­lýs­ing­unni að fjár­mála­fyr­ir­tæki í eigu íslenska rík­is­ins væru helstu lán­veit­endur þess. Annars vegar er þar um að ræða Íbúða­lána­sjóð og hins vegar rík­is­bank­ann Lands­bank­ann.

Eig­in­fjár­hlut­fall Heima­valla hafði hækkað mjög mikið á fáum árum, úr 10,5 pró­sent í lok árs 2015 í 32,9 pró­sent í mars­lok 2019, meðal ann­ars vegna hækk­andi fast­eigna­verðs og mik­ils vaxtar Heima­valla.

Það er því nóg af reiðufé inni í Heima­völlum. En eig­endur félags­ins hafa þó aldrei borgað sér arð. Ástæðan var ekki vilja­leysi. Þeir máttu það ein­fald­lega ekki.

Þegar Heima­vellir keyptu upp eigna­söfn Íbúða­lána­sjóðs þá fylgdu með sér­stök lán sem veitt höfðu verið á grund­velli reglu­gerðar sem átti að tryggja að lán­veit­ingar sjóðs­ins færu ein­ungis til aðila sem ekki væru reknir í hagn­að­ar­skyni.

Reglu­gerðin sem um ræðir, númer 1042/2013, snýst um að Íbúða­lána­sjóð­ur, sem er í eigu rík­is­ins, veiti lán til sveit­ar­fé­laga, félaga og félaga­sam­taka sem ætl­aðar eru til bygg­ingar eða kaupa á leigu­í­búð­um. Mark­mið reglu­gerð­ar­innar var að „stuðla að fram­boði á leigu­í­búðum fyrir almenn­ing á við­ráð­an­legum kjöru­m“.

Íbúðalánasjóður seldi Heimavöllum íbúðir og lánaði félögum samstæðunnar umtalsverða fjármuni.
Íbúða­lána­sjóður seldi Heima­völlum íbúðir og lán­aði félögum sam­stæð­unnar umtals­verða fjár­muni.

Reglu­gerðin setur þau skil­yrði að allir sem fái lán undir hatti hennar megi ekki vera reknir í hagn­að­ar­skyni „og úr þeim má hvorki greiða arð né arðs­gild­i“.

Af þeim 18,4 millj­örðum króna sem Íbúða­lána­sjóður hafði veitt í lán á grund­velli þeirrar reglu­gerðar sum­arið 2018 höfðu um átta millj­arðar króna farið til Heima­valla, eða 43,4 pró­sent allra slíkra lána.

Alls skuld­uðu Heima­vellir Íbúð­ar­lána­sjóði 18,6 millj­arða króna á þessum tíma, en hluti þeirra lána eru svokölluð almenn leigu­í­búð­ar­lán sem um gilda mun rýmri regl­ur.

Ekkert af markmiðunum náðist

Með því að skrá Heima­velli á markað var von­ast til að ná nokkrum mark­miðum: að skrán­ingin myndi leiða til þess að félagið gæti end­ur­fjár­magnað lán sín á betri kjörum og losnað með því út úr arð­greiðslu­höml­unum sem Íbúða­lána­sjóðs­lánin settu á þau.

Þá var von­ast til þess að fleiri stórir fjár­festar, sér­stak­lega stofn­ana­fjár­festar á borð við íslensku líf­eyr­is­sjóð­ina, myndu taka þátt í útboði á hlutum í félag­inu í aðdrag­anda skrán­ingar. Auk þess tryggir skrán­ing selj­an­leika á hluta­bréfum sem er ekki til staðar hjá óskráðum félögum.

Það má segja að ekk­ert af þessum mark­miðum hafi náðst.

Í fyrra­vor fjöll­uðu íslenskir fjöl­miðlar um að hluti eig­enda og stjórn­enda Heima­valla hefðu fundið leið til þess að taka fé út úr félag­inu á annan hátt en með því að greiða arð. Það var gert í gegnum þóknana­greiðslur sem greiddar voru til eign­ar­halds­fé­lags­ins Heima­valla GP, sem séð hafi um umsýslu eigna fyrir Heima­velli. Alls námu þær þóknana­greiðslur rúm­lega 480 millj­ónum króna á árunum 2015 til loka árs 2017.

Bara á árinu 2017 fékk félagið greitt 270 millj­ónir króna vegna þókn­ana fyrir grein­ingu og fram­kvæmdar fjár­fest­inga. Samningi milli Heima­valla GP og Heima­valla var svo slitið í októ­ber 2017, í aðdrag­anda skrán­ingar á markað, enda hefði slíkur samn­ingur ekki litið vel út hjá skráðu félagi.

Gagnrýni Ragnars Þórs vóg þungt

Fyr­ir­komu­lagið var harð­lega gagn­rýnt, sér­stak­lega af Ragnari Þór Ing­ólfs­syni, for­manni VR. Hann sagði í stöðu­upp­færslu á Facebook þann 25. apríl 2018, um mán­uði fyrir skrán­ingu Heima­valla, að með því hafi útvöldum hópi gef­ist kostur á „400 millj­óna króna hlut á silf­ur­fati sem árang­urstengd greiðsla fyrir að keyra upp leigu­verð á fákeppn­is­mark­aði þar sem skelfi­legt ástand á hús­næð­is­mark­aði hefur skap­ast, vegna lít­ils fram­boðs, og hefur keyrt upp fast­eigna­verð og þar af leið­andi fast­eigna­mat og á end­anum eignir félags­ins. Það hlýtur að vera krafa verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar og sjóð­fé­laga líf­eyr­is­sjóð­anna að eig­endur félags­ins verði ekki verð­laun­aðir frekar með fjár­fest­ingum líf­eyr­is­sjóða í útboði félags­ins. Við því verður harka­lega brugð­ist ef svo verður!“

Útboðið olli vonbrigðum

Í hluta­fjár­út­boði Heima­valla voru boðnir til sölu 750 millj­ónir hluta en heim­ild var til staðar að hækka útboðið upp í 900 millj­ónir hluta ef eft­ir­spurn gæfi til­efni til. Það gerði hún ekki.

Fjár­festar áttu að gera til­boð á bil­inu 1,38- 1,71 krónur á hlut fyrir stærstan hluta þess sem var til sölu. Nið­ur­staðan varð sú að vegið með­al­tal var 1,39 krónur á hlut, eða mjög nálægt lægri mörk­unum. Ekki reynd­ist þörf á að stækka útboðið enda ekki eft­ir­spurn eftir því að kaupa umfram­hlutafé á því verði sem von­ast var eftir. Athygli vakti t.d. að áhugi ann­arra líf­eyr­is­sjóða en þeirra sem þegar voru í eig­enda­hópnum var lít­ill sem eng­inn.

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, gagnrýndi Heimavelli harðlega í aðdraganda skráningar félagsins á markað.
Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, gagn­rýndi Heima­velli harð­lega í aðdrag­anda skrán­ingar félags­ins á markað.

Við­mæl­endur Kjarnans segja að þar hafi gagn­rýni Ragnars Þórs og önnur umræða um ábyrgð Heima­valla á háu leigu­verði á almennum mark­aði spilað stóra rullu. Líf­eyr­is­sjóð­irnir hafi ekki viljað fjár­festa í félagi sem virt­ist, að minnsta kosti sam­kvæmt almennri umræðu, vera með and­stæða hags­muni við stóran hóp sjóðs­fé­laga þeirra.

Bréf Heima­valla voru svo tekin til við­skipta 24. maí 2018 í Kaup­höll­inni og verðið í lok dags var ell­efu pró­sentum lægra en með­al­tals­gengið í útboð­inu. Eftir fyrsta dag á mark­aði lækk­aði heild­ar­virði Heima­valla í 13,9 millj­arða króna.

Gengi bréfa í Heima­völlum hefur síðan þá aldrei farið yfir 1,29 krónur á hlut og rétt rúmu ári eftir skrán­ingu er gengið ein­ungis 1,20 krónur á hlut.

Ekki nægjanleg eftirspurn eftir skuldabréfum

Þrátt fyrir von­brigðin með þátt­töku í útboð­inu og lít­inn sem engan áhuga stærstu leik­enda á íslenskum hluta­bréfa­mark­aði á því að fjár­festa í Heima­völlum, þá hélt félagið sínu striki. Enn var stefnan að ná betri kjörum á fjár­magns­mark­aði og losna undan arð­greiðslu­bann­inu sem fylgdi hinum dýru lánum frá Íbúð­ar­lána­sjóði. Í hálfs­árs­upp­gjöri Heima­valla í fyrra, sem birt var í lok ágúst, kom fram að félagið ætti í sam­starfi við Arion banka um útgáfu á fast­eigna­tryggðum skulda­bréfum sem er stefnt að bjóða fjár­festum í októ­ber 2018. „Við teljum að skulda­bréf hjá skráðu félagi með veði í vönd­uðu íbúða­safni ætti að höfða til margra lang­tíma­fjár­festa,“ sagði í frétta­til­kynn­ingu.

Það gekk hins vegar hægt að end­ur­fjár­magna lán Heima­valla. Gefnir voru út skulda­bréfa­flokkar en mark­mið Heima­valla með útgáfu þeirra náð­ust ekki.

Enn var uppi­staðan af skuldum Heima­valla við Lands­bank­ann og Íbúða­lána­sjóð í formi verð­tryggðra lána. Áhugi fjár­festa á hluta­bréfum félags­ins var áfram lít­ill eða eng­inn. Virði þeirra ein­fald­lega hagg­að­ist ekki úr kjall­ara Kaup­hallar Íslands.

Breytt um kúrs

Í nóv­em­ber 2018 var send til­kynn­ing til Kaup­hallar Íslands um að Heima­vellir hefðu tekið upp ný stefnumið og ætl­uðu að end­ur­skipu­leggja fast­eigna­safn sitt. Verið var að breyta um kúrs ein­ungis nokkrum mán­uðum eftir að skrán­ing á markað gekk í gegn.

Í til­kynn­ing­unni sagði að selja ætti fast­eignir fyrir 17 millj­arða króna á árunum 2018 til 2020 og kaupa á móti nýjar fyrir níu millj­arða króna. Í nýjum stefnu­miðum félags­ins var fjölgun minni íbúða gerð að for­gangs­máli, áhersla lögð á að eiga heil fjöl­býl­is­hús og auka hlut­deild íbúða sem væru á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Þessari línu var fylgt næstu vik­urnar og eignir annað hvort seldar eða settar í sölu.

Í lok jan­úar fóru hlut­irnir hins vegar að ger­ast hratt. Ljóst var að skrán­ing Heima­valla á markað hafði alls ekki lukk­ast og hluti þeirra sem höfðu fjár­fest í félag­inu voru óánægðir með stöð­una. Fyrst var til­kynnt, þann 31. jan­úar 2019, að Guð­brandur Sig­urðs­son, fram­kvæmda­stjóri Heima­valla, myndi stíga til hliðar í lok mars­mán­aðar.

Heimavellir voru skráðir á markað í lok maí í fyrra. Síðan þá hefur verið reynt að afskrá félagið og Guðbrandur Sigurðsson, sem sést hér hringja bjöllunni frægu, hefur stigið til hliðar sem framkvæmdastjóri félagsins. Mynd: Nasdaq Ísland
Heima­vellir voru skráðir á markað í lok maí í fyrra. Síðan þá hefur verið reynt að afskrá félagið og Guð­brandur Sig­urðs­son, sem sést hér hringja bjöll­unni frægu, hefur stigið til hliðar sem fram­kvæmda­stjóri félags­ins. Mynd: Nasdaq Ísland

Degi síðar var greint frá því að stjórn Heima­valla hefði borist erindi frá þremur hlut­höfum þar sem farið var fram á það við stjórn félags­ins að hún boð­aði til hlut­hafa­fundar þar sem til­laga yrði gerð um afskrán­ingu Heima­valla af mark­aði eða að slík til­laga yrði sett á dag­skrá aðal­fundar 14. mars 2019.

Afskráning en ekki yfirtökuskylda

Hlut­haf­arnir þrír voru Snæból ehf. (7,54 pró­sent), Gana ehf. (7,54 pró­sent) og Klasi ehf. (3,85 pró­sent). Samtals áttu þessir þrír hlut­hafar 18,93 pró­sent í Heima­völlum og um tengda aðila var að ræða. Klasi ehf. er í eigu Siglu ehf. sem er fjár­fest­inga­fé­lag í eigu Snæbóls ehf. og Gana ehf. Þau félög eru í eigu Finns R. Stef­áns­sonar og Tómasar Krist­jáns­sonar.

Í til­kynn­ingu til Kaup­hallar, sem er skrifuð á bréfs­efni Arctica Finance, umsjón­ar­að­ila afskrán­ing­ar­innar, sagði að það væri „mat hlut­haf­anna að taka hluta­bréf­anna til við­skipta hjá NASDAQ Iceland hf. hafi ekki skilað væntum ávinn­ingi fyrir hlut­hafa og félagið.“

Til­boðs­verðið var 1,30 krónur á hlut sem var aðeins yfir skráðu gengi Heima­valla en undir því verði sem hluta­bréf félags­ins voru seld á í útboð­inu í aðdrag­anda skrán­ingar. Í bréf­inu sagði: „Til­gang­ur­inn með hinu val­frjálsa til­boði er að greiða fyrir töku hluta­bréfa Heima­valla hf. úr við­skiptum hjá NASDAQ Iceland hf. og veita þeim hlut­höfum sem hugn­ast ekki afskrán­ing, kost á að selja. Ljóst er að selj­an­leiki bréf­anna, sér­stak­lega minni hluta, mun minnka við afskrán­ingu úr kaup­höll og upp­lýs­inga­gjöf til hlut­hafa verður tak­mark­aðri, þetta getur verið for­sendu­brestur og áhættu­þáttur sem ein­hverjir hlut­hafa vilja forð­ast.“

Í aðdrag­anda aðal­fundar Heima­valla lagði síðan félagið AU 3 ehf. fram til­boð í 27 pró­sent hlut í Heima­völlum fyrir fjóra millj­arða króna. Þeir sem ætl­uðu að leggja AU 3 til fé voru áður­nefnt Sigla, félagið Umbreyt­ing slhf., Varða Capital og Eign­ar­halds­fé­lagið VGJ ehf.

Eigandi AU 3 var Umbreyt­ing og stærsti eig­andi þess er Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna og áður­nefnt Snæból með 14,72 pró­sent hlut hvor. Auk þess átti VÍS stóran hlut, eða 7,85 pró­sent.

Ekki mynd­að­ist yfir­töku­skylda við til­boðið og því áttu þeir sem vildu ekki taka því að halda áfram að vera í hlut­hafa­hópi Heima­valla eftir að félagið yrði afskráð. Slíkt hefði þýtt mun minni selj­an­leika bréfa og miklu minni upp­lýs­inga­gjöf en fylgir því að vera skráð félag.

12. mars var birt grein­ar­gerð stjórnar Heima­valla þar sem fram kom að hún teldi ekki til­efni til að ætla að val­frjáls til­boðið hefi nei­kvæð áhrif á hags­muni Heima­valla, störf stjórn­enda og starfs­manna félags­ins. Enginn stjórn­ar­maður sem átti hluti í Heima­völlum ætl­aði að taka til­boð­inu á þessum tíma.

Fimmtu­dag­inn 14. mars var aðal­fundur Heima­valla hald­inn á Hilton Reykja­vík Nordica. Þar var til­laga um afskrán­ingu félags­ins sam­þykkt með meiri­hluta greiddra atkvæða, eða 81,3 pró­sent greiddra atkvæða. Viku síðar var sent erindi á Kauphöll Íslands þar sem óskað var eftir því að bréfin yrðu tekin úr sölu.

Kauphöllin segir nei

Þann 17. apríl 2019 til­kynnti Kaup­höllin hins vegar að hún hefði tekið ákvörðun um að hafna afskrán­ing­unni. Í rök­stuðn­ingi hennar sagði gera mætti „ráð fyrir því að margir hlut­hafar sem tóku þátt í útboði félags­ins þegar hluta­bréf þess voru tekin til við­skipta í maí 2018 hafi gert það á grund­velli þess að hluta­bréfin yrðu eftir það í við­skiptum á Aðal­mark­aði Kaup­hall­ar­innar.[...]Þá hafi hlut­hafar að baki 18,7 pró­sent atkvæða á aðal­fundi greitt atkvæði gegn töku hluta­bréfa félags­ins úr við­skiptum. Telur Kaup­höllin að um veru­lega hátt hlut­fall sé að ræða og sam­ræm­ist það mati ann­arra kaup­halla í nágranna­ríkjum okkar[..] Ljóst er að þessir hlut­hafar geta hæg­lega „frosið inni“ með eign­ar­hluti sína komi til þess að hluta­bréf félags­ins verið tekin úr við­skiptum.“

Páll Harðarson, forstjóri Kauphallar Íslands, ákvað ásamt samstarfsfólki sínu að hafna afskráningarbeiðni Heimavalla. Mynd: Aðsend
Páll Harð­ar­son, for­stjóri Kaup­hallar Íslands, ákvað ásamt sam­starfs­fólki sínu að hafna afskrán­ing­ar­beiðni Heima­valla. Mynd: Aðsend

Þann 22. maí var greint frá því að fallið hafi verið frá til­boði AU 3 ehf.

Verðmat sem sýndi mun hærra virði eigna

Ýmsir aðilar í við­skipta­líf­inu, meðal ann­ars hlut­hafar í Heima­völlum, telja að mögu­lega hafi verið annar grund­völlur fyrir afskrán­ing­ar­veg­ferð stórra hlut­hafa. Þar staldra margir við mjög ítar­legt verð­mat sem Arctica Finance, sem sá um afskrán­ing­ar­ferlið, gerði á Heima­völlum. Um var að ræða langít­ar­leg­asta verð­mat sem gert hefur verið á félag­inu.

Virði Heima­valla miðað við mark­aðsvirði í dag er í kringum 13 millj­arða króna. Það þýðir að skráður mark­aður verð­metur félagið á því verði. Eigið fé Heima­valla, mun­ur­inn á bók­færðum eignum og skuldum er hins vegar mun hærri tala eða 18,9 millj­arðar króna.

Á blað­síðu þrjú í verð­mati Arctica Finance, sem hluti hlut­hafa Heima­valla höfðu aðgang að og er kyrfi­lega merkt trún­að­ar­mál, kom fram að Arctica Finance meti eignir Heima­valla á mun hærra verði en gert sé í síð­asta birta árs­hluta­reikn­ingi og að fyr­ir­tækið telji að eigið fé Heima­valla miðað við sitt mat eigi að vera 27 millj­arðar króna. Því skeikar 14 millj­örðum króna á mats­verði Heima­valla og mark­aðsvirði félags­ins og eftir umtals­verðu að slægj­ast ef hægt yrði að afskrá félagið ódýrt en selja svo eignir þess jafnt og þétt.

Miðað við hið val­frjálsa til­boð sem hlut­höfum Heima­valla var gert vegna fyr­ir­hug­aðrar afskrán­ingar var heild­ar­virði félags­ins um 15 millj­arðar króna, eða 12 millj­örðum krónum lægra en verð­mat Arctica Finance sagði til um. Miðað við það verð­mat ætti virði hvers hlutar í Heima­völlum að vera 2,4 krónur á hlut.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár