„Við eigum að færa þessa verslun heim í hérað – frá Búrgundí í Bústaðahverfið“

Þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins spyr hvers vegna íslensk stjórn­völd við­haldi ein­ok­un­ar­til­burðum varð­andi áfeng­is­sölu.

Sigríður Á. Andersen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi dómsmálaráðherra.
Sigríður Á. Andersen, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Sigríður Á. Andersen, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, gerði áfeng­is­sölu á Íslandi að umræðu­efni undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í vik­unni.

„Sagan geymir ýmis dæmi þess að ný tækni og nýjar vörur og nýir við­skipta­hættir sem þeim fylgja rjúfi ein­okun á ákveðnum sviðum og það þótt að rík­is­valdið sé alveg stað­ráðið í því að halda ein­ok­un­ar­stöðu sinni,“ sagði þing­mað­ur­inn og bætti því að með auk­inni net­verslun und­an­far­inna ára hefði ein­okun Áfengis- og tóbaks­verslun rík­is­ins verið rofin að því leyti að Íslend­ingar gætu núna með ein­földum hætti pantað áfengi frá öðrum smá­sölum en ÁTVR.

Það ætti þó ein­ungis við erlendar smá­sölur handan hafs­ins „með til­heyr­andi óhag­ræði fyrir við­skipta­vini hér á landi vegna tíma og kostn­aðar sem fylgir þessum flutn­ingi yfir hafið“.

Nefndi Sigríður í þessu sam­hengi fréttir þess efnis að franskt fyr­ir­tæki, Santewines SAS, byði Íslend­ingum nú að kaupa vín á vef sínum og fá það afhent sam­dæg­urs eða næsta virka dag. „Samkvæmt upp­lýs­ingum á vef fyr­ir­tæk­is­ins er birgða­hald fyr­ir­tæk­is­ins hér á landi sem útskýrir stuttan afgreiðslu­tíma. Það er rétt að halda því til haga að fyr­ir­tækið skilar, að því að mér skilst, öllum áfeng­is­sköttum til rík­is­sjóðs og áfeng­is­versl­un­ar­innar og gætir einnig að aldri við­skipta­vina,“ sagði hún.

„Kominn tími til fyrir löngu“

Spurði þing­mað­ur­inn í fram­hald­inu til hvers Íslend­ingar héldu í þessa ein­ok­un­ar­verslun rík­is­ins. „Til hvers höldum við þessum ein­ok­un­ar­til­burðum áfram? Þeir virð­ast ein­göngu hafa þau áhrif að fyr­ir­tæki sem gætu verið stofnuð hér á landi eru stofnuð erlendis og greiða þar tekju­skatt ef vel gengur. Varla trúa menn því að það breyti ein­hverju um drykkju­venjur hvort vef­verslun er skráð til heim­ilis í Búrgundí eða hér á landi.“

Lauk hún máli sínu með því að segja að Íslend­ingar ættu að færa þessa verslun heim í hérað, frá Búrgundí í Bústaða­hverfið, svo dæmi væri tekið. „Kominn tími til fyrir löngu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár