„Vinstri græn og Framsókn hafa gengið inn í fullmótað kerfi Sjálfstæðisflokksins“

Þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar segir að svo virð­ist sem Vinstri græn og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hafi afsalað sér áhrifum til Sjálf­stæð­is­flokks­ins og að Katrín Jak­obs­dóttir sé hætt í póli­tík.

Kristrún Frostadóttir þingmaður Samfylkingarinnar.
Kristrún Frosta­dóttir þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Mynd: Bára Huld Beck

„Það skiptir máli hver stjórnar, sögðu Vinstri græn í síð­ustu kosn­ingum og margir spurðu sig hvort það væri ekki bara best að kjósa Framsókn. Þessir flokkar virð­ast aftur á móti hafa afsalað sér áhrifum til Sjálf­stæð­is­flokks­ins.“

Þannig hóf Kristrún Frosta­dóttir ræðu sína undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag.

Hún sagði að það væri fjár­mála­ráð­herr­ann, Bjarni Bene­dikts­son, sem réði nema þegar illa gengi. „Þá virð­ist hann ekk­ert vald hafa. Hans und­ir­stofn­anir sjá um þetta allt saman.“

Kristrún sagði jafn­framt að Íslend­ingar stæðu frammi fyrir stórum verk­efnum; eft­ir­köstum heims­far­ald­urs, mestu verð­bólgu í 12 ár, brotnum hús­næð­is­mark­aði og stríði í Evrópu – og á Alþingi mætti rík­is­stjórnin eða fjár­mála­ráð­herra með fjár­mála­á­ætlun út kjör­tíma­bilið sem fæli í sér ein­faldan fram­reikn­ing.

Vísaði hún í orð Sigurðar Inga Jóhanns­sonar inn­við­a­ráð­herra og for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins þegar hann sagði í umræðu um hús­næð­is­mál á Alþingi í síð­asta mán­uði að hann hefði lagt inn til­lögur í fjár­mála­á­ætlun um veru­lega aukn­ingu fjár­muna til að standa að umfangs­mik­illi upp­bygg­ingu félags­legs hús­næðis vegna hús­næð­iskreppu.

„Formaður Fram­sókn­ar­flokks­ins fékk nei frá hæst­virtum fjár­mála­ráð­herra. Það verður engin aukn­ing heldur 2 millj­arða króna nið­ur­skurður í upp­bygg­ingu hús­næðis. Ætli hæst­virtur fjár­mála­ráð­herra hafi sagt við for­mann­inn að fjár­mála­ráðu­neytið hafi bara reiknað þetta svona út, svona eins og með Banka­sýsl­una sem ber alla ábyrgð á banka­söl­unni sam­kvæmt hæst­virtri rík­is­stjórn?“ spurði hún.

Enn tækifæri til að sýna að þau séu ekki hætt í pólitík

Telur Kristrún að Vinstri græn og Framsókn hafi gengið inn í full­mótað kerfi Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

„Hendur allra eru bundnar. Enginn ætlar að bera ábyrgð.“ Þá sagði hún að svo virt­ist sem Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra væri hætt í póli­tík. „Hún les bara upp þurrar yfir­lýs­ingar um banka­söl­una sem virð­ast skrif­aðar af lög­fræð­ingum í ráðu­neyt­inu. Svo mætir hæst­virtur fjár­mála­ráð­herra með blússandi hroka eftir páska­frí og er kom­inn með nýja nálgun: Afneita, afneita, afneita.

Já, það skiptir máli hver stjórnar. En hér eru það ekki Vinstri græn og það virð­ist engu máli hafa skipt þótt fólk hafi kosið Framsókn. Þessir flokkar hafa enn tæki­færi til að sýna að þau eru ekki hætt í póli­tík með því að hætta þess­ari með­virkni með Sjálf­stæð­is­flokknum,“ sagði hún að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár