Þar sem konurnar stýra samfélaginu
Viðtal

Þar sem kon­urnar stýra sam­fé­lag­inu

Sveit­ar­stjór­inn, prest­ur­inn, org­anist­inn, úti­bús­stjóri Lands­bank­ans, versl­un­ar­stjór­inn í Kjör­búð­inni, félags­mála­stjór­inn, fræðslu­stjór­inn, hjúkr­un­ar­for­stjóri hjúkr­un­ar­heim­il­is­ins Sæborgar, hafn­ar­vörð­ur­inn og for­stöðu­maður Vinnu­mála­stofn­unar á Norð­ur­landi vestra, sem er stærsti atvinnu­rek­andi svæð­is­ins, eru allt konur, að ógleymdum stjórn­endum allra skól­anna – grunn­skól­ans, leik­skól­ans og tón­list­ar­skól­ans. Á Skaga­strönd gegna konur lang­flestum af helstu ábyrgð­ar­stöðum sveit­ar­fé­lags­ins.
Þegar konur tóku völdin á útgáfunni
Viðtal

Þegar konur tóku völdin á útgáf­unni

Lengi vel átti það við hér á landi að karlar skrif­uðu bækur sem aðrir karlar gáfu út. Konur hafa hins vegar alla tíð verið á meðal les­enda bóka og lesa sam­kvæmt rann­sóknum tals­vert meira en karl­menn í dag. Það var því eðli­leg þróun þegar konum tók að fjölga á meðal útgef­enda, sem hugs­an­lega hefur átt sinn þátt í því að konur í hópi rit­höf­unda eru nú ekki síður áber­andi en karlar. Ellefu konur sem stýra níu útgáfu­fé­lögum komu saman á dög­unum og ræddu breyt­ingar á bóka­brans­anum, sem þær segja heil­brigð­ari og fjöl­breytt­ari í dag en áður.
Íslendingar glæða sumarið lífi
Viðtal

Íslend­ingar glæða sum­arið lífi

Lands­lagið í ferða­þjón­ustu á Íslandi er gjör­breytt í kjöl­far kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. Óvíst er hvernig sum­arið verður fram undan og aðilar í ferða­þjón­ustu margir hverjir ugg­andi um fram­haldið. Engan bil­bug virð­ist þó vera að finna á þeim ferða­þjón­ustu­að­ilum sem blaða­maður og ljós­mynd­ari Stund­ar­innar heim­sóttu á Norð­vest­ur­landi á dög­unum. Vissu­lega hafa síð­ast­liðnir mán­uðir verið sér­lega óvenju­legir en það virð­ist ríkt í Íslend­ingum að leggja ekki árar í bát heldur frekar að finna frum­legar leiðir og aðferðir til að aðlaga þjón­ustu sína að breyttum aðstæðum.
Brýnt að bæta þjónustu við ungt fólk með heilabilun
ViðtalFaraldur 21. aldarinnar

Brýnt að bæta þjón­ustu við ungt fólk með heila­bilun

Í bígerð er að opna mið­stöð fyrir ungt fólk sem greinst hefur með heila­bilun. Á hverju ári grein­ast um 20 manns undir 65 ára aldri með heila­bilun á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Áætlað er að rúm­lega hund­rað manns auk aðstand­enda myndu á hverjum tíma geta nýtt sér þjón­ustu­mið­stöð­ina, sótt þar meðal ann­ars félags­skap, jafn­ingja­stuðn­ing, þjón­ustu sál­fræð­ings og ann­arra sér­fræð­inga.
„Lífið er rólegra núna en við njótum þess“
ViðtalFaraldur 21. aldarinnar

„Lífið er rólegra núna en við njótum þess“

Tæplega fjögur ár eru frá því að Ellý Katrín Guð­munds­dóttir greind­ist með Alzheimer, aðeins 51 árs. Nýverið hófst nýr kafli í hennar lífi, þegar hún hætti að vinna hjá Reykja­vík­ur­borg og sneri sér alfarið að dag­þjálfun í Hlíðabæ. Hún og eig­in­maður hennar, Magnús Karl Magn­ús­son, standa nú sem fyrr þétt saman og hafa ein­sett sér að njóta ein­földu og kunn­ug­legu hlut­anna í líf­inu.
Pabbi þeirra varð bráðkvaddur skömmu eftir að mamma þeirra fór á hjúkrunarheimili
ViðtalFaraldur 21. aldarinnar

Pabbi þeirra varð bráð­kvaddur skömmu eftir að mamma þeirra fór á hjúkr­un­ar­heim­ili

For­eldrar systk­in­anna Ernu Rúnar, Berg­lindar Önnu og Hjalta., þau Hjört­fríður og Magnús Andri, lét­ust með tveggja ára milli­bili áður en þau náðu sex­tugu. Hjört­fríður hafði glímt við Alzheimer frá árinu 2012 og naut stuðn­ings Magnúsar, sem sinnti henni dag og nótt. Aðeins fáeinum mán­uðum eftir að hún flutti á hjúkr­un­ar­heim­ili varð hann bráð­kvaddur. Systk­inin eru þakk­lát stuðn­ingi sam­fé­lags­ins í Grinda­vík og segja áföllin hafa þjappað þeim saman og breytt afstöðu þeirra til lífs­ins. Þeim þyki lífið ekki lengur vera sjálf­sagt.
„Fólk heldur að maður sé orðinn alveg kexruglaður“
ViðtalFaraldur 21. aldarinnar

„Fólk heldur að maður sé orð­inn alveg kexrugl­aður“

Skip­stjór­inn Jónas Jónasson var ekki nema 53 ára þegar hann greind­ist með Alzheimer fyrir tveimur árum. Grein­ingin var honum og fjöl­skyld­unni högg, ekki síst vegna þess að honum var umsvifa­laust sagt upp vinn­unni og margir félagar hans hættu að hafa sam­band. „Hann var alltaf í sím­anum, það var aldrei hægt að ná í hann,“ segir dóttir hans. „En svo bara hætti sím­inn að hringja.“
Þú verður að eiga textann – og ekki hreyfa vatnið eða snerta veggina
Viðtal

Þú verður að eiga text­ann – og ekki hreyfa vatnið eða snerta vegg­ina

Ég hef búið hér síðan í októ­ber árið 2004 og fann strax og ég flutti inn: Hér er and­inn, hér vil ég vera. Þannig leið mér líka þegar ég kom fyrst í Stiga­hlíð 6, þriðju hæð. Enda vorum við þar lengi. Og hér ætlum við að vera, segir Hrönn Haf­liða­dóttir söng­kona, sund­kona, fyrrum skjala­vörður í dóms- og kirkju­mála­ráðu­neyt­inu, fyrrum þula í sjón­varp­inu og hús­móðir, eig­in­kona, móðir, amma og langamma, þegar við setj­umst til stofu­borðs á heim­ili hennar og bónd­ans í gamla Vesturbæ.
Villingur í hjarta
Viðtal

Vill­ingur í hjarta

Ugla Hauks­dóttir, leik­stjóri og hand­rits­höf­undur, hefur á örfáum árum sýnt sig og sannað. Hún hlaut meðal ann­ars verð­laun Leik­stjóra­sam­bands Banda­ríkj­anna, Director's Guild of America, fyrir stutt­mynd sína við útskrift frá háskóla og í vor fékk hún inn­göngu í þessi sömu sam­tök, fyrst íslenskra kven­leik­stjóra. Hún er þar með komin í hóp við­ur­kennd­ustu Hollywood-leik­stjór­anna aðeins þrí­tug að aldri.
„Stuðningsúrræðin gera ráð fyrir að þolandinn sé kvenkyns”
Viðtal

„Stuðn­ings­úr­ræðin gera ráð fyrir að þol­and­inn sé kven­kyns”

Karl­maður sem var beittur ofbeldi af hendi kær­ustu sinnar upp­lifði að stuðn­ings­úr­ræði fyrir þolendur ofbeldis í nánum sam­böndum væru hönnuð fyrir kven­kyns þolendur. Taldi hann kerfið gera ráð fyrir að ger­andi væri karl­kyns. Sér­fræð­ingar sem leitað var til töldu að karl­mennsku­hug­myndir stæðu oft í vegi fyrir því að karl­kyns þolendur ofbeldis leit­uðu sér aðstoðar og karlar van­treysti frekar kerf­inu.

Mest lesið undanfarið ár