Nokkur dæmi um hvernig John Oliver er að hafa áhrif á bandarískt samfélag

Sjónvarps­þáttur breska grín­istans og samfélags­rýnisins John Oliver á sjónvarps­stöðinni HBO virðist vera að hafa bein áhrif á bandarískt samfélag. Þá eru nokkrar vísbendingar um hvernig hárbeitt gagnrýni Oliver hefur haft bein áhrif á löggjafann, og komið úrbótum til leiða.

Það er í sjálfu sér ekkert nýtt að grínistar geri óspart grín að ríkjandi menningu og stjórn­völdum, en það er ekki á hverjum degi að ádeila þeirra ratar inn á vefsíður ríkis­stofnanna eða hafi bein áhrif á ráðamenn til að ráðast í laga­breytingar.

Þáttur John Oliver, Last Week Tonight, hefur á skömmum tíma skipað sér slíkan sess. Þrátt fyrir að fyrrum kollegar hans, þeir Stephen Colbert og Jon Stewart, hafi til langs tíma gagnrýnt frétta­flutning í Banda­ríkjunum og bent á fárán­leika hversdags­leikans, stendur þáttur Olivers þeim framar fyrir rann­sóknar- og greiningar­vinnu þegar eldfim málefni eru tekin til umfjöllunar. Fréttamiðillin TIME fjallar um sívaxandi áhrif Oliver.

Hér eru nokkur dæmi um hvernig breski sjónvarps­maðurinn hefur haft áhrif til góðra verka.

Í júní gagnrýndi Oliver hvernig veð, til að fá mann lausan úr haldi, koma niður á fátækum sakborningum sem neyðast til að sitja á bakvið lás og slá án þess að hafa hlotið dóm. Fólk sem geti ekki greitt trygginguna hafi tvo slæma kosti: að játa glæpinn til að þurfa ekki að sitja í gæslu­varðhaldi eða dveljast í fanga­klefa fram að réttar­haldi.

Mánuði eftir gagnrýni Oliver tilkynnti Bill de Blasio, borgar­stjóri New York borgar, að borgar­yfirvöld hygðust slaka á kröfu um veð gegn lausn úr haldi, þegar um væri að ræða afbrot þar sem ofbeldi kom ekki við sögu, og smáglæpi.

Oliver hefur látið meinta spillingu innan FIFA sig varða, og gagnrýnt forystu alþjóða­knattspyrnu­sambandsins harðlega. Hann fjallaði um spillta yfir­stjórn FIFA löngu fyrir umfangs­miklar aðgerðir bandarísku alríkis­lögreglunnar FBI, en sunnu­daginn eftir að hátt­settir menn innan sambandsins voru hand­teknir, kallaði Oliver ákaft eftir afsögn Sepp Blatter forseta FIFA.

Á þriðjudaginn eftir þáttinn varð Oliver svo að ósk sinni þegar Blatter tilkynnti skyndi­lega um afsögn sína, daginn eftir að hann var endur­kjörinn forseti FIFA.

Þá er talið að hörð gagnrýni Oliver á boðaðar laga­breytingar um aðgengi almennings í Banda­ríkjunum að internetinu (net neutrality), hafi haft mikil áhrif á að frá þeim var fallið. Í þættinum sínum sakaði Oliver bandarísk fjarskipta­fyrirtæki um að ætla sér græða á því að rukka notendur aukalega fyrir aðgang að sérstökum hrað­brautum á veraldar­vefnum, og mismuna þannig fólki eftir fjárhag varðandi aðgengi að netinu.

Oliver hvatti aðdáendur sína til að senda bandarískum fjarskipta­yfirvöldum kvörtun í tölvu­pósti vegna þessa, sem varð til þess að netþjónar hrundu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár