Hluthöfum Íslandsbanka fækkað um næstum tíu þúsund frá skráningu á markað

Sá hlutur sem íslenska ríkið seldi í Íslands­banka í fyrra­sumar hefur hækkað um 33,6 millj­arða króna frá því að hann var seldur. Sá hlutur sem ríkið seldi til 207 fjár­festa í lok­uðu útboði í mars hefur hækkað um 4,3 millj­arða króna.

Hlutafjárútboð og skráning Íslandsbanka á markað voru valin viðskipti ársins 2021 á verðlaunahátíð Innherja sem fram fór miðvikudaginn 15. desember síðastliðinn.
Hluta­fjár­út­boð og skrán­ing Íslands­banka á markað voru valin við­skipti árs­ins 2021 á verð­launa­há­tíð Innherja sem fram fór mið­viku­dag­inn 15. des­em­ber síð­ast­lið­inn. Mynd: Íslandsbanki

Þegar Íslands­banki var skráður á markað í júní 2021, að und­an­gengnu hluta­fjár­út­boði þar sem 35 pró­sent hlutur rík­is­ins var seldur á 55 millj­arðar króna, voru hlut­hafar bank­ans um 24 þús­und tals­ins, enda hafði þátt­taka í útboð­inu á meðal almenn­ings verið sér­lega góð. Þar skipti miklu að þeir sem skráðu sig fyrir kaupum upp á eina milljón króna eða minna voru ekki skertir, þrátt fyrir að eft­ir­spurn eftir bréfum hafi verið níföld.

Auk þess þótti útboðs­gengið, 79 krónur á hluti, að mati grein­ing­ar­að­ila vera lágt miðað við efna­hags­reikn­ing bank­ans og stöð­una á hluta­bréfa­mark­aði á þeim tíma. Það kom enda á dag­inn að gengið hækk­aði nokkuð skarpt. Á fyrsta degi við­skipta hækk­aði það um tæp­lega 20 pró­sent.

Síðan þá hefur ríkið selt 22,5 pró­sent hlut til við­bótar í bank­anum á 52,65 millj­arða króna í lok­uðu útboði þar sem 207 skil­greindir fag­fjár­festar fengu að kaupa. Sú sala fór fram 22. mars á þessu ári og hefur haft mikla eft­ir­mála. Í könnun sem Gallup lét fram­kvæma í vor kom fram að 88,4 pró­sent lands­manna töldu að óeðli­legir við­skipta­hættir hafi átt sér stað við söl­una og 83 pró­sent þjóð­ar­innar sögð­ust óánægð með fram­kvæmd­ina.

[adspot]Ástæðan er meðal ann­ars sú að hóp­ur­inn sem fékk að kaupa hlut rík­is­ins í bank­anum inni­hélt meðal ann­ars starfs­menn og eig­endur sölu­ráð­gjafa, litla fjár­festa sem rök­studdur grunur er um að upp­fylli ekki skil­yrði þess að telj­ast fag­fjár­fest­ar, erlenda skamm­tíma­sjóði sem höfðu sýnt það áður í verki að þeir hafa engan áhuga á að vera lang­tíma­fjár­festar í Íslands­banka, fólk í virkri lög­reglu­rann­sókn, aðila sem áttu stóra hluti í bönkum fyrir hrun og föður Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, sem er sá ráð­herra sem heldur á hlut rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum. Rík­is­end­ur­skoðun var fengin til að fram­kvæma stjórn­sýslu­út­tekt á söl­unni snemma í apríl og til stóð að hún nið­ur­staða hennar yrði birt í opin­berri skýrslu til Alþingis í júní 2022. Birtingu þeirrar skýrslu hefur síðan ítrekað verið frestað, nú síð­ast til seinni hluta ágúst­mán­aðar.

Sú gagn­rýni sem sett var fram á sölu­ferli Íslands­banka gerði það að verkum að frek­ari áformum um sölu á hlut rík­is­ins í bank­anum, en ríkið heldur enn á 42,5 pró­sent hlut, var slegið á frest um óákveð­inn tíma.

Hluthöfum fækkað um 40 prósent á einu ári

Þegar Íslands­banki birti upp­gjör sitt fyrir fyrri hluta árs­ins 2022 í síð­ustu viku kom fram að hlut­hafar í bank­anum séu nú 14.300 tals­ins. Þeim hefur því fækkað um 9.700 frá því í júní í fyrra, eða um 40 pró­sent. Kaup­endur af þorra þeirra bréfa sem seld hafa verið eru íslenskir líf­eyr­is­sjóðir, í eigu íslensks almenn­ings, sem eiga að minnsta kosti sam­an­lagt um 28 pró­sent hlut í bank­anum.

Á sama tíma hefur virði Íslands­banka auk­ist gríð­ar­lega, en virði bréfa í honum var í byrjun viku var 60,2 pró­sent hærra en skrán­ing­ar­gengi bank­ans. Það þýðir að ein­stak­lingur sem keypti fyrir eina milljón króna í fyrra, og heldur enn á bréfum sínum, á nú bréf sem er um 1,6 milljón króna virði.

Mark­aðsvirði bank­ans við skrán­ingu var 158 millj­arðar króna. Það var í byrjun viku 253,2 millj­arðar króna og hefur því hækkað um 95,2 millj­arða króna á því rúma ári sem liðið er frá skrán­ingu. Sá 35 pró­sent hlutur sem ríkið seldi í fyrra­sumar var í byrjun viku 33,6 millj­arða króna meira virði en hann var þegar ríkið seldi hann.

Þeir sem keyptu 22,5 pró­sent hlut í mars gerðu það á geng­inu 117 krónur á hlut, sem var rúm­lega fjögur pró­sent undir skráðu gengi bank­ans á þeim tíma. Sá afsláttur var rök­studdur með því að það væri alvana­legt alþjóð­lega þegar stór hlutur í skráðu félagi væri seldur með til­boðs­fyr­ir­komu­lagi að gefa afslátt.

Fyrir liggur að hluti þeirra fjár­festa sem var boðið að taka þátt seldu sig út úr bank­anum skömmu eftir að hinu lok­aða útboði lauk. Það hafa fleiri líka gert, enda hefur hlut­höfum í Íslands­banka fækkað um eitt þús­und tals­ins frá lokum mars­mán­aðar, þegar þeir voru 15.300 tals­ins.

Hluta­bréf í Íslands­banka eru nú nú 8,2 pró­sent meira virði en þau voru þegar ríkið seldi 22,5 pró­sent hlut í mars. Það þýðir að virði þess hlutar hefur auk­ist um 4,3 millj­arða króna.

Hagnaðist um 11,1 milljarð króna á fyrri hluta árs

Íslands­banki birti upp­gjör sitt fyrir fyrri hluta árs­ins 2022 í síð­ustu viku. Þar kom fram að hagn­aður bank­ans hafi verið 11,1 millj­arður króna á fyrstu sex mán­uðum árs­ins og arð­semi eigin fjár 10,9 pró­sent, sem er yfir tíu pró­sent mark­miði bank­ans.

[links]Hreinar þókn­ana­tekjur juk­ust um 12,6 pró­sent milli ára og greinar vaxta­tekjur um 17,2 pró­sent, Kostn­að­ar­hlut­fall bank­ans – en stærsti kostn­að­ar­lið­ur­inn er starfs­manna­hald – lækk­aði úr 50,6 í 45 pró­sent milli ára en starfs­fólki í fullu starfi hefur fækkað úr 768 í 740 á einu ári.

Vaxta­munur á síð­asta árs­fjórð­ungi var 2,9 pró­sent, sem er ívið hærra en hann var á öðrum árs­fjórð­ungi 2021, þegar hann var 2,4 pró­sent.

Íslands­banki greiddi 11,9 millj­arða króna til hlut­hafa sinna í arð vegna frammi­stöðu síð­asta árs. Þegar bank­inn birti árs­reikn­ing sinn vegna árs­ins 2021 í febr­úar kom fram að stjórn hans stefndi að því að greiða út 40 millj­arða króna í umfram eigið fé á næstu 12-24 mán­uð­um. Sú veg­ferð hófst með því að aðal­fundur bank­ans sam­þykkti að hefja end­ur­kaup á bréfum fyrir 15 millj­arða króna í ár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár