Segir að reynslan í COVID megi ekki renna út í sandinn – Fastur vinnustaður ekki eina leiðin

Þing­maður Við­reisnar veltir því fyrir sér hvers vegna Stjórn­ar­ráðið vinni ekki eftir fjar­vinnu­stefnu. Þannig væri hægt að laða að starfs­fólk, spara í skrif­stofu­rekstri og ferða­kostn­aði og auka sveigj­an­leika starfs­fólks.

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir þingmaður Viðreisnar.
Þorbjörg Sigríður Gunn­laugs­dóttir þing­maður Við­reisnar. Mynd: Bára Huld Beck

Þorbjörg Sigríður Gunn­laugs­dóttir þing­maður Við­reisnar hefur lagt fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um að gerð verði úttekt á þeim tæki­færum sem fel­ast í fjar­vinnu og mark­vissri fjar­vinnu­stefnu fyrir íslenskan vinnu­markað.

Hún er ekki síst að horfa á hið opin­bera þar sem fjar­vinna getur átt við. „Með þessu gætu íslensk stjórn­völd orðið leið­andi um að festa fjar­vinnu­stefnu í sessi,“ sagði hún undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í vik­unni.

„Fyrir heims­far­ald­ur­inn vissum við mörg um kosti fjar­vinnu en fáir höfðu kannski reynt hana af fullum þunga. En nú eru bæði ein­stak­lingar, fyr­ir­tæki og stofn­anir reynsl­unni rík­ari og þekkja hvaða jákvæðu áhrif fjar­vinna getur haft á starfs­á­nægju, fram­leiðni og sveigj­an­leika í starfi.

Fastur vinnu­staður er ekki eina leiðin og það er kostur fyrir margt fólk, ekki síst fjöl­skyldu­fólk, að geta unnið að heiman eða í bland­aðri vinnu á skrif­stofu. Reynslan og þekk­ingin sem við öðl­uð­umst í COVID má þess vegna ekki renna út í sand­inn,“ sagði hún.

Eitt ráðuneyti af tólf með framsækna stefnu í þessum efnum

Þá telur Þor­g­björg að fjar­vinna geti einnig haft jákvæð áhrif á sam­göngur og umferð­ar­þunga og þannig stutt við mark­mið stjórn­valda í lofts­lags­málum.

„Fjar­vinnu­stefna felur í sér tæki­færi fyrir lands­byggð­irnar, að það sé hægt að stunda vinnu óháð búsetu. Finnland hefur verið leið­andi um að liðka fyrir fjar­vinnu þegar kostur er á og sveigj­an­legur vinnu­tími hefur verið lög­festur þar í landi, alveg frá 1996 og árið 2020 tóku gildi lög þar í landi sem heim­ila starfs­fólki í fullu starfi rétt á að skipu­leggja um helm­ing vinnu­tíma síns, þ.e. hvar og hvenær vinnan er unnin. Sem stendur er eitt ráðu­neyti hér af 12 með fram­sækna stefnu í þessum efnum.

En ég velti því fyrir mér hvers vegna Stjórn­ar­ráðið allt vinnur ekki eftir fjar­vinnu­stefnu. Þannig væri hægt að laða að starfs­fólk, það væri hægt að spara í skrif­stofu­rekstri og ferða­kostn­aði, auka sveigj­an­leika starfs­fólks og leggja mark­miðum á sviði lofts­lags­mála lið. Íbúar á lands­byggð­unum gætu keppt um störf opin­berra stofn­ana með því að vinna í fjar­vinnu,“ sagði hún jafn­framt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár