Þú verður að eiga textann – og ekki hreyfa vatnið eða snerta veggina

Ég hef búið hér síðan í októ­ber árið 2004 og fann strax og ég flutti inn: Hér er and­inn, hér vil ég vera. Þannig leið mér líka þegar ég kom fyrst í Stiga­hlíð 6, þriðju hæð. Enda vorum við þar lengi. Og hér ætlum við að vera, segir Hrönn Haf­liða­dóttir söng­kona, sund­kona, fyrrum skjala­vörður í dóms- og kirkju­mála­ráðu­neyt­inu, fyrrum þula í sjón­varp­inu og hús­móðir, eig­in­kona, móðir, amma og langamma, þegar við setj­umst til stofu­borðs á heim­ili hennar og bónd­ans í gamla Vesturbæ.

Þú verður að eiga textann – og ekki hreyfa vatnið eða snerta veggina

Hrönn hitti ég í sundi. Hún stundar Vest­ur­bæj­ar­laug snemma, kemur í skottið á fyrsta holli morg­un­han­anna þegar hægist um í laug­inni, áður en krakk­arnir mæta í skóla­sundið. Þá eru braut­irnar auðar. Við erum tvær, þrjár í skamm­deg­is­myrkr­inu og úti­klef­anum sem skelfur í vondum veðrum svo hurð­irnar sveifl­ast á hjörum og snjór­inn fýkur úr lofti og með­fram veggj­unum. Vörð­ur­inn stígur inn á vað­stíg­vélum og heldur á kústi. Ofan úr himna­gat­inu á hálfu þak­inu fellur drífa um leið og hann segir eitt­hvað sem lík­ist setn­ingu úr rúss­nesku leik­riti. Síðan er talað um sápur, um borg­ar­stjórn­ina, ráð við kvefi: kon­íaks­lús í heitt vatn rétt fyrir svefn. Nú sitjum við sund­fé­lagar í öðru umhverfi, borg­ara­lega klæddir, þakið heilt. 

Takk fyrir að koma í við­tal fyrir Stundina, kæra Hrönn. Viltu segja mér hvar þú ert fædd og hvenær, hvað for­eldrar þínir heita, áttu systk­ini, hvað heita þau – kæri þú þig um að svara …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár