„Hugsum okkur um áður en við notum bílinn sem úlpu“

Þingmenn úr röðum Vinstri­hreyf­ing­ar­innar - græns fram­boðs og Við­reisnar gerðu almenn­ings­sam­göngur að umtals­efni sínu á þingi í dag. Þau sögðu skerð­ingu á þjón­ustu strætó vekja upp spurn­ingar og að arð­bærni almenn­ings­sam­gangna væri öllum ljós.

Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir, sitjandi varaþingmaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs.
Jana Salóme Ingi­bjargar Jós­eps­dóttir, sitj­andi vara­þing­maður Vinstri­hreyf­ing­ar­innar - græns fram­boðs. Mynd: Skjáskot/Alþingi

Skerðing á þjón­ustu Strætó bs. vekur upp spurn­ingar um þá gríð­ar­legu áherslu sem einka­bíll­inn fær enn þann dag í dag í sam­fé­lag­inu þrátt fyrir aukna áherslu á fjöl­breytta og vist­væna ferða­máta að mati Jönu Salóme Ingi­bjargar Jós­eps­dóttur, þing­manns Vinstri­hreyf­ing­ar­innar - græns fram­boðs.

„Tal síð­ustu mán­aða um halla­rekstur á Strætó bs. og skerð­ingu á þjón­ustu vekur upp margar spurn­ingar. Það vekur upp spurn­ingar um skipu­lag, inn­viða­upp­bygg­ingu og hver raun­veru­legur gróði af bættum og betri almenn­ings­sam­göngum er,“ sagði Jana Salóme er hún fjall­aði um almenn­ings­sam­göngur undir dag­skrár­liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag. Hún sagði stöð­una einnig vekja upp spurn­ingar um hvort almenn­ings­sam­göngur ættu ekki að vera skil­greindar sem grunn­þjón­usta.

Gefa þurfi raunverulegt val og frelsi til að velja sér samgöngumáta

Í ræðu sinni minnt­ist Jana á sam­starfs­verk­efni Vistorku og Orku­set­urs sem nefn­ist SKREF en mark­mið þess er að draga úr notkun einka­bíls­ins með breyttum ferða­venjum. „Það er ein af lyk­il­að­gerðum þegar kemur að árangri í lofts­lags­málum á Íslandi. Orku­skipti nægja ekki þar heldur þarf að fækka bílum á göt­unum. Það minnkar svifryks­mengun, eykur umferð­ar­ör­yggi og dregur úr kostn­að­ar­sömu við­haldi gatna ásamt því að vera stórt umhverfis- og lofts­lags­mál því að akstur bíls er eitt en fram­leiðsla og förgun annað,“ sagði Jana Salóme.

Hug­ar­fars­legar hindr­anir er einn af þeim þáttum sem standa í vegi fyrir því að notkun einka­bíls­ins minnki að mati Jönu Salóme. „Við ofmetum ferða­tíma göngu og hjól­reiða og van­metum ferða­tíma á bíl. Hugsum okkur um áður en við notum bíl­inn sem úlpu. Gæti verið að það sé fljót­legra að ganga, hjóla eða nýta almenn­ings­sam­göngur?“ spurði Jana Salóme í ræðu­stól Alþingis.

Að lokum sagði hún það einnig vera frels­is­mál að geta valið um aðra sam­göngu­máta en einka­bíl­inn. „Þetta er ekki spurn­ing um að það sé ein­hver sér­stök aðför að einka­bílnum í gangi heldur er þetta spurn­ing um að gefa fólki raun­veru­legt val, raun­veru­legt frelsi til að geta valið sér sam­göngu­máta. Þá þurfa upp­bygg­ing inn­viða og fjár­fest­ingar að vera í takti við það.“

Arðbærni almenningssamganga sé öllum ljós

Jón Steindór Valdi­mars­son, þing­maður Við­reisnar, gerði sam­göngur einnig að umtals­efni sínu undir liðnum störf þings­ins en hann sagði þær skipta miklu máli, sér­stak­lega þegar stórir hópar ferð­ast á sama tíma á milli sömu staða. Það væri hag­kvæmt að samnýta ferðir auk þess sem það drægi úr umferð, hvort sem um væri að ræða á virkum morgnum, síð­degis eða þegar fólk vill ferð­ast heim eftir skemmtun á einu af öld­ur­húsum mið­borg­ar­innar.

„Þjóð­hags­leg arð­bærni almenn­ings­sam­gangna er öllum ljós og var stað­fest í skýrslu um Borg­ar­línu sem sýndi fram á um 25,5 millj­arða kr. sam­fé­lags­á­bata af fyrstu lotu upp­bygg­ingar Borg­ar­lín­unnar. Þjónusta á borð við almenn­ings­sam­göngur þarf ekki að standa undir eigin kostn­aði til að verða arð­bær en hún þarf að vera notuð af nógu mörgum til þess,“ sagði Jón Steindór í ræðu sinni.

Hann bætti því við að það væri arð­bært að draga úr mengun frá umferð, að stytta ferða­tíma og að tryggja „fólki sem tekur þátt í skemmt­ana­líf­inu örugga og áreið­an­lega för heim til sín og kemur von­andi í veg fyrir að sumt fólk freist­ist til að keyra undir áhrifum, sér­stak­lega nú um stundir þegar bið eftir leigu­bílum virð­ist vera mæld í klukku­stundum.“

„Hver yrðu eig­in­lega áhrifin á morg­un­um­ferð­ina ef allir not­endur strætó væru á eigin bíl? Hver eru rök fyrir því að fella niður næt­ur­strætó þegar 3.000 far­þegar nýttu sér þjón­ust­una í júlí og ágúst?“ spurði Jón Steindór áður en hann að end­ingu hvatti ráð­herra sam­göngu­mála, Sigurð Inga Jóhanns­son, til að veita almenn­ings­sam­göngum stuðn­ing í sam­ræmi við mik­il­vægi þjón­ust­unnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár